Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Qupperneq 38
38 Menning 25.–27. janúar 2013 Helgarblað
Borgin býður til tónleika
n Í tilefni fæðingardags Mozarts
Þ
etta eru árlegir tónleikar sem
Laufey Sigurðardóttir hefur
staðið fyrir á afmælis degi
Mozarts og við erum ótrúlega
þakklátar að fá að vera með í ár,“
segir Margrét Pálmadóttir kórstjóri.
Stúlknakór Reykjavíkur mun syngja
á tónleikum sem Reykjavíkurborg
býður til á Kjarvalsstöðum, á sunnu-
daginn klukkan 17.00, í tilefni af
fæðingardegi tónskáldsins W. A.
Mozarts.
Margét segir að kórinn verði
umvafinn gömlum „salon“-mynd-
um frá Kjarval sjálfum og það verði
kammerstemning á tónleikunum.
„Kórinn, sem samanstendur af 25
stúlkum á aldrinum 15 til 23 ára,
mun syngja sex mjög ólík sönglög
eftir Mozart og það ríkir mikil til-
hlökkun og gleði. Það er líka svo
gaman fyrir stelpurnar að kynnast
Mozart.“
Margrét segir að tónskáldið tali
svo til unga fólksins og það sýni
hvað Mozart sé í raun síungur. „Það
verður skemmtileg stemning og
kannski aðallega gaman þar sem
fólki er boðið að mæta. Þetta verða
svona hústónleikar,“ segir Margrét.
Antoniu Hevesi píanóleikari leik-
ur undir með söng stúlknanna en
auk þess verða fluttar tvær sónötur
fyrir píanó og fiðlu í flutningi Aladár
Rácz og Laufeyjar Sigurðardóttur.
Einar Jóhannesson spjallar einnig
um tónskáldið og tónlistina sem
flutt verður. n
Fjöll og fáein
atviksorð
Myndlistarsýning Rósu Sigrúnar
Jónsdóttur hefst í Sal íslenskrar
grafíkur í Hafnarhúsinu, Tryggva-
götu 17, um helgina.
Á sýningunni eru verk unnin í
ýmsa miðla; málverk, teikningar,
textíl og ljósmyndir sem eiga ræt-
ur sínar í áralangri útivist og fjall-
göngum Rósu Sigrúnar. „Fjöll eru
eins og atviksorð, óbeygjanleg og
óútreiknanleg en þó staðföst. Þau
eru ástand eins og fjallgangan,“
segir í tilkynningu.
Rósa Sigrún útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands vorið 2001
og hefur sýnt verk sín víða, bæði
innan lands og utan. Áhugasamir
geta lesið sér til um listakonuna á
heimasíðunni lysandi.is og skoðað
verk hennar.
Opnun sýningarinnar verður
laugardaginn 25. janúar kl 16 og
stendur hún til sunnudagsins 3.
febrúar og er opið frá fimmtudegi
til sunnudags milli 14 og 18.
Afmælistónleikar Mozarts „Hann gaf
heiminum
miklu meira en
hann tók
Þ
að hefur verið draumur hjá
mér í mörg ár að setja upp
svona tónleika og nú þegar
fæðingardagur Mozarts
lendir á sunnudegi ákvað ég
að slá til,“ segir Gréta Hergils Valdi-
marsdóttir, sópran sem heldur af-
mælistónleika Amadeusar Mozarts
þann 27. Janúar. Þá verða liðin 257 ár
frá fæðingu tónskáldsins.
Þarf að klípa sig í kinnarnar
Gréta segir að þótt ekki sé um stór-
afmæli Mozarts að ræða þá eigi tón-
verkið sem verður flutt 240 ára af-
mæli. Verkið er módettan Exsultate
jubilate sem Mozart samdi aðeins 17
ára gamall undir áhrifum frá ítölsk-
um óperum þess tíma. „Það er gam-
an að segja frá því að alltaf þegar ég
syng módettuna þá þarf ég eiginlega
að klípa mig í kinnarnar þegar ég er
búin. Það er til þess að ná brosinu af
mér en kinnarnar á mér verða stífar af
gleði,“ segir hún.
Það má því búast við léttum og
skemmtilegum tónleikum og Gréta
segir að henni finnist mikilvægt að
minnast hans með gleði. „Ég hef les-
ið mikið um hann og komist að því að
hann var góður maður, hann var ljúf-
menni og hann var glaður. Hann varð
einungis 35 ára gamall en hann gaf
heiminum svo mikið, miklu meira en
hann tók.“
Draumur að halda tónleika
árlega
Hún minnist þess einnig að hafa
lesið ummæli sem besti vinur hans
hafði um Mozart eftir að hann féll frá.
Vinurinn á að hafa komist þannig að
orði að heimurinn mundi ekki eign-
ast annan eins snilling næstu 100
árin. „Nú 250 árum seinna hefur enn
ekki fæðst annar eins snillingur, alla
vega fyrir mína parta,“ segir Gréta.
Aðspurð hvort hún muni halda
slíka tónleika árlega héðan í frá segir
Gréta að það væri draumur. „Ég held
að hann eigi það inni hjá heiminum
að fæðingar hans verði minnst.“
Aðdáandi frá barnsaldri
Gréta er mikill aðdáandi Mozarts og
hefur verið það frá því hún var barn.
„Ég kynntist honum mjög ung, þegar
ég var um þriggja eða fjögurra ára,
þegar ég heyrði Töfraflautuna fyrst. Ég
kunni alla textana og hlutverkin utan
að, þó ég kunni ekki þýsku,“ segir hún.
Þegar hún var 9 ára sá hún myndina
Amadeus og varð hugfangin. „Ég vildi
eiginlega bara vera hann eftir að ég sá
myndina og hann hefur alltaf staðið
mér nærri.“ Gréta eignaðist svo frum-
burð sinn á þessum degi og fannst
það afar táknrænt og tengja hana enn
betur tónskáldinu.
Hún bendir á að fólk geri sér
jafnvel ekki grein fyrir því að tónlist
Mozarts er allt í kring um okkur. „Við
syngjum Tumi fer á fætur og Í dag er
glatt í döprum hjörtum sem eru lög
eftir Mozart. Tónlist hans er notuð í
auglýsingum og teiknimyndum svo
hann er út um allt í kring um okkur.“
Höfðar til allra
Gréta er bjartsýn á að það verði
góð mæting og vonast til að sjá sem
flesta. „Mér finnst vera áhugi fyrir
þessu en það eru margir sem halda
upp á Mozart. Þetta verður á léttu
nótunum og ætti að höfða til allra.“
Tónleikarnir fara fram í Grafar-
vogskirkju og hefjast klukkan 20. Á
efnisskránni er sem fyrr segir módett-
an Exsultate jubilate, fiðlueinleik-
urinn Rondo í D-dúr K250, og dúettar
og aríur úr óperunum Don Giovanni
og Brúðkaupi Fígarós. Ásamt Grétu
syngur Ágúst Ólafsson baritónn en
hljóðfæraleikarar verða Matthías
Stefánsson fiðluleikari, Eydís Franz-
dóttir óbóleikari og Antonía Hevesi,
píanóleikari. n
gunnhildur@dv.is
n Tónlist Mozarts er allt í kringum okkur n 257 ár frá fæðingu tónskáldsins
Gleði í Grafarvogskirkju
Matthías Stefánsson, Gréta
Hergils Valdimarsdóttir og
Ágúst Ólafsson.
Karma fyrir
fugla
Nýtt íslenskt verk, Karma fyrir
fugla, verður frumsýnt í Kassan-
um í Þjóðleikhúsinu þann 1. mars.
Verkið er eftir þær Kristínu Eiríks-
dóttur og Kari Ósk Grétudóttur
sem báðar eru myndlistamennt-
aðar og er þetta frumraun þeirra
beggja á sviði leikritunar.
Kristín hefur á undanförnum
árum vakið athygli fyrir ljóð sín,
smásagnasafnið Doris deyr og
skáldsöguna Hvítfeld sem hún
sendi frá sér fyrir síðustu jól.
„Karma fyrir fugla er í senn
ljóðrænt og sálfræðilegt verk um
afleiðingar ofbeldis, heljartök for-
tíðarinnar á sálinni, ranglæti og
fegurð,“ segir í fréttatilkynningu
frá Þjóðleikhúsinu.
Leikstjóri verksins er Kristín Jó-
hannesdóttir sem hefur leikstýrt
rómuðum uppfærslum á nýjum
íslenskum verkum, Utan gátta og
Svörtum hundi prestsins. Leikarar
í sýningunni eru Kristbjörg Kjeld,
Maríanna Clara Lúthersdóttir,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmir
Jensson, Þórunn Arna Kristjáns-
dóttir og Þorsteinn Bachmann.
Stúlknakór Reykjavíkur
Syngur sex lög eftir Mozart á
Kjarvalsstöðum.
Dustaðu rykið af
hljóðfærunum
Músíktilraunir 2013 fara fram í
Hörpu í ár og verða undankvöldin
frá 17. til 20. mars. Úrslitakvöldið
er síðan 23. mars.
Heimasíða Músíktilrauna 2013
hefur nú verið opnuð en opnað
verður fyrir skráningar í keppnina
þann 18. febrúar. Miðasala verður
á harpa.is.
Hitt húsið mun bjóða upp á að-
stöðu fyrir tónlistarfólk til að koma
og æfa lögin sín í góðu hljóð-
kerfi og verður starfsfólk hússins
á staðnum til skrafs og ráðagerða
um allt er varðar tilraunirnar og
undirbúning fyrir þær.