Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Qupperneq 52
Söngvakeppnin
hefSt um helgina
52 Fólk 25.–27. janúar 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
25.–27. janúar
Föstudagur25
jan
Laugardagur26
jan
Sunnudagur28
jan
Verk Berstein
Eivind Aadland verður
stjórnandi á tónleik-
um Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar þar sem
flutt verða verk eftir
Leonard Bernstein sem
markaði djúp spor í menningu Bandaríkj-
anna á 20. öld sem tónskáld, hljómsveit-
arstjóri, sjónvarpsstjarna, píanisti og
kennari. Hann var gyðingur og hafa mörg
verka hans skírskotun til gyðingatrúar.
Svo er einnig farið með Chichester Psal-
ms sem byggja á Davíðssálmum en eru
sungnir á hebresku. Þrátt fyrir trúarlegan
þunga textans er tónverkið iðandi af lífi.
Hamrahlíðarkórarnir syngja undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Eldborg, Hörpu 19.30
Mýs og menn
Sett verður upp
aukasýning en Mýs
og menn er eitt af
helstu meistara verkum
bandarískra bókmennta
og birtist hér í nýrri sviðssetningu. Þessi
saga frá krepputímum þriðja áratugarins
er löngu orðin sígild. Í henni byggir John
Steinbeck á reynslu sinni sem farand-
verkamaður þar sem hann kynntist
fólki sem síðar varð innblásturinn að
persónum verksins.
Borgarleikhúsið 20.00
Yndislega Eyjan mín – 40
árum síðar
Tónleikar þar sem minnst
verður dagsins er
Vestmannaeyjagosið
hófst en það kallar enn
þann dag í dag fram
sterkar minningar. Stefán
Hilmarsson, Magni, Eyþór Ingi,
Þór Breiðfjörð, Sigga Beinteins, Margrét
Eir og Greta Salóme flytja margar af
ástsælustu perlum Eyjamanna ásamt
16 manna popp- og kammersveit og 40
manna kór.
Eldborg, Hörpu 19.30
Klúbbtónleikar
Stórsveit Reykjavíkur heldur klúbbtón-
leika á Munnhörpunni en þeir eru
framhald af sambærilegum tónleikum
sem meðal annars hafa áður verið haldnir
á Café Rosenberg og í Kaffileikhúsinu
á liðnum árum. Á þessum tónleikum
flytur stórsveitin blandaða efnisskrá
kraftmikillar stórsveitartónlistar með
góðu rými fyrir einleikara sveitarinnar.
Nálægð sveitarinnar við áheyrendur og
óformlegheit eru í forgrunni og gestir
geta notið veitinga á meðan þeir hlusta.
Stjórnandi á þessum tónleikum verður
Sigurður Flosason.
Munnharpan, Hörpu 20.30
Hjartaspaðar
Grímur og Hannes
hafa verið félagar
á dvalarheimilinu
um nokkra hríð
og dagleg rútína
þeirra er fyrir löngu
komin í fastar skorður. Þegar Gréta
flytur inn umturnast líf þeirra og fyrr en
varir hefjast óborganleg uppátæki til að
lífga upp á tilveruna og drepa leiðindin.
Öllum brögðum er beitt, löglegum sem
ólöglegum. Drephlægileg uppátæki
gamalmennanna á dvalarheimilinu
Grafarbakka sanna að lífið er ekki búið
eftir áttrætt.
Gaflaraleikhúsið 20.00
S
öngvakeppnin hefst um
helgina og verður með öðru
sniði en vanalega. Keppnin
hefst í kvöld, föstudagskvöld,
en þá keppa sex lög um að
komast áfram í úrslit. Á laugardags-
kvöldið keppa svo önnur sex lög
en þrjú lög úr hvorum riðli komast
áfram á úrslitakvöldið þann 2. febr-
úar.
DV forvitnaðist um hvað söng-
konunni og Eurovision-aðdá-
andanum Regínu Ósk finnst um
lögin í ár en Regína er þaulvanur
Eurovision-keppandi. „Mér líst bara
vel á keppnina. Þetta eru ólík lög og
það er alltaf gaman. Það eru margir
þaulvanir söngvarar í fyrri riðlinum.
Mér finnst sá riðill mjög spennandi
enda skipta flytjendur alltaf máli
þótt þetta sé lagakeppni. Það verð-
ur að gaman að sjá hvernig þetta
kemur út.“
Regína er þó ekki til í að spá fyrir
um úrslit. „En mér finnst lagið sem
Klara syngur mjög flott. Það er svona
„fresh“ og textinn er líka flottur. Erna
Hrönn er líka með skemmtilega
stemmingu í sínu lagi. Svo verður
spennandi að sjá yngsta keppand-
ann, hana Sylvíu Erlu. Þessi standa
upp úr fyrir mig,“ segir hún en bæt-
ir við að það geti vel verið að henni
snúist hugur þegar hún sjái atriðin
flutt.
„Margir af þessum flytjendum eru
svo miklir „live performers“ svona
eins og Eyþór Ingi. Það er ekki alltaf
það sama að hlusta og að horfa.
Og svo getur það líka virkað öfugt.
Stundum mætir einhver á sviðið en
það virkar einfaldlega ekki.“ n
n Þrjú lög hvort kvöldið komast áfram á úrslitakvöldið
Föstudagskvöld
Þú
Lag og texti: Davíð Sigurgeirsson
Flytjandi: Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Ekki líta undan
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir
Flytjandi: Magni Ásgeirsson
Lífið snýst
Lag: Hallgrímur Óskarsson
Texti: Hallgrímur Óskarsson og Svavar Knútur Kristinsson
Flytjendur: Svavar Knútur Kristinsson og Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Hólm
Sá sem lætur hjartað ráða för
Lag: Þórir Úlfarsson
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: Edda Viðarsdóttir
Ég á líf
Lag og texti: Örlygur Smári og Pétur Örn Guðmundsson
Flytjandi: Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Meðal andanna
Lag: Birgitta Haukdal, Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir og
Jonas Gladnikoff
Texti: Birgitta Haukdal, Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir,
Michael James Down og Primoz Poglajen
Flytjandi: Birgitta Haukdal
Laugardagskvöld
Skuggamynd
Lag: Hallgrímur Óskarsson og Ashley Hicklin
Texti: Bragi Valdimar Skúlason
Flytjandi: Klara Ósk Elíasdóttir
Til þín
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Texti: Sveinn Rúnar Sigurðsson og Ágúst Ibsen
Flytjendur: Jógvan Hansen og Stefanía Svavarsdóttir
Stund með þér
Lag og texti: María Björk Sverrisdóttir
Flytjandi: Sylvía Erla Scheving
Vinátta
Lag og texti: Haraldur Reynisson
Flytjandi: Haraldur Reynisson
Ég syng!
Lag: Elíza Newman, Gísli Kristjánsson og Ken Rose
Texti: Elíza Newman, Gísli Kristjánsson og Hulda G. Geirs-
dóttir
Flytjandi: Unnur Eggertsdóttir
Augnablik
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir
Flytjandi: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Söngvakeppnin um helgina
Kosningasími: 900 9901
Kosningasími: 900 9902
Kosningasími: 900 9903
Kosningasími: 900 9904
Kosningasími: 900 9905
Kosningasími: 900 9906
Kosningasími: 900 9907
Kosningasími: 900 9908
Kosningasími: 900 9909
Kosningasími: 900 9910
Kosningasími: 900 9911
Kosningasími: 900 9912
Birgitta snýr aftur Mikil spenna er
í kringum Birgittu Haukdal enda hefur
ekki mikið sést af henni upp á síðkastið.
Birgitta syngur lagið Meðal andanna.
Skemmtileg stemming
Regínu Ósk líst vel á lagið sem
söngkonan Erna Hrönn flytur.
Yngsti keppandinnSylvía Erla Scheving er 17
ára, dóttir athafnamannsins Magnúsar Scheving.
Klara Ósk Klara Ósk sem margir
þekkja sem Klara Elias úr The
Charlies syngur lagið Skuggamynd.
Þrumu flytj-
andi Búast
má við flottri
sviðsframkomu
hjá Eyþóri Inga.