Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 36
Náttúrufræðingurinn
120
svokölluðum birkiskeiðum,44 en
síðan blotnaði landið aftur.
(4) Aðrir jarðvegsflokkar
Áfok og vatnsstaða, ásamt skiptingu
jarðvegsins í sortujörð, mójörð og
glerjörð, eru meginforsendur fyrir
flokkuninni sem hér hefur verð lýst.
Ýmsir aðrir þættir geta þó haft áhrif
á myndun jarðvegs á Íslandi, t.d.
jarðvegsrof, loftslag og önnur móð-
urefni (kalk) á nokkrum svæðum
landsins. Þannig myndast frerajörð
(Cryosol) þar sem sífreri er í jörðu.
Jarðvegur sífrerasvæða er jafnan
talinn sérstök jarðvegstegund og
er afar algengur á norðurslóðum.
Íslensk frerajörð (Cryosol) hefur þó
einnig einkenni eldfjallajarðar, en
slíkt sambland er óalgengt í heim-
inum. Sífrerasvæði hérlendis, þ. á m.
rústasvæðin, teljast því afar sérstæð
á heimsvísu með tilliti til jarðvegs-
fræði. Ekki hafa farið fram sam-
ræmdar rannsóknir á hvar sífreri
finnst í jörðu hérlendis, en telja má
víst að hann sé mun algengari en
sýnt er á jarðvegskortinu. Þannig er
líklegt að sífreri sé í hálendissvæð-
um á Norðurlandi.
Í skriðum og ofan gróðurmarka
er jarðvegur oft mjög grýttur og
lítið um eiginleg moldarefni (< 2
mm), sérstaklega leir og lífræn efni.
Þennan jarðveg nefndi Þorsteinn
Guðmundsson klapparjörð (Lepto-
sol), en hugtakið bergjörð er notað
hér; það gerir ekki greinarmun á
yfirborðsgerð en tekur til hrauna,
klappa, malar o.s.frv. WRB-kerfið
hefur einnig sérstakan flokk fyrir
mjög grunnan jarðveg, sem nefnist
„Regosol“. Heitið er dregið af gríska
orðinu „rhegos“ sem þýðir hula eða
kápa. Oft er þessi þunna kápa afleið-
ing jarðvegsrofs, t.d. á Miðjarðar-
hafssvæðinu, en getur einnig verið
þunnur jarðvegur sem er ungur að
árum. Þorsteinn Guðmundsson25
nefndi þennan jarðveg frumjörð. Við
höfum farið þá leið sem notuð er
í Soil Taxonomy að sleppa dýpt-
arskilyrðum fyrir flokka sortujarðar
og glerjarðar. Því er þessi flokkur
ekki notaður að sinni, en vera má að
hann verði notaður á seinni stigum.
Víða við Breiðafjörð og á Vest-
fjörðum eru kalksteinsfjörur sem
hafa áhrif langt upp á landið en
jarðvegsfræði þessara svæða er lítið
könnuð. Kalkjörð er þó sannarlega
sérstök jarðvegsgerð á þessum
svæðum, en hefur litla heildar-
útbreiðslu á landsvísu.
Lokaorð
Jarðvegskortið af Íslandi1 sem hér
er kynnt er í grófum mælikvarða
og tekur aðeins til efstu laga flokk-
unar jarðvegs. Útgáfa þess bætir
þó úr brýnni þörf og auðveldar
mönnum að samræma þekkingu
um íslenskan jarðveg. Að auki set-
ur kortið íslenskan jarðveg í alþjóð-
legt samhengi, því upplýsingarnar
eru notaðar á alþjóðlegum jarðveg-
skortum (jarðvegskort Evrópu,43
jarðvegskort heimskautasvæð-
anna o.fl.45). Það sýnir vel sérstöðu
íslenskrar moldar, en á Íslandi er
að finna stærsta svæði eldfjallajarð-
ar (Andosol) í Evrópu; útbreiðsla
hennar á Íslandi er líklega um 5%
slíks jarðvegs í heiminum. Hið bas-
íska áfok, mikil útbreiðsla auðna og
steinefnaríkt votlendi með sortu-
eiginleika gerir íslenskan jarðveg
sérstæðan á heimsvísu og þess
virði að honum sé gefinn meiri
gaumur.
Jarðvegskortið er áfangi á leið
ungrar vísindagreinar á landsvísu,
enda þótt hún eigi sér langa hefð í
þéttbýlli löndum – enda er menn-
ing,46 fæða og klæði jarðarbúa háð
þessari mikilvægu auðlind. Við
væntum þess að endurbætt flokkun
og mun nákvæmara jarðvegskort líti
dagsins ljós innan fárra ára.
Summary
A soil map of Iceland
Icelandic soils are predominantly
Andosols, which are soils typical of ac-
tive volcanic regions. Andosols develop
unique physical and chemical proper-
ties which are attributed to their colloi-
dal constituents consisting of allophane,
imogolite and ferrihydrate clays on one
hand and organic constituents on the
other. The parent materials, mostly con-
sisting of volcanic glass, also give the
soils special characteristics. The paper
describes the development and main
classes of a designated soil classifica-
tion for a soil map of Iceland, which
already is in use for multiple purposes.
The classification system draws from
the WRB system7 and Soil Taxonomy
but also considers earlier work by
Björn Jóhannesson19 and Þorsteinn
Guðmundsson.25 The paper explains
the concepts of the classification and the
properties of the main classes. It sepa-
rates between; 1) andic soils, which are
Brown Andosols, Gleyic Andosols and
Histic Andosols; 2) Vitrisols, soils of
deserts, which are divided into Cambic
Vitrisols, Gravelly Vitrisols, Arenic
Vitrisols and Pumice Vitrisols iii)
Histosols, and iv) other soil types such as
Cryosols and Leptosols (see figure 3).
The soil map was constructed based on >
80 soil pedons sampled for this purpose,
together with analysis of soils from core
sampling placed at strategic locations
and a database for various soil analyses
stored at the Agricultural University. The
map is presented digitally in the scale of
1:250 000. Its information is used in inter-
national soil maps such as the European
Soil Atlas.43 Substantial eolian redistri-
bution of basaltic volcanic materials is
one of the characteristics of the Icelandic
soil environment, which is considered in
the classification scheme (figure 4). Many
Icelandic soil types are rather unique in
the world, such as the Histic Andosol,
which combines andic soil properties
and the organic soils of the Arctic. The
Vitrisols, which are widespread in
Iceland, are also quite unique because of
the basaltic nature of the vitric (volcanic
glass) materials.
78 3-4 LOKA.indd 120 11/3/09 8:33:17 AM