Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Page 17
hefur í samfélaginu með manninum
sem lést finnst okkur mikilvægt að það
komi fram að það eru fleiri fórnarlömb
í þessu máli.“
DV greindi frá því að þeir hefðu
nöfn sex karlmanna sem sögðust hafa
komið misjafnlega illa út úr samskipt-
um sínum við Gísla. Tveir þeirra stigu
fram vegna þess að þeim blöskraði
umræðan.
Ritstjórarnir sögðu af sér
Föstudagur 13. janúar
„Tökum svona kauða
Dæmum hann til dauða
Forsíðuna auða
Viljum ekki í dag“
Þannig var viðlagið í lagi sem Bubbi
Morthens frumflutti á Bylgjunni og
fjallaði um DV.
Áframhaldandi fréttaflutningur á
málinu var allur á þá vegu að Gísli
hafi svipt sig lífi vegna forsíðu DV þar
sem hann var sakaður um að hafa
nauðgað ungum drengjum. Ritstjór-
ar DV, þeir Mikael Torfason og Jónas
Kristjánsson, sögðu af sér og Blaða-
mannafélag Íslands taldi tryggt að DV
myndi fylgja siðareglum félagsins hér
eftir.
Fólk hélt áfram að skrifa um mál-
ið, hvort sem það var í bloggfærslum
eða blöðum, og margir lýstu andúð
sinni á blaðinu. Helgi Hjörvar skrifaði
pistil um hættulegustu menn í heimi
og annar skrifaði um siðareglur götu-
stráka. Fyrrverandi fangavörður sendi
Velvakanda póst þar sem hann sagði
að nú hefði það gerst sem allir sem
hefðu snefil að sómatilfinningu vissu
að myndi gerast, að saklaus maður
hefði ekki séð sér fært að takast á við
þennan „viðbjóðslega fréttaflutning af
saklausu fólki.“
Heilu síðurnar voru undirlagðar af
fréttum af málinu í öðrum fjölmiðlum.
Greint var frá því að Gunnar Lár-
us Hjálmarsson, betur þekktur sem
Dr. Gunni, hefði ákveðið að hætta
að skrifa fyrir DV í ljósi atburði síð-
ustu daga. DV hefði farið svo langt yfir
strikið að það væri ekki hægt að afsaka
það. Þá skoraði stjórn Stúdentaráðs á
Bóksölu stúdenta að taka DV úr sölu
auk þess sem stjórnin hvatti stúdenta
og landsmenn alla til þess að hætta að
kaupa og lesa DV. Stjórn Dagsbrúnar
sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram
kom að stjórnin hefði aðeins komið
að stefnumótun blaðsins en ekki rit-
stjórnarlegum ákvörðunum.
Bróðir Gísla, Sigurður Hjartarson,
kom fram í fjölmiðlum og sagði að ef
einhver hefði skilið orð hans þannig
að samkvæmt sjálfsvígsbréfi bæri DV
ábyrgð á dauða hans þá væri það rangt.
„Mér dettur ekki í hug að halda því
fram að lát Gísla hafi verið beinlíns sök
DV eða á ábyrgð einhverra annarra.“
Bað hann um frið til þess að fá að
kveðja bróður sinn og sagði að enda-
lausar umræður um það hvernig lát
hans hefði borið að hefði slæm áhrif
á fjölskylduna.
32.044 undirskriftir
Laugardagur 14. janúar
Formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, Borgar Þór Einarsson, af-
henti Páli Baldvin Baldvinssyni, nýj-
um ritstjóra DV, undirskriftir 32.044
Íslendinga sem skoruðu á blaðamenn
og ritstjóra DV að endurskoða rit-
stjórnarstefnuna.
Áfram var skrifað um DV og Ísa-
fjarðarmálið. Þorsteinn Kristinsson,
varaformaður ungra jafnaðarmanna
í Hafnarfirði, skrifaði grein þar sem
hann sagðist sjá fyrir sér Jónas Krist-
jánsson, ritstjóra DV, standandi á
háum palli veifandi höfði ísfirska
kennarans framan í blóðþyrstan al-
múgann þar sem hann hefði verið tek-
inn af lífi án dóms og laga. „Allt hans
mannorð, allt hans líf lagt í rúst óháð
því hvort hann var sekur eða saklaus
til þess eins að fullnægja þeirri sjúk-
legu þörf okkar að velta okkur upp
úr hörmungum annarra og sjá söku-
dólginn hengdan. Hverslags þjóðfé-
lagi lifum við eiginlega í?“
Forsætisráðherra talar
Mánudagur 16. janúar
Forsætisráðherra sagðist á mánaðar-
legum fundi með fréttamönnum hafa
rætt málefni DV við eigendur blaðsins
fyrir nokkru, sér í lagi nafn- og mynd-
birtingar. „Ég sagði nú að ef ég væri
eigandi að svona blaði þá mundi ég nú
ekki sofa neitt sérstaklega vel á næt-
urnar því að ég þekkti það tilvik sem
þar var um að ræða.“
Yfirlýsing eigandans
Föstudaginn 20. janúar
Jón Ásgeir Jóhannesson sendi frá sér
yfirlýsingu og sagðist ekki koma að
ritstjórn fjölmiðla í sinni eigu.
Útför Gísla
Laugardagurinn 21. janúar
Gísla Hjartarsyni var fylgt til grafar.
Útför hans fór fram fyrir fullu húsi og
í minningargreinum var hann hlað-
inn lofi.
Í Vestfjarðapóstinum var greint frá
því að hann hefði látist í kjölfar ósvíf-
innar árásar DV á hans persónu og
aðstandendum send samúðarkveðja.
Þagnarmúr reistur
Fleiri fórnarlömb Gísla gáfu sig fram
við fjölskyldu annars stráksins sem
kærði Gísla fyrir kynferðisbrot, að
minnsta kosti þrjú á þessum tíma.
Enn fleiri gáfu sig fram við DV þótt þau
treystu sér ekki til þess að koma fram
undir nafni. Í febrúar reyndi ann-
ar strákurinn, Eiríkur Guðberg Guð-
mundsson, að fremja sjálfsvíg eftir að
hafa ítrekað fengið að heyra að hann
hefði drepið Gísla. Í apríl var daglegri
útgáfu DV hætt og blaðinu breytt í
helgarblað. Tíu starfsmönnum var
sagt upp störfum.
Umræðan um kynferðisbrot Gísla
þagnaði alveg þar til strákarnir tveir
stigu fram og sögðu sögu sína í Kast-
ljósi fyrr í vikunni, sjö árum eftir að
þeir lögðu fram kæru. Í kjölfarið hafa
fleiri fórnarlömb haft samband við
DV, þótt þau treysti sér enn ekki til
þess að stíga fram. Eitt þeirra þurfti
að þola áralanga misnotkun af hálfu
Gísla fyrir rúmum þrjátíu árum.
Árið 2008 voru þeim Eiríki Guð-
bergi og Hilmari Erni Þorbjörns-
syni dæmdar hámarksbætur frá
Bótanefnd ríkisins vegna ítrekaðra
kynferðisbrota af hálfu Gísla. Til
grundvallar þeirri ákvörðun lágu
rannsóknargögn lögreglu.
En það var ekki fyrr en nú sem
strákarnir fengu að sjá bréfin sem
Gísli skildi eftir sig, en þau voru alls
þrjú og í einu þeirra játaði hann brot-
in. Fjölskylda Gísla sagði í samtali
við DV að hún hefði verið dregin inn
í umræðuna á meðan hún hefði ver-
ið enn í áfalli, að syrgja látinn ástvin
á sama tíma og kynferðisbrot hans
voru að koma fram í dagsljósið. Hún
sagðist jafnframt trúa fórnarlömbum
Gísla. n
„Það eru fleiri fórnarlömb“
n Reiðialda reið yfir samfélagið vegna Ísafjarðarmálsins n Fjölmiðill var sakaður um morð n Samúðarbylgja reis með manni sem var sakaður um kynferðisbrot
„DV fór yfir strikið og
ekki einasta greip
til mannorðsmorðs heldur
morðs í eiginlegri merkingu
Hættu Jónas Kristjáns-
son og Mikael Torfason
sögðu af sér í kjölfar um-
ræðunnar um fréttaflutn-
ing DV af Ísafjarðarmálinu
en þeir voru sakaðir um
mannorðsmorð og morð í
eiginlegum skilningi þess
orðs.
Fréttir 17Helgarblað 25.–27. janúar 2013
13. janúar 2006 13. janúar 2006 13. janúar 2006
14. janúar 2006