Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Blaðsíða 16
16 Fréttir 25.–27. janúar 2013 Helgarblað „Það eru fleiri fórnarlömb“ Þ að var að kvöldi þess 9. jan­ úar sem þáverandi ritstjóri DV, Mikael Torfason, sat einn eftir við tölvuna með for­ síðu morgundagsins á skján­ um. „„Kennari sagður nauðga piltum“ sagði þar í stríðsletri. „Er hann ekki einhentur,“ spurði ég. „Jú,“ sagði ritstjórinn og bætti svo við: „Er það ekki einum of langt geng­ ið?“ „Nei,“ sagði ég.“ „Vissulega á ekki að kenna menn við fötlun sína en í svona málum verð­ ur þetta dramatískara – myndrænna.“ Ritstjórinn gaf sig og breytti fyrir­ sögninni í það sem hún varð.“ Þannig lýsti Eiríkur Jónsson þessari stundu í pistli sem hann birti á heimasíðu sinni í kjölfar um­ ræðunnar um Ísafjarðar­ málið, en nú, sjö árum síðar, stigu strákarn­ ir fram í fyrsta sinn og sögðu sögu sína í Kastljósi þriðju­ dagsins. Strákarn­ ir kærðu Gísla fyrir kynferðis brot þann 22. desember og þeir höfðu jafnframt látið hann vita að þeir hefðu rofið þagnar­ múrinn og sagt til hans. Kynferðisbrotin sem þeir kærðu Gísla fyrir voru langvarandi og ítrekuð og eins ljót og hægt er að hugsa sér. Þá hafði þriðji maðurinn farið með þeim á lögreglustöðina í þeim tilgangi að leggja fram kæru en brotin gagnvart honum voru fyrnd. Þennan dag hafði Andri Ólafsson, blaðamaður DV, náð tali af Gísla, sem staðfesti að húsleit hefði verið gerð heima hjá honum, tölva hans hefði verið tekin og henni verið skilað aftur og sagði að málið væri á misskilningi byggt. Andlát Gísla Þriðjudagurinn 10. janúar Nýr dagur rann upp og blaðið kom út. Vinur Gísla reyndi ítrekað að ná í hann í síma en Gísli svaraði aldrei. Þegar líða tók á daginn ákvað vinur hans að fara heim til Gísla og tékka á honum. Þegar Gísli svaraði ekki heldur dyra­ bjöllunni hr­ ingdi vinur hans í lögregluna sem fann Gísla látinn á heimili sínu. Hann framdi sjálfsvíg áður en nóttin var á enda. Rannsókn máls­ ins var sjálfhætt. Í kvöldfrétt­ um NFS flutti fréttamaðurinn Jóhann Hlíðar Harðarson fréttir af málinu, en hún hófst með þessum orðum: „Karl­ maður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun eftir að DV birti mynd af hon­ um á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum pilt­ um. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir manns­ ins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann.“ Þar sagði einnig að málið gegn Gísla hefði verið á frumstigi og að orð hafi staðið gegn orði. Eins var það haft eftir bróður Gísla að fjölskyldan væri sundurtætt af sorg vegna þessa harm­ leiks og að hann hefði hringt á ritstjórn DV til þess að tilkynna þeim andlát bróður síns þar sem hann teldi rétt að gera það fyrst fréttaflutningur DV hefði nánast rekið bróður sinn í dauðann. Mikil reiðialda reis í samfélaginu og DV var sakað um að hafa drepið Gísla. Bjarni Harðarson sagði í Íslandi í dag að ábyrgðin væri eigendanna, því þeir hefðu gert mönnum, sem voru svo illa innrættir að þeir gætu gert svona, hátt undir höfði. „Við skulum athuga það að íslensk blaðamannastétt hefur alltaf átt skítablaðamenn, alltaf átt sorpblaðamenn.“ „Morð“ Miðvikudagurinn 11. janúar „Og þá spyr ég: Jónas Kristjánsson, tel­ ur þú að DV hafi átt þátt í því að mað­ ur svipti sig lífi í gær?“ spurði Björg Eva Erlendsdóttir í fréttum RÚV. Jónas svaraði: „Við höfum ekki talið að svo væri. Ég held að það sé mjög erfitt að fullyrða um slíkt hverjar séu orsakir þess að fólk sviptir sig lífi. Ég held að það sé ekki hægt að saka neinn um það.“ Sama dag var haft eftir þáverandi formanni blaðamannafélagsins, Örnu Schram, að stjórn félagsins myndi fara yfir málið og kanna hvort eða hvaða þátt fjölmiðlar ættu í því hvernig fór. Umræðan um það hvort DV hefði drepið Gísla með fréttaflutningi af málinu varð ansi hávær og ungliða­ hreyfingar stjórnmálaflokka, samtök stúdenta, helstu vefrit og fleiri stóðu saman að mótmælum við frétta­ flutningi og ritstjórnarstefnu DV. Frá klukkan ellefu til tvö var skjár­ inn á heimasíðum þessara félaga­ samtaka svartur í mótmælaskyni. Sett var af stað undirskriftasöfn­ un á vefritinu Deiglunni þar sem skorað var á blaðamenn og rit­ stjóra DV að endurskoða rit­ stjórnarstefnuna. Að meðaltali skráðu 44 einstaklingar sig á listann á hverri mínútu frá klukkan ellefu til fjögur. Formenn þingflokka á Alþingi tóku undir mót­ mæli ungliðahreyfingar­ innar og sendu frá sér fréttatilkynningu þess efnis. Hjálmar Árnason þingmaður skrif­ aði pistil þar sem hann sagði meðal annars: „DV fór yfir strikið og ekki ein­ asta greip til mannorðsmorðs heldur morðs í eiginlegri merkingu. Og það er stórt orð en ekki verður séð annað en full innistæða sé þar að baki. Þyngra en tárum taki að lýsa samúð minni með ástvinum hins myrta. Þeirra skaði verður aldrei bættur.