Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Side 2
2 Fréttir 25.–27. janúar 2013 Helgarblað
S
kipulagsráð Reykjavíkur
borgar hafnaði umsókn frá
matreiðslumanninum Völ
undi Snæ Völundarsyni um
leyfi til að stækka kjallara
Bókhlöðustígs 2 til að hanna þar eld
hús og veitingasal fyrir fjörutíu gesti.
Gísli Marteinn Baldursson og
Hildur Sverrisdóttir sátu hjá við af
greiðslu málsins og létu bóka um
sjálfbærni borgarinnar. Þau vildu
fagna lífi á götum og göngustígum
í hverfum borgarinnar, svo framar
lega sem næturró væri ekki raskað.
„Ástæða þess að við sitjum hjá, en
greiðum ekki atkvæði gegn synjun
inni, er sú að betri gögn vantar um
rask á framkvæmdatíma,“ segir í bók
un þeirra.
Ekki til deiliskipulag af svæðinu
Fulltrúar Besta flokksins, Páll Hjalta
son, Elsa Hrafnhildur Yeoman og
Karl Sigurðsson, og fulltrúar Sam
fylkingarinnar, Hjálmar Sveinsson og
Kristín Soffía Jónsdóttir, samþykktu
svohljóðandi bókun:
„Fulltrúar Sambest og Vinstri
grænna benda á að ekki er til deili
skipu lag af svæðinu sem um ræðir
og við grenndarkynningu á til
lögunni kom fram mikil andstaða
íbúa í nærliggjandi húsum. Veitinga
húsarekstur á þessu svæði sam
rýmist heldur ekki þróunaráætlun
miðborgar. Hins vegar eru fulltrúar
Sambest og Vinstri grænna almennt
ekki fráhverfir hugmyndum um
veitingastaði í flokki 2 í íbúðarhverf
um en telja ekki stætt að samþykkja
slíkan rekstur ef deiliskipulag liggur
ekki fyrir.“
Vék af fundi
Hjálmar Sveinsson vék af fundi
vegna málsins en tengdafaðir hans
er íbúi við götuna. Fjölmiðlakon
an Marta María Jónasdóttir vekur
athygli á þessum tengslum á Face
booksíðu sinni og sakar Hjálmar
um spillingu. Karl Sigurðsson kem
ur honum til varnar og gagnrýnir að
„hér skuli kjörinn fulltrúi vændur um
óheiðarleg vinnubrögð – algerlega
án þess að nokkur fótur sé fyrir því.“
Karl minnir á að Hjálmar hafi vikið af
fundinum þegar málið var tekið fyr
ir. „Hjálmar er stálheiðarlegur mað
ur og þó við séum ekki í sama flokki
sárnar mér að heyra svona dylgj
ur um hann. Við þetta er að bæta,
svona til að öllu sé til haga haldið, að
Hjálmar situr hvorki í borgarráði né
borgarstjórn nema í afleysingum.“
„Nákvæmlega ekkert ónæði“
Meðal annarra sem bregðast við
ásökunum Mörtu Maríu er íbúi við
Bókhlöðustíg, Lárus Páll Ólafsson.
Hann er mótfallinn því að Völundur
fái að opna veitingastað í götunni og
segir: „Til að byrja með ættuð þið að
gera ykkur í hugarlund hvernig ykkur
raunverulega líkaði að fá veitingahús
við hliðina á heimili ykkar – sama
hvar þið búið. Því fylgir ýmislegt nei
kvætt svo sem lyktarmengun, rusl
mengun, hávaði, umferðarmengun,
ásamt því að fasteignaverð húsnæðis
ykkar mun lækka. Telja má margt
annað til.“
Egill Helgason, sem býr í
grenndinni, er ósammála Lárusi Páli
og bloggar um málið. „Ég bý hinum
megin við túnið. Hér í grennd við
mig eru veitingastaðir, einn þeirra er
beinlínis í næsta húsi. Þetta eru ekki
næturklúbbar, heldur matsölustaðir
sem loka í síðasta lagi um miðnætti.
Og ég get fullvissað fólk um að það er
nákvæmlega ekkert ónæði að þeim –
ég hef aldrei orðið var við neitt slíkt,“
skrifar hann.
Samkvæmt heimildum DV hyggj
ast Völundur Snær og eiginkona
hans, Þóra Sigurðardóttir, útvega
frekari gögn og sækjast áfram eft
ir leyfi til stækkunar. Völundur vildi
ekki tjá sig um málið þegar leitað var
til hans. n
Nágrannar stöðva
sjónvarpskokkinn
n Völundur Snær vill opna veitingastað í kjallaranum heima hjá sér„Við grenndarkynn-
ingu á tillögunni
kom fram mikil andstaða
íbúa í nærliggjandi húsum.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Hjálmar Sveinsson vék af fundi
Tengdafaðir Hjálmars er einn þeirra sem býr
í grennd við Völund Snæ og því vék hann
af fundi þegar greidd voru atkvæði um
veitingareksturinn.
Tveir sátu hjá
Gísli Marteinn Baldursson og
Hildur Sverrisdóttir töldu að betri
gögn vantaði um rask á fram-
kvæmdatíma.myNd Eyþór árNaSoN
Harmi slegnir
ástvinir
3 Nánir ástvinir Snæfríðar
Baldvinsdóttur,
lektors við Háskól
ann á Bifröst, eru
harmi slegnir yfir
óvæntu fráfalli
hennar. Snæfríður varð bráðkvödd á
heimili sínu að Víðimel 27 í Reykja
vík laugardaginn 19. janúar. Hún var
44 ára að aldri. Í DV á mánudag kom
fram að aðstandendur hafi komið
saman á heimili foreldra Snæfríðar,
Bryndísar Schram og Jóns Baldvins
Hannibalssonar, á sunnudag þar sem
þau sýndu hvert öðru styrk í áfallinu.
Snæfríður fæddist í Reykjavík 18. maí
1968, en ólst upp á Ísafirði til tólf ára
aldurs. Hún lætur eftir sig sambýlis
mann og dóttur.
Stefnum rignir
yfir Sundara
2 Skiptastjóri þrotabús
IceCapital ehf., áður
Sunds, hefur höfðað
fimmtán riftunar
mál gegn fyrrver
andi eigendum
félagsins, stjórn
endum þess og
eignarhaldsfélögum þeim tengdum.
DV greindi frá þessu á mánudag. Kraf
ist er riftunar á viðskiptagjörningum
sem áttu sér stað innan félagsins og
við eigendur og stjórnendur IceCapi
tal frá haustinu 2008 og til ársins 2012
þegar félagið var tekið til gjaldþrota
skipta. Svo virðist, út frá stefnunum,
sem eigendur IceCapital hafi tekið
eignir og fjármuni út úr félaginu sem
nema nærri 1.600 milljónum króna.
Þögnin rofin
1 Eiríkur Guðberg Guð
mundsson og
Hilmar Þorbjörns
son stigu fram í
vikunni og sögðu
frá kynferðisof
beldi sem þeir urðu
fyrir af hálfu Gísla
Hjartarsonar kennara á Ísafirði.
Mál þeirra hefur gjarnan verið
kallað Ísafjarðarmálið en það var
árið 2006 sem greint var frá mál
inu í DV. Kvöldið áður en umfjöll
un DV birtist svipti Gísli sig lífi.
DV fjallaði um málið á miðviku
dag og þar var meðal annars haft
eftir Eiríki að honum hafi gengið
vel í lífinu áður en brotin byrjuðu.
Þegar hann hafi orðið fyrir ofbeldi
hafi hann farið að drekka mikið og
neyta eiturlyfja.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Hafnaði gæslu-
varðhaldi yfir
barnaníðingi
Hæstiréttur hafnaði gæsluvarð
haldskröfu lögreglunnar á höfuð
borgarsvæðinu yfir manni sem
játaði að hafa fengið tvær sjö ára
stúlkur til þess að fara upp í bif
reið sína. Hann ók með þær á af
vikinn stað, setti höndina á vanga
annarrar og kyssti hina tvisvar
á kinnina. Hann klappaði þeim
á magann og strauk læri þeirra.
Önnur þeirra sagðist hafa orðið
óttaslegin og farið að gráta. Þá ók
maðurinn stúlkunum aftur þar
sem hann hitti þær og sleppti
þeim. Háttsemi mannsins var
alvaraleg sem var þó ekki nóg til
þess að maðurinn sætti gæslu
varðhaldi.
Myndaði tvær
14 ára stúlkur
Maður var dæmdur í fimm
mánaða óskilorðsbundið fang
elsi fyrir að taka ljósmyndir af
tveimur fjórtán ára stúlkum er
þær voru naktar í sólbekk á sól
baðsstofu. Maðurinn tók alls 96
myndir af stúlkunum og á sum
um þeirra sást greinilega í kyn
færi stúlknanna, en þær vissu
ekki af athæfi mannsins. Þetta átti
sér stað árið 2008 en upp komst
um málið árið 2010 þegar lög
reglan haldlagði tölvu mannsins
þar sem hann geymdi myndirn
ar. Maðurinn hafði í héraði verið
dæmdur í fimm mánaða skilorðs
bundið fangelsi. Hæstiréttur vildi
ekki skilorðsbinda dóminn vegna
þess að maðurinn rauf skilorð.