Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 74
Náttúrufræðingurinn
158
k Rökin voru þau að svertingjar væru afkomendur Cannan sem á var lögð sú bölvun að hann skyldi vera þjónn þjóna (eða þræll þræla) fyrir þá sök að Ham
faðir hans sá föður sinn nakinn.
Heim ild ir
Darwin, C. 1964. On the Origin of Species. Harvard University Press. 1.
Bls. 288–289.
Bryson, B. 2003. A short history of nearly everything (1st edition ed.). 2.
Broadway Books. 544 bls.
Stefoff, R. 1996. Charles Darwin and the evolution revolution. New 3.
York: Oxford University Press. 128 bls.
Þorsteinn Vilhjálmsson 2002. „Hvernig sýndi Darwin fram á þróunar-4.
kenninguna?“ Vísindavefurinn, http://visindavefur.is/?id=2364.
Skoðað 7.5.2008.
Einar Árnason 2009. „Hvað eru til margar tegundir af þróunarkenning-5.
unni og hvað kallast þær?“ Vísindavefurinn, http://visindavefur.is/?id=85.
Skoðað 7.12.2008.
Plaine, H.L. 1962. Darwin, Marx, and Wagner: A symposium. Colum-6.
bus, Ohio State University Press. 165 bls.
Halldór Laxness 1957. Brekkukotsannáll. Vaka-Helgafell, Reykjavík. Bls. 1.7.
John van Whyhe 2008. The Complete Work of Darwin Online. 8. http://darwin-
online.org.uk/content/frameset?itemID=A33&viewtype=text&pageseq=1.
Skoðað 7.12.2008.
Sears, P.B. 1950. Charles Darwin: The naturalist as a cultural force. New 9.
York, Charles Scribner’s Sons. 124 bls.
Malthus, T. R. 1798. An Essay on the Principle of Population. J. Johnson, 10.
London.
Novacek, M.J. 2006. USA Today (Society for the Advancement of Educa-11.
tion) 134. 52. (Tilvitnun á ensku: “… nothing in biology makes sense
except in light of evolution”.)
Dawkins, R. 2008. The Genius of Charles Darwin (heimildamynd). 12.
Channel 4.
Dewey, J. 1965. The influence of Darwin on philosophy: And other 13.
essays in contemporary Thought (1. útg.). H. Holt and Company,
Bloomington. 309 bls.
Dawkins, R. 1976. The selfish gene. Oxford University Press, London. 224 bls.14.
Alighieri, D. Die Göttliche Komödie. Berlin: Verlag von Th. Knaur 15.
Nachf. 540 bls.
Friedman, M. 1962. Capitalism and Freedom. University of Chicago Press. 16.
202 bls.
Hodge, J. & Radick, G. 2003. The Cambridge companion to Darwin. Cam-17.
bridge University Press. 486 bls.
Heiða María Sigurðardóttir 2008. „Hver var Francis Galton?“ Vísinda-18.
vefurinn 17.11.2005. http://visindavefur.is/? id=5413. Skoðað 7.12.2008.
Um höfundinn
Kári Gautason (f. 1989) stundar nám á náttúrufræði-
braut Menntaskólans á Akureyri og er að hefja sitt síðasta
ár. Kári var skiptinemi í Nýja-Sjálandi 2006–2007 og
hyggur á búfræðinám við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri að loknu stúdentsprófi næsta vor.
Póst- og netfang höfundar
Kári Gautason
Grænalæk
690 Vopnafirði
iskallinn@gmail.com
Dökka hlið darwinismans,
kynhreinsunarstefnan –
tengdist hún Darwin?
Það er ekki allt fallegt sem teng-
ist nafni Darwins. Frændi Darw-
ins, Francis Galton, var einn af
aðalhöfundum hinnar svokölluðu
kynhreinsunarstefnu (e. eugenics).
Galton taldi að það mætti rekja
félagsleg vandamál til úrkynjunar
fátæklinga og því væri hægt að bæta
mannkynið umtalsvert með því að
rækta betra fólk.18 Einnig taldi hann
að það ætti ekki að koma í veg fyrir
samkeppni meðal einstaklinga því
að þá væri verið að koma í veg
fyrir náttúruval. Galton var gríð-
arlega fær í tölfræði og taldi að
það væri hægt að bæta mannkynið
umtalsvert með einbeittri ræktun.
Andstaða við þessa hreyfingu varð
fljótt vart. Félagsfræðingar töldu að
umhverfisáhrif í uppeldi væru ráð-
andi þáttur frekar en erfðir. Þeir gátu
bent á menn á borð við Abraham
Lincoln sem kominn var af fátæku
fólki. Reyndar þarf ekki að leita út
fyrir landsteinana því á Íslandi eru
fjölmörg dæmi um hæfileikaríkt fólk
komið af fátæku fólki. Steinn Steinarr
skáld er gott dæmi.
Þessar hugmyndir fengu mikinn
hljómgrunn í Þýskalandi sem sýndi
sig á fjórða áratug 20. aldar þegar sam-
þykkt voru lög sem bönnuðu hjóna-
bönd gyðinga og Þjóðverja, neyddu
fatlaða til að fara í ófrjósemisaðgerðir
og svo framvegis. Stefna þessi end-
aði í hryllingi helfararinnar þegar
nasistar gerðu tilraun til að útrýma
því fólki sem þeir töldu ofaukið.
Það er þó rangt að tengja Darwin
við slíka mannvonsku. Darwin sagði
að þótt hægt væri að færa rök fyrir
því að hjálp til handa hinum sjúku
væri slæm fyrir mannkynið þá bryti
það í bága við það sem er göfug-
asti hluti mannsins. Það var þó
ekki aðeins í Þýskalandi sem áhugi
var fyrir að bæta mannkynið með
kynbótastarfi. Í Bandaríkjunum og
Bretlandi var mikill áhugi fyrir kyn-
hreinsunarstefnu. Kynhreinsunar-
stefna tengist Darwin óbeint að því
leyti að verk hans voru notuð til að
réttlæta allskyns ódæði. Þó er ekki
rétt, eins og sumir gera, að kenna
Darwin um ódæði sem framin voru.
Það er hægt að nota margskonar rit
til réttlætingar á illverkum. Jafnvel
Nýja testamentið var notað á 19.
öld í Bandaríkjunum til að réttlæta
þrælahald á öðru fólki.k
Lokaorð
Áhrif Darwins á heiminn eru óum-
deilanleg. Hann gaf anda hugsunar
lausan tauminn svo ekki varð aftur
snúið.
Rétt er að leiða hugann að því í
lokin hvert hafi verið mikilvægasta
framlag Darwins til vísinda. Að
mínu mati er það rétturinn á frjálsri
hugsun og það að nýta vísindin til
að svara spurningum sem fram að
þeim tíma hafði verið svarað með
trúarbrögðum. Spurningarnar hver
erum við, hvaðan komum við og
hvað erum við eru allt spurningar
sem Darwin leitaðist við að svara.
Darwin hraðaði á átökum vísinda
og trúarbragða um fylgjendur.
Andi framþróunar var kominn úr
flöskunni og tækniframfarir síðan
þá bera vott um mátt vísindanna.
Darwin stendur með mönnum á
borð við Newton og Galíleoó sem
risi í sögu hugsunar.
78 3-4 LOKA.indd 158 11/3/09 8:33:49 AM