“ Össur Skarphéðinsson tók ekki eins djúpt í árinni og Hjálmar, en þeir Gísli voru góðkunningjar og hann var hugsi yfir málinu og velti upp eftirfar­ andi spurningum á heimasíðu sinni: „Um hvað skyldi Mikael Torfason vera að hugsa í kvöld? Skrifar Jónas Krist­ jánsson leiðara á morgun um hvernig er að leika Guð og vega menn í skjól­ um sannleikans? Senda 365­miðlar blóm og kransa þegar Gísli Hjartar­ son verður borinn til grafar á Ísafirði í næstu viku?“ Steingrímur Njálsson reyndi að brjótast inn á ritstjórnarskrifstofur DV og var lögreglan kölluð á vettvang. Steingrímur var talsvert ölvaður og var fluttur burt í lögreglubíl. Skömmu síð­ ar sneri hann aftur og þurfti aftur að kalla lögreglu til. Sagði hann að DV hefði lagt líf sitt í rúst og hafði í hótun­ um við blaðamann og vitnaði í pistil Hjálmars Árnasonar sem sagði að DV hefði drepið Gísla. Rætt var við Sigurð Hjartarson, bróður Gísla, í Kastljósi, sem sagði að hann hefði svipt sig lífi í kjölfar um­ fjöllunar um málið. Hann hefði skilið eftir sig bréf þar sem hann bar af sér sakir um kynferðislegt ofbeldi og sagð­ ist ekki geta setið undir atlögu fjöl­ miðla. Nýtt frumvarp á Alþingi Fimmtudagur 12. janúar Plaköt sem sýndu forsíðu DV voru fjarlægð úr Hagkaupum og Bónus­ verslunum til frambúðar og Samtök auglýsenda hvöttu auglýsendur til að sniðganga DV þar til ritstjórnar­ stefnunni hefði verið breytt. Í fréttum sjónvarps var sagt frá því að Björgólfs­ feðgar hefðu tvívegis reynt að kaupa DV til þess að leggja það niður. Sigurður Kári Kristjánsson, þáver­ andi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá fyrirætlunum sínum um að leggja fram nýtt frumvarp á Alþingi þar sem ákvæði almennra hegningarlaga um ærumeiðingar yrðu víkkuð og bótaréttur yrði aukinn. „Ég hef talið að opinber umræða hafi þróast með þeim hætti að vernd einkalífs, heim­ ilis og fjölskyldna fólksins í landinu, sé ekki nægilega trygg og að það dylj­ ist það engum að á þessum réttindum hafi verið troðið og ég held að nýjustu dæmi hafi sýnt fram á það.“ Fjölmargir skrifuðu um málið á þessum tíma og flestir fordæmdu DV fyrir að segja frá kærunum á hendur Gísla. Í Blaðinu birtist ómerktur leiðari undir heitinu „Það verður að stöðva þessa menn“ þar sem sagði að DV hefði verið krabbamein í samfélaginu sem hefði fengið að vaxa og dafna. „Siðleysi og dómgreindarleysi ritstjóra DV er svo algjört að það er full ástæða til að spyrja um andlega heilsu hans.“ Ísafjarðarmálið var einnig áber­ andi í fréttum dagsins. Þar var meðal annars rætt við séra Bolla Pétur Bolla­ son, sóknarprest í Seljakirkju, sem sagði að umfjöllun DV væri alvar­ legt inngrip inn í störf dómstóla og að blaðið væri að eyðileggja málstað þolenda í kynferðisbrotum. Guðrún Jónsdóttir sagði að blaðauppsláttur af þessum toga væri ekki til þess fall­ inn að styðja þolendur, en hún sagðist vita af að minnsta kosti fimm mönn­ um sem hefðu svipt sig lífi eftir að mál þeirra komust í hámæli. Rætt var við ritstjórana í Kastljósi þar sem þeir sögðust vera að hugsa um hag þolendanna og segja sannleikann. Þar var einnig rætt við annan strákinn sem lagði fram kæru en hann sagðist ítrekað hafa reynt að biðja blaðið um að bíða með umfjöllun um málið. „Ég harma fréttaflutning DV enda eyði­ lagði blaðið framgang málsins. Sann­ leikurinn kemur nú aldrei fram fyr­ ir dómstólum eins og við vonuðumst til.“ Strákurinn sem var ónafngreindur í viðtalinu sagðist ekki kenna sér um sjálfsvíg Gísla þar sem hann vissi að hann hefði ekki gert neitt rangt. „Vegna hinnar miklu samúðarbylgju sem risið Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is n Reiðialda reið yfir samfélagið vegna Ísafjarðarmálsins n Fjölmiðill var sakaður um morð n Samúðarbylgja reis með manni sem var sakaður um kynferðisbrot„Skrifar Jónas Krist- jánsson leiðara á morgun um hvernig er að leika Guð og vega menn í skjólum sannleikans? Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Stigu loks fram Sjö ára þögn var rofin þegar þeir Eiríkur Guðberg Guðmundssn og Hilmar Örn Þorbjörnsson sögðu sögu sína í Kastljósi á þriðjudag. 11. janúar 2006 12. janúar 2006 10. janúar 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.