Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Blaðsíða 74

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Blaðsíða 74
ALTÆK'A ATVINNUKENNINGIN SAMANDREGIN mótum ráða, þótt ef til vill upp á við fremur en niður á við. (iii) Þriðja skilyrðið keniur heim við reynsl- una af manneðlinu. Þótt baráttan fyrir laun- um í peningum sé, eins og bent hefur verið á að framan, öðru fremur barátta til að við- halda hlutfallslega háum launum, er senni- legt, eftir því sem atvinna eykst, að barátta þessi harðni sérhverju sinni, bæði sökum þess að samningsaðstaða verkamanna hefur batn- að og minnkuð nyt launa þeirra á jaðrinum og bættur fjárhagur þeirra hafa gert þá fúsari til að taka á sig áhættu. Engu að síður munu mörk sett því svæði, sem á er látið stjórnast af þessum markmiðum, og verkamenn munu ekki leita miklu hærri lauua í peningum með vaxandi atvinnu né leyfa mjög mikla skerð- ingu launa fremur en þola eitthvert atvinnu- leysi. En nú sem fyrr, hvort sem niðurstaða þessi þykir sennileg a priori, sýnir reynslan, að eitt- hvert þess háttar huglægt lögmál hlýtur að gilda. Ef samkeppni milli verkamanna án at- vinnu leiddi alltaf til mjög mikils niðurskurð- ar launa í peningum, væri verðlag mjög óstöð- ugt. Meira að segja kynni ekkert stöðug jafn- vægi að finnast nema við ástand, heimfæran- legt við atvinnu handa öllum; þar sem lækk- un launaeiningarinnar kynnu engin takmörk að vera sett, unz náð væri þeim mörkum. er áhrif allsnægta peninga, metinna í launaein- ingum, á hæð vaxta megnuðu að koma á aft- ur ástandi atvinnu handa öllum. Við engin önnur mörk gæti orðið kyrrstaða. (iv) Fjórða skilyrðið, sem er síður skilyrði óstöðugleika en sveiflna ýmist til afturkipps eða afturbata, hvílir einvörðungu á þeirri ætl- an, að framleiðslutækin séu misjafnlega göm- ul, slitni með tímanum og eigi sér ekki öll langan aldur; ef stig fjárfestingarinnar fellur niður fyrir tilskilið lágmark, verður þannig aðeins bið, (ef ekki kemur til mikilla sveiflna í öðrum þáttum,) áður en skil auðmagns á jaðrinum vaxa nægilega til þess að lyfta fjár- festingu aftur yfir þetta lágmark. Og að sama hætti að sjálfsögðu, ef stig fjárfestingarinnar hækkar upp yfir það, sem áður var, verður aðeáns bið, unz skil auðmagns á jaðrinum dragast nægilega saman til þess að leiða til afturkipps, nema breytingar á öðrum þáttum vegi upp samdráttinn. Af þessari ástæðu er sennilegt, að jafnvel afturbati og afturkippur í þeim mæli, sem orðið geta innan þeirra marka, sem önnur skilyrði stöðugleika setja, ef nægilega lengi vara og breytingar á öðrum þáttum hrófla ekki við þeim, snúist við og gangi í öfuga átt, þangað til sömu öfl og áður snúa hreyf- ingunum við. Þannig nægja þessi fjögur skilyrði til þess að skýra megindrættina, eins og þeir eru þekktir af reynslunni; — nefnilega, að sveiflur í atvinnu og verðlagi, sem þó ganga ekki út í æsar, verða umhverfis millistöðu, sem svarar til ástands atvinnu minni en handa öllum, og talsvert meiri en þeirri, sem lífsnauðsynleg er framfærslu manna. En sú ályktun skyldi ekki dregin, að sú millistaða, sem þannig er ákvörðuð af „nátt- úrlegum“ tilhneigingum, nefnilega þeim til- hneigingum, sem sennilega vara, ef ekki eru gerðar ráðstafanir til að stemma stigu fyrir þær, stafi af lögmálum nauðsynjarinnar. Það er óvéfengjanleg staðreynd, að áhrif framan- greindra skilyrða eru allsráðandi, en það er ekki endilega regla, sem ekki verður breytt. Haráldur Jóhannsson fnjddi. 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.