Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 6
Náttúrufræðingurinn
6
Við breyttar aðstæður í þjóðfélag-
inu haustið 2008 varð ljóst að enn
einu sinni yrði bið á byggingu nátt-
úruminjasafns. Sú bjartsýni sem ríkt
hafði í þjóðfélaginu snerist á hvolf
og nokkur svartsýni hefur laumað
sér inn í alla umræðu. Ég geri mér
ljóst að ekki verða gefin loforð um
byggingu nýs safns á allra næstu
árum en ég tel að það sé hægt að
gera ansi margt fyrir nýtt og öflugt
náttúruminjasafn á næstu árum án
þess að það kosti mikla peninga. Ég
leyfi mér að fullyrða að allir nátt-
úrufræðingar eru með á þeim vagni
sem stefnir að öflugu safni, og við
þurfum að fá ráðamenn með okkur
á þann vagn svo að stjórnmálamenn
og aðrir þeir sem hafa með fjármál
að gera og koma að ákvörðunum
í málum sem þessu hafi skilning á
mikilvægi málsins og séu tilbúnir til
að setja safnið í forgang þannig að
hafist verði handa þegar betur árar.
Verum viðbúin þegar aðstæður í
þjóðfélaginu batna og verða okkur
hliðhollari þannig að hægt verði
að hefja framkvæmdir við nýtt nátt-
úruminjasafn.
Félagið og starfsemi þess
– núverandi og söguleg
Nú mætti ætla að þegar félagið gaf
ríkinu náttúrugripasafnið, sem hafði
verið hryggsúlan í starfseminni,
myndi Hið íslenska náttúrufræði-
félag e.t.v. lognast út af. Það gerðist
sem betur fer ekki og á þeim rúmlega
60 árum sem liðin eru frá því safnið
fór til ríkisins hefur félagið m.a.
starfað að vísindamiðlun. Helsta
markmið félagsins hefur alla tíð ver-
ið að stuðla að öflun þekkingar um
náttúru Íslands og að miðla henni
til sem flestra. Þetta hefur félagið
gert á ýmsan hátt fyrir utan að reka
safnið fyrstu tæplega 60 árin, m.a.
með fræðsluferðum, mánaðarlegum
fræðslufundum yfir vetrartímann
og með útgáfustarfsemi.
Fræðslufundir félagsins, sem á
árum áður voru kallaðir samkomur,
hafa verið haldnir óslitið í 83 ár
en fyrsta samkoman var haldin
þann 29. desember 1923. Í nær tvo
áratugi voru samkomurnar haldnar
í Náttúrugripasafninu eða í Mennta-
skólanum en í kringum 1940 fluttust
erindin í 1. kennslustofu Háskóla
Íslands og síðar í Lögberg og Öskju.
Erindin höfðu því verið í húsakynn-
um Háskóla Íslands í hátt í 70 ár
þegar stjórn félagsins þáði boð um
að halda þau í sal Menntaskólans
við Sund sl. vetur vegna þess að
félagið réð ekki við hátt leiguverð
Háskólans. Það var með söknuði
sem við fórum frá Háskólanum
vegna langrar sögu þar, og enn
erum við ekki úrkula vonar um að
Háskólinn bjóði okkur aftur til sín.
Félagið hefur gefið Náttúrufræð-
inginn út frá árinu 1941. Þegar
félagið keypti Náttúrufræðinginn
hafði hann komið út í 10 ár en
stofnendur og eigendur tímarits-
ins voru Guðmundur G. Bárðarson
jarðfræðingur og Árni Friðriksson
fiskifræðingur. Frá því árið 1952
hefur Náttúrufræðingurinn verið
félagsrit Hins íslenska náttúrufræði-
félags og félagsmenn fengið ritið
sent heim. Náttúrufræðingurinn
hefur verið einn helsti vettvangur
náttúrufræðinga til að koma nið-
urstöðum rannsókna sinna á fram-
færi innanlands.
Sú vísindamiðlun sem Hið
íslenska náttúrufræðifélag hefur
staðið fyrir í öll þessi ár er möguleg
vegna allra þeirra náttúrufræðinga
og annarra sem eru tilbúnir til að
leggja sitt af mörkum. Félagið er ein-
staklega lánsamt að eiga svo marga
velunnara, sem eru boðnir og búnir
þegar leitað er til þeirra, og vil ég
nota tækifærið til að þakka öllu því
góða fólki sem hér er statt og hefur
aðstoðað í gegnum árin.
Við getum verið hreykin af sögu
Hins íslenska náttúrufræðifélags en
með starfsemi sinni í 120 ár hefur
það sinnt fræðslu um náttúru Ís-
lands auk þess sem tvær ríkisstofn-
anir hafa orðið til á grunni þess
safns sem félagið gaf ríkinu árið
1947. Þetta eru Náttúrufræðistofn-
un Íslands og Náttúruminjasafn
Íslands. Af þessu erum við stolt
og viljum enn um ókomna tíð ýta
undir og taka þátt í því að miðla
þekkingu um náttúru Íslands og
stuðla þannig að aukinni virðingu
fólks fyrir náttúrunni.
Um höfundinn
Kristín Svavarsdóttir (f.
1959) hefur verið for-
maður Hins íslenska
náttúrufræðifélags frá
2002–2009. Hún lauk
doktorsprófi í plöntuvist-
fræði frá Lincoln-háskóla
í Nýja-Sjálandi. Kristín er
sérfræðingur í vistfræði
hjá Landgræðslu ríkisins.
80 1-2#loka.indd 6 7/19/10 9:50:28 AM