Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 75

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 75
75 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags vandamál sem hér eru til umræðu. Sú rekbeltasaga er bæði illa þekkt og flókin. Reikningar sýna þó að mót- sagnir aldurs og rekhraða leysast ekki nema gert sé ráð fyrir stórum flísum og fleygum af fornu bergi í íslensku jarðskorpunni. Það er að vísu auðveldara að hugsa sér að slíkar flísar leynist óséðar í skorp- unni ef rekbeltaflutningar hafa verið tíðir og óreglulegir og að rekbeltin hafi ýmist stokkið til austurs eða vesturs í tímans rás, heldur en ef þessir flutningar hafa verið fáir og reglulegir. Vandamálið er að enginn hefur getað sýnt fram á hvar þetta forna berg er að finna. Lokaorð Ísland er breiðara frá austri til vest- urs en það ætti að vera samkvæmt grunnforsendum sem lengi hafa verið teknar góðar og gildar um aldur, rekhraða og framvindu jarð- sögunnar. Á þetta hefur oft verið bent.7,23,24,26 Gerpir er of langt í austri og Hrafnseyrareldstöðin of langt í vestri. Það er raunar nánast sama hvaða megineldstöð á landinu er skoðuð – þær virðast allar vera komnar of langt frá ætluðum upp- runastað sínum í gosbeltunum.25 Rekhraðareikningar sýna of mikinn hraða. Þetta er hugsanlega sýndar- rekhraði en ekki raunverulegur rek- hraði, en af hverju hann kemur fram er óútskýrt. Menn hafa haft mismun- andi skoðanir á þróun landreks og gliðnunar á Íslandi og sett fram mis- munandi líkön af henni.4,5,21,22,27,28 Ekkert þeirra leysir þann vