Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 29
113
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Taxonomy“ og nýjustu útgáfu WRB
frá 2006.7
Efst á 4. mynd en lengst til hægri
á 5. mynd er áfok það mikið að gler
(gjóska og önnur áfoksefni) verð-
ur ráðandi þáttur jarðvegsins. Þar
sem efnaveðrun hefur verið lítil og
lítið er um lífræn efni telst jarðveg-
urinn til glerjarðar, sem er þýðing
á heitinu „Vitrisol“, sem í öðrum
flokkunarkerfum er ýmist talin
sérstök jarðvegstegund, talin til eld-
fjallajarðar eða til ómótaðs jarðvegs
(Regosol, Arenosol, Entisol, eftir
því hvaða flokkunarkerfi er notað).
Íslensk glerjörð telst t.d. til eldfjalla-
jarðar samkvæmt Soil Taxonomy
en ýmissa flokka samkvæmt WRB.
Til glerjarðar (Vitrisol) teljast marg-
ar undirtegundir hérlendis, m.a.
jarðvegur á melum og söndum og
á sumum áreyrum. Nokkuð hefur
verið rætt um að gera glerjörð að
sérstakri einingu í WRB-kerfinu,
m.a. með hliðsjón af íslenskum
aðstæðum, en þess má geta að
„Vitrosol“ er sérstakur flokkur í
franska flokkunarkerfinu37 sem er
víða notað við flokkun jarðvegs.
Jarðvegskort
Svo sem áður gat var gögnum, sem
aflað var við rannsóknir á jarðvegs-
sniðum í ýmsum verkefnum víða um
landið, komið fyrir í gagnagrunni.
Rala og Landgræðsla ríkisins (L.r.)
höfðu áður gert stafrænan gagna-
grunn um jarðvegsrof á Íslandi í
mælikvarðanum 1:10 000, þar sem
rofgerðir og ýmsar aðrar upplýs-
ingar eru geymdar.38 Rofkortin voru
grunnur landupplýsinga sem nýtt-
ar voru við að draga fyrstu mörk
jarðvegsflokka, bæði á grónu landi
og auðnum. Rofkortin geyma m.a.
upplýsingar um landflokka á auðn-
um, sem eru notaðar við að draga
mörk um jarðvegsflokka þeirra, þ.e.
melajörð, malarjörð og sandjörð og
bergjörð, en nánar er fjallað um jarð-
vegsflokkana hér á eftir. Við gerð
kortsins var votlendi afmarkað m.a.
á grunni gróðurkorta Rala/NÍ og
gróðurkorts Náttúrufræðistofnunar
Íslands í mælikvarða 1:500 000.39 Þá
var hin svokallaða gróðurmynd40
stundum notuð við að draga mörk
á milli flokka, sérstaklega gróðurs
og auðna. Við mótun skila þar sem
lífrænt kolefni liggur til grundvall-
ar (mójörð, svartjörð, votjörð) voru
teknir kjarnar á langsniðum á vett-
vangi og mæld í þeim lífræn efni,
sérstaklega á Vesturlandi og Norð-
vesturlandi.
Nú er að ljúka gerð nýs stafræns
landupplýsingagrunns á vegum
LbhÍ, þar sem gróðri er skipt í 10
flokka í verkefninu Nytjaland. Upp-
lausn gagnanna (1:25 000) er mun
meiri en þarf fyrir kort af því tagi
sem hér um ræðir (1:100 000–250 000).
Grunnur Nytjalands var notaður
til að fara yfir jarðvegsflokkana og
lagfæra þar sem ástæða þótti til. Þá
eru hafnar tilraunir til að flokka
jarðveg enn frekar niður og er þar
byggt á sýnasöfnun, jarðvegsgagna-
grunni og kortagrunni Nytjalands.41
Öll stafræn vinnsla fór fram í Arc/
Info-ESRI hugbúnaðarumhverfinu.
Fyrsta útgáfa kortsins var birt á
alþjóðlegri ráðstefnu um eldfjallajörð
sem haldin var á Íslandi árið 1998
en einnig var nýlega gerð stutt grein
fyrir því í sérhefti Jökuls um jarð-
fræði Íslands.42 Kortið hefur verið
5. mynd. Tengsl jarðvegsflokka sortujarðar og mójarðar (x-ás) við sýrustig, kolefnismagn og leir. Glerjörð er sýnd lengst til hægri en mójörð
lengst til vinstri. Leirmagn (rauð lína) er mest í votjörð og brúnjörð, en lágt sýrustig kemur í veg fyrir myndun allófans í svartjörð, en eins
og sjá má fellur pH (blá lína) niður til vinstri á grafinu. Magn lífrænna efna (græn lína) er notað til að skilgreina mörk á milli flokkanna.
– Selected soil properties and the soil classes. Clay content (red line) is highest in the in the Gleyic and Brown Andosols but drops rapidly
in the Histic Andosol with lower pH (blue line). Organic carbon is used to define the classes (green line) and is lowest in the Vitrisol.
78 3-4 LOKA.indd 113 11/3/09 8:32:54 AM