Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Síða 42
42 Lífsstíll 25.–27. janúar 2013 Helgarblað
S
njallsíma er hægt að nota á
annan hátt en bara að tala
í þá og senda smáskila-
boð. Símar eru nú með
mun meira af búnaði en
áður fyrr. Á venjulegum snjallsíma
er að finna myndavél, ljósnema,
hröðunarmæli, staðsetningarsendi
(GPS), áttavita, nálægðarskynjara,
snertiskjá og síðast en ekki síst loft-
vog! Þennan búnað er hægt nýta á
margan máta með öppum og leikj-
um, meðal annars til að bæta svefn-
inn.
Deildu svefninum á Facebook
Sleep as Android er Android app
sem fylgist með þér sofa. Það notar
hröðunarmælinn til að nema hreyf-
ingar í svefni. Til að ná sem bestri
mælingu þarf síminn að liggja á
dýnunni með þér. Þegar þú vaknar
þá getur þú séð á línuriti hvernig þú
svafst. Á Y-kvarðanum er djúpsvefn
neðst og draumsvefn efst. Á X-
kvarðanum er svo svefntíminn. Því
meiri hreyfing, því meira sveifl-
ast línan. Í eðlilegum svefni ættu
hreyfingar að vera mestar fyrstu
90 mínúturnar, eða þar til maður
nær djúpsvefni. Þú getur svo gefið
hverjum svefni einkunn til að halda
utan um árangur. Stillingar bjóða
líka upp á að fá áminningu hvenær
maður eigi að fara sofa, svo maður
nái sem bestum svefni. Appið býð-
ur upp á að deila svefninum á Face-
book, en það er kannski ekki fyrir
alla.
Appið getur líka fylgst með þér
ef þú talar upp úr svefni og byrj-
ar að taka upp hljóð ef það yfir
ákveðin hávaðamörk. Simon.is
finnst þetta góður kostur, enda tal-
ar hann mikið upp úr svefni og
hefur skemmt sér konunglega við
að hlusta á bullið sem vellur upp úr
honum á milli hrota.
Sleep as Android sér einnig
til þess að þú vaknir á besta tíma
og vekur þig þegar þú ert kom-
inn úr djúpum svefni og yfir í létt-
an svefn. Appið reynir að koma í
veg fyrir „snooze“ með því að láta
þig leysa hinar ýmsu þrautir til að
slökkva á vekjarklukkunni. Meðal
þeirra er að telja kindur á skjánum
og skanna hraðkóða inn á baðher-
berginu.
Hægt er að nálgast appið í
Google Play Store í Android-sím-
um og er það frítt til tveggja vikna.
Eftir það þarf að greiða rétt undir 2
evrum.
Sleep Cycle fyrir Iphone
Þeir sem eru með iPhone-síma
geta nálgast mjög svipað app, en þó
ekki frá sama framleiðanda. Appið
virkar í grunninn eins, síminn sefur
með þér og fylgist með hreyfingum.
Hann skráir svo svefninn og byrjar
að vekja þig við léttan svefn innan
30 mínútna ramma. Sleep Cycle
er aðeins einfaldara en Sleep as
Android, en sinnir því sama. App-
ið er fáanlegt í iTunes App Store og
kostar $ 1,24. n Atli Yngvi Stefánsson
Gerðu snjall-
símann snjallari
n Hægt að fylgjast með djúpsvefni og draumsvefni
Vaknað á hárréttum tíma
Sleep as Android-forritið vekur
þig á hárréttum tíma, þegar þú
ert komin úr djúpsvefni og tekur
upp ef þú talar upp úr svefni.
F
itblit Flex er nýtt í hópi tækja
sem skrásetur árangur í lík-
amsrækt. Tækið er sett á úln-
liðinn og líkt og önnur tæki
mælir það fjölda skrefa, vegalengd,
hitaeiningar, mínútur og gæði
svefns. Allar upplýsingar eru svo
sendar í iPhone eða Android-síma
með Blue Tooth. Auk þess er hægt
að nota Fitblit Flex sem vekjara-
klukku sem vekur þig með léttum
titringi.
F
yrir skömmu tilkynnti Google
að leiðsagnarkerfið Google
Navigation verði í boði í fleiri
löndum en hingað til hef-
ur það aðeins verið í boði í stórum
löndum í Evrópu og N-Ameríku.
Með nýjustu uppfærslunni bæt-
ast við minni lönd og þar á með-
al Ísland. Sagt er frá þessu á tækni-
síðunni simon.is. Þar segir að vert sé
að taka fram að Navigation hlutinn
sé ekki enn virkur fyrir Ísland en gera
megi ráð fyrir því innan skamms.
Með nýlegri uppfærslu skilji Google
talaða íslensku og því verði áhuga-
vert að sjá hvort hægt verði að stýra
Google Navigation með raddstýr-
ingu. Simon.is mun birta ítarlega
umfjöllun um notkun Navigation á
Íslandi þegar kerfið verður virkt.
Væntanlegt á Íslandi
Fylgist með plöntunni fyrir þig
N
ú er komið á markaðinn
sniðugt tæki fyrir þá sem
eru ekki með nógu græna
fingur. Það kallast Par-
rot Flower Power og er stung-
ið í moldina í blómapottinum.
Þar nemur það sólarljós, raka í
mold, hita og áburð og sendir
svo upplýsingar yfir í síma eða
tölvu með Bluetooth 4.0. Tækið
inniheldur upplýsingar um nær
6.000 plöntutegundir til þess að
þú sjáir örugglega á réttan máta
um plöntuna þína. Þá þarftu ekki
að hafa áhyggjur af því að skipta
um rafhlöður því tækið gengur
fyrir venjulegum AA-rafhlöðum
í hálft ár.
Nýtt tæki í líkamsrækt