Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Qupperneq 44
Hægri skytta
Ásgeir Örn Hallgrímsson
28 ára – Paris HB
í Frakklandi
Ásgeir hefur farið á
fjölmörg stórmót með ís-
lenska landsliðinu og reynst
því vel. Hann hefur sérstaklega verið
sterkur í vörn. „Ásgeir verður þarna
áfram, það er engin spurning,“ segir
Einar sem telur að Ásgeir nýtist best í
vörn og sem afleysingamaður í sókn.
Einar vonast þó til þess að Alexander
Petersson muni leika með liðinu næstu
árin.
Rúnar Kárason 24 ára –
Füsche Berlin í Þýskalandi
Einar segist vonast til
þess að Rúnar Kárason
verði framtíðarleikmaður í
íslenska landsliðinu. Rúnar hefur verið
meiddur undanfarið og var þess vegna
ekki með á HM á Spáni.
Hægra horn
Arnór Þór Gunnarsson
25 ára – Bergischer HC í
Þýskalandi
Einar bendir á að
Arnór hafi komið mjög
flottur inn á HM og hafi alltaf
verið mjög öflugur. „Hann hefur
hins vegar haft erfiða samkeppni
undanfarin ár.“
Sigvaldi Guðjónsson
18 ára – Århus
í Danmörku
„Þetta er klárlega
strákur sem getur bankað
á dyrnar. Hann er rúmir 190 cm á
hæð og virkilega flottur strákur,“
segir Einar og bendir á að hann hafi
staðið sig vel með 18 ára landsliði
Íslands.
Leikstjórnandi
Ólafur Bjarki Ragnarsson
24 ára – Emsdetten í Þýskalandi
„Ólafur Bjarki er framtíðarleik-
maður liðsins og hefði fengið
stórt hlutverk á Spáni,“ segir Einar
um Ólaf Bjarka sem hefur verið yfirburða-
maður í íslensku deildinni undanfarin misseri,
eða þar til hann samdi við Emsdetten í næst
efstu deild í Þýskalandi. Einar bendir þó á að
Snorri Steinn Guðjónsson sé í frábæru formi
og muni vonandi leiða sóknarleik liðsins
næstu árin.
Arnór Atlason
28 ára – Flensburg í Þýskalandi
Arnór þarf vart að kynna en
hann hefur verið máttarstólpi í
liðinu undanfarin ár. Hann
sleit hásin í haust en nær sér vonandi fljótt
og spilar með íslenska liðinu í mörg ár til
viðbótar. Arnór getur leikið bæði sem skytta
eða leikstjórnandi, eins og hann gerir með
félagsliði sínu.
Fannar Friðgeirsson
25 ára – Wetzlar í Þýskalandi
Einar segir að Fannar sé
svolítið öðruvísi leikmaður en
til dæmis Ólafur Bjarki. Hann
verði líklega ekki leikstjórnandi liðsins en sé
meiri „jóker“ og geti nýst liðinu sem slíkur.
„Fannar er ekki fyrsti kostur en klárlega
frábær leikmaður.“
Vinstri skytta
Ólafur Gústafsson 23 ára –
Flensburg í Þýskalandi
„Ég held að Óli Gúst sé
kominn til að vera. Hann
sýndi fína takta á mótinu,“
segir Einar um FH-inginn unga, sem nýtti
mínúturnar sínar vel á Spáni. „Hann getur
líka spilað vörn – og jafnvel leyst miðju-
blokkina þar – sem er mikill kostur. Einar
segir að nafni hans Ólafur Guðmundsson
sé ekki kominn í þann gæðaflokk að leika
með landsliðinu.
Aron Pálmarsson
22 ára – Kiel Þýskalandi
Aron er þegar orðinn lykil-
maður í íslenska landsliðinu
og hefur alla burði til að verða
stórkostlegur leikmaður, ef hann er ekki
orðinn það þegar. Einar segist ekki muna
eftir leikmanni sem hafi verið eins góður
og Aron á þessum aldri frá því Nikola
Karabatic kom fram á sjónarsviðið. Aron
verður lykilmaður næsta áratuginn eða
tvo.
Róbert Aron Hostert
22 ára – Fram
Einar þjálfar Róbert hjá
Fram og segir þar fara
leikmann sem hafi mikla burði til að
fara langt. „Hann er virkilega efnilegur
leikmaður,“ segir Einar.
Vinstra horn
Stefán Rafn Sigurmanns-
son 22 ára – Rhein-Neckar
Löwen í Þýskalandi
Einar segir, spurður um
hverjir muni verða í vinstra
horninu næstu árin, að hann sjái fyrir
sér að Guðjón Valur Sigurðsson muni
leika til fertugs – hann sé og hafi alltaf
verið í frábæru líkamlegu formi. Erfitt
verði fyrir aðra að komast að allra
næstu árin. Stefán Rafn sé þó líklegur
arftaki Guðjóns.
Bjarki Már Elísson
22 ára – HK
Eins og áður segir trúir
Einar því að Guðjón Valur
verði í horninu sínu næstu
árin „ef hann nennir því“ en
segir að Bjarki Már, sem skorað hefur
sjö mörk að meðaltali í leik með HK í
vetur, sé annar tveggja sem næstir séu
í röðinni. Spurður um Odd Grétarsson,
leikmann Akureyrar, segir Einar að
bæði Bjarki Már og Stefán Rafn hafi
líkamlega yfirburði yfir hann. Miklar
kröfur séu gerðar um líkamlegt atgervi
í nútímahandbolta; hæð og styrk.
„Oddur er frábær leikmaður og hefur
allt nema þennan líkamlega þátt.“ Það
muni há honum.
Lína
Kári Kristján Kristjánsson 28 ára – Wetzlar í Þýskalandi
Kári Kristján sannaði á mótinu sem nú stendur yfir að hann er frábær
línumaður. Einar á von á því að Kári, sem er 28 ára, eigi eftir mörg
góð ár í landsliðinu. Hann tekur þó fram að Róbert Gunnarsson verði
lykilmaður á meðan hann verði á fullu.
Atli Ævar Ingólfsson 24 ára – SønderjyskE í Danmörku
Einar segir að engir augljósir kandídatar séu sjáanlegir sem framtíðar-
menn í landsliðinu, að Kára undanskildum. Hann nefnir þó að Atli
Ævar Ingólfsson eigi framtíðina fyrir sér og geti orðið góður.
Heimir Óli Heimisson 22 ára – Guif í Svíþjóð
Annar leikmaður sem Einar nefnir sem framtíðarlandsliðsmann er
Heimir Óli Heimisson, uppalinn í Haukum. „Ef hann verður duglegur
getur hann náð þessum klassa,“ segir Einar.
Mark
Björgvin Páll Gústafsson 27 ára – Magdeburg í Þýskalandi
„Björgvin á tíu góð ár eftir,“ segir Einar spurður um mark-
varðarstöðuna. Hann segist þó hafa orðið fyrir vonbirgðum
með markvörsluna á HM á Spáni – hún hafi verið undir pari.
Aron Rafn Eðvarðsson 23 ára – Haukum
„Aron verður þarna og hann gæti orðið heimsklassa markvörður,“
segir Einar sem á von á því að hann fari bráðum út í atvinnu-
mennsku. „Hann þarf að styrkja sig og öðlast meiri sprengikraft.
Þarf leikreynslu, betri skot á sig og fleiri krefjandi verkefni.“
Daníel Freyr Andrésson 23 ára – FH
„Daníel er duglegur strákur sem getur einnig orðið lands-
liðsmaður,“ segir Einar um Daníel, sem var einn af fjórum
markvörðum í æfingahópi landsliðsins fyrir HM á Spáni.
Erfitt að velja
landsliðið?
Ef svo fer sem horfir mun Aron
Kristjánsson, eða arftakar
hans síðar meir, hafa úr fjöl-
mörgum góðum leikmönnum
að velja sem til greina koma í
landsliðið.
LandsLið framtíðar
F
ramtíðin í íslenskum hand-
bolta er afar björt og þegar
horft er fáein ár fram í tím-
ann er ljóst að tveir til þrír
gæðaleikmenn muni berj-
ast um hverja stöðu í byrjunarliði
íslenska karlalandsliðsins. Þetta er
mat Einars Jónssonar, þjálfara karla-
liðs Fram í handbolta.
Ísland hefur lokið þátttöku á HM
í handbolta, þar sem nokkrir ungir
leikmenn sýndu sig og sönnuðu, í
fjarveru reyndari manna. Liðið var
afar óheppið með mótherja í 16-liða
úrslitum en þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu féll liðið úr keppni fyrir heims-
og ólympíumeisturum Frakka með
litlum mun.
Breiddin þarf að aukast
Þrátt fyrir að liðið hafi staðið sig vel
var ljóst að liðið mátti, eins og von
er, illa við því að missa þrjá til fjóra
reynslubolta úr hópnum. Aron Krist-
jánsson landsliðsþjálfari hefur sagt
að það verði hans markmið að stækka
þann hóp leikmanna sem getur spil-
að og náð árangri með landsliðinu.
Áberandi sé að auka þurfi breiddina
í landsliðinu. Um það hefur raunar
verið talað í mörg ár – og er ef til vill
ekki skrýtið þegar litið er til smæð-
ar þjóðarinnar og fjölda iðkenda.
Sem dæmi má nefna, eins og Guðjón
Guðmundsson íþróttafréttamaður
og fyrrverandi landsliðsmaður hefur
bent á, að í Þýskalandi eru handbolta-
iðkendur fleiri en öll íslenska þjóðin.
Nokkrir orðnir þrítugir
Einar Jónsson hefur þjálfað á Íslandi
um árabil og þekkir vel til þess efni-
viðar sem hér er fyrir hendi. Hann
segir við DV að framtíðin sé ákaflega
björt og margir efnilegir leikmenn
séu að verða til. DV fékk Einar til að
nefna tvo til þrjá leikmenn sem hann
telur að muni berjast um hverja stöðu
í landsliðinu eftir fimm ár eða svo.
Nokkrir leikmenn, sem nú eru orðnir
þrítugir eða eldri, munu þó vonandi
spila með landsliðinu í nokkur ár til
viðbótar. Hér eru þeir taldir upp sem
munu ef til vill leysa þá af hólmi og
leika með landsliðinu þegar horft er
nokkur ár fram í tímann. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Mikill efniviður til á Íslandi n Tveir til þrír leikmenn munu berjast um hverja stöðu
Í fremstu röð Aron Pálmarsson
mun verða lykilmaður í landsliðinu
næsta áratuginn eða tvo.
44 Sport 25.–27. janúar 2013 Helgarblað
Á nóg
eftir
Einar Jónsson,
þjálfari Fram, telur
að Guðjón Valur
gæti þess
vegna spilað
til fertugs.