Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Blaðsíða 33
Viðtal 33Helgarblað 25.–27. janúar 2013
var reyndar aðeins veikari og þurfti
að fara í öndunarvél. Það er bú
inn að vera smá rússíbani á henni.
Þegar á heildina er litið þá lítur
þetta samt allt vel út.“ Gera má ráð
fyrir því að stúlkurnar þurfi engu
að síður að dvelja á vökudeildinni
fram til 19. apríl, en það er settur
fæðingardagur þeirra. Katrín segir
tímann þó fljúga áfram, enda renni
dagarnir saman í eitt á spítalanum.
Óhætt er að segja að litlu stúlk
urnar tvær séu sannkölluð krafta
verkabörn. Þóra Margrét var 676
grömm og 31,5 sentimetrar við
fæðingu, systir hennar Halldóra
Gyða var örlítið stærri, 730 grömm
og 33 sentimetrar. „Ég bjóst ekki
við að þær myndu báðar fæðast lif
andi, ef ég á að segja alveg eins og
er. Og ég var alveg viss um að önn
ur myndi fara fyrsta sólarhringinn.
Þetta er mikið betra en ég hefði
nokkurn tíma þorað að vona.“
Skoðar myndbönd
af systrunum
Eldri dóttir Katrínar dvelur hjá for
eldrum hennar og systur í Keflavík
á meðan hún sjálf er í Reykjavík, en
hún hefur tvisvar farið suður eftir
til að vera með henni. Katrín segir
það skipta miklu máli að dóttir
hennar sé í góðum höndum. „Þetta
gæti ekki verið betra miðað við að
stæður.“
Hún segir það engu að síður
dálítið erfitt fyrir fimm ára stelpu
að fá ekki að hitta litlu systur sínar.
Katrín hefur þó tekið myndbönd
af litlu systrunum á símann sinn
sem sú stóra fær að horfa á þegar
þær hittast. Það var einmitt hug
mynd Guðbjargar sjálfrar að taka
upp myndbönd á símann. „Það
er svolítið krúttlegt að fimm ára
barn skuli hafa fattað þetta,“ segir
Katrín og hlær að uppátæki dóttur
sinnar.
Lærði á sjúkdóminn
Katrín og Halldór giftu sig í Glerár
kirkju á Akureyri síðasta sumar,
þann 14. júlí eftir um tveggja ára
samband. „Þá hefði engum dottið
í hug að þetta allt væri að fara að
gerast,“ segir Katrín sem á þeim
tíma bjóst við að þau Halldór
myndu verða gömul saman.
„Hann náði að læra inn á sjúk
dóminn. Þetta er náttúrulega sjúk
dómur sem veldur því að þú ferð
upp í maníur og niður í þung
lyndi. Ef hann fór upp þá fór hann
til læknis og lét stilla lyfin og eins
þegar hann fór niður.“
Sjúkdómurinn háði Halldóri
þó alltaf þrátt fyrir að hann næði
að læra inn á hann, en það dró úr
sjúkrahúslegum og honum leið
betur.
Sjúkdómurinn hafði einnig
stundum áhrif á samband Hall
dórs og Katrínar, sérstaklega þegar
hann tók miklar sveiflur. Sjálf las
hún sér mikið til um geðhvarfasýki
og þekkir fleiri einstaklinga sem
glíma við hana. „Þó maður geri sér
aldrei 100 prósent grein fyrir því
hvernig hlutirnir eru þá gerði ég
mér nokkurn veginn grein fyrir því
hvað var í gangi.“
Kvartaði og endaði á
stefnumóti
Katrín og Halldór kynntust þegar
þau bjuggu í sama stigagangi í
einni blokkinni uppi á Velli. Hún
viðurkennir að hún hafi tekið
eftir honum á ganginum þrátt fyr
ir að hann hafi ávallt gengið með
höfuðið niður í bringu. Halldór
lagði bílnum sínum, gömlum Vol
vo með ónýtu pústi, ávallt í stæði
beint fyrir utan stofugluggann hjá
Katrínu. Það fór mikið í taugarnar
á henni því alltaf þegar þegar hann
setti bílinn í gang myndaðist mikill
hávaði og mengun sem barst inn í
íbúðina.
Það kom að því að hún fékk
nóg, bankaði upp á og kvartaði.
„Svo kom hann niður kvöldið sem
ég fór og röflaði og við ákváðum
að horfa á vídeó saman. Hann bjó
með bróður sínum sem læsti hann
óvart úti, þannig að þegar hann
ætlaði að fara heim að sofa þá
komst hann ekki inn,“ segir Katrín
hlæjandi. „Hann fékk því að gista á
sófanum, bætir hún við. Katrín tel
ur að þeim hljóti að hafa verið ætl
að að kynnast betur.
Glímdi við dularfullan sjúkdóm
Erfiðleikarnir sem Katrín gengur
í gegnum núna eru þó ekki einu
erfiðleikarnir sem hún hefur þurft
að glíma við á lífsleiðinni. Þegar
hún var þrettán ára byrjaði hún að
fá kýli víðs vegar um líkamann. Í
fyrstu voru kýlin lítil og hún kippti
sér lítið upp við þau, en sjúk
dómurinn ágerðist hratt. Hann
hafði gífurleg áhrif á líf hennar því
kýlunum fylgdu miklir verkir, bólg
ur og gröftur. Þegar hún var sem
verst varð hún að liggja í rúminu.
Fyrir vikið var Katrín metin sem
öryrki.
Hún gekk á milli lækna í fjölda
ára, prófaði ýmis lyf og fór í upp
skurði án árangurs. Læknar virtu
st standa ráðþrota frammi fyrir því
sem hrjáði Katrínu. Það var ekki
fyrr en fyrir örfáum árum að hún
hitti lækni sem greindi hana strax.
Sjúkdómurinn kallast Hidradenitis
Suppurativa eða HS og lýsir sér
í kýlamyndun á nárasvæði, hol
höld og undir brjóstum. Hún fær
nú lyfja gjöf á sex vikna fresti sem
heldur sjúkdómnum niðri að
mestu leyti. „Nema þegar svona
mikið stress er að hrjá mann, þá
koma einkennin fram. En þetta er
ekki næstum því eins slæmt og það
var fyrir nokkrum árum.“
Tilgangurinn að hjálpa öðrum
Eftir að Katrín fékk greiningu á
sjúkdómnum stofnaði hún HS
samtökin í þeim tilgangi að hjálpa
öðrum með sama sjúkdóm. Þá lýsti
hún reynslu sinni af sjúkdómnum
í DV sumarið 2011. Halldór var
henni stoð og stytta við stofnun
samtakanna og sá um öll tækni
málin. „Ég hefði aldrei getað stofn
að þessi samtök nema því hann var
við hliðina á mér,“ segir Katrín með
þakklæti í röddinni.
Hún er sannfærð um að veik
indi hennar hafi styrkt hana mikið
og það hjálpi henni við að komast
í gegnum erfiðleikana núna. „Líka
af því ég steig fram með sjúkdóm
inn og talaði um hann, þá er ég
orðin vanari því að tala um hvern
ig mér líður.“
Stofnun samtakanna hefur þó
ekki bara hjálpað henni sjálfri
heldur hafa samtökin aðstoð
að um fimmtíu aðra sem þjást af
sama sjúkdómi að fá bót meina
sinna. „Eins og ég sagði áðan þá
er tilgangur með öllu og ætli til
gangurinn með sjúkdómnum hafi
ekki verið að ég myndi gera þetta
og hjálpa einhverjum öðrum,“ seg
ir hún auðmjúk. „Svo er spurn
ingin, hver er tilgangurinn með
þessu sem er að gerast núna. Það
kemur bara í ljós.“
Sér hverjir eru sannir vinir
Katrín reynir að taka einn dag í
einu, en hlakkar til að komast heim
með dætur sínar. Hún hefur ekki
hugsað lengra en það.
Hún er ótrúlega þakklát fyrir
allt það góða fólk sem hún hefur í
kringum sig og alla aðstoðina sem
henni hefur boðist. „Þetta væri ekki
hægt nema að hafa góða í kringum
sig,“ segir hún einlæg. Náungakær
leikurinn hefur komið henni mikið
á óvart upp á síðkastið, en fjöldi
fólks sem hún þekkir ekki hefur sett
sig í samband við hana og boðið
fram aðstoð. Þá hafa vinir Katrínar
opnað söfnunarreikning í henn
ar nafni sem margir hafa lagt inn
á. „Þetta hefur komið mér mikið á
óvart. Við höfum fengið send föt og
margt fleira. Maður sér líka í svona
aðstæðum hverjir eru virkilega vin
ir manns og það hefur komið mér
virkilega á óvart hverjir hafa verið
að koma.“
Gengur eins og í lygasögu
Þann 27. janúar næstkomandi
hefði Halldór orðið 31 árs og ætla
Katrín og fjölskylda halda upp
á daginn hans. Aðspurð hvort
hún telji að það verði erfitt, svar
ar hún því neitandi. „Jólin voru
erfiðust. Ég get ekki ímyndað mér
að afmælið hans verði erfiðara en
jólin.“ Hún segir sorgina um jólin
hafa verið mikla, enda skammt
liðið frá andláti Halldórs. „Það er
alltaf sagt að fyrstu jólin séu erf
iðust. Við ætluðum að halda jólin
saman fyrir norðan, en það breytt
ist auðvitað allt.“
Katrín var hálfnuð með nám sitt
í iðjuþjálfun við Háskólann á Akur
eyri þegar áfallið dundi yfir en hún
stefnir á að halda áfram í náminu
næsta haust ef allt gengur vel. Taka
það í fjarnámi, líkt og boðið er upp
á. Katrín hefur þó alltaf tenginguna
við Akureyri enda býr hluti af fjöl
skyldu Halldórs þar og hún er í
góðu sambandi við fólkið hans.
Þrátt fyrir erfiðleikana og
sorgina lítur Katrín björtum aug
um til framtíðar. Pollýönnuhugs
unin fleytir henni áfram og auð
veldar henni að takast á við hvern
dag. „Miðað við það hvernig ég
bjóst við að þetta gengi, þá gengur
þetta allt eins og í lygasögu,“ seg
ir Katrín að lokum. Leiðir skilja
og hún heldur inn á vökudeild til
kraftaverkastúlknanna sinna. n
„Örugglega
tilgangur með
þessu Öllu“
Vökudeildin
Tvíburadætur Katrínar komu
í heiminn eftir aðeins 25 vikna
meðgöngu þann 6. janúar
síðastliðinn. Áætlaður fæðingar-
dagur þeirra var 19. apríl.
mynd SiGTryGGur ari
Vilt þú aðstoða
Katrínu?
Söfnunarreikningur
0121-05-407271
Kennitala
010483-4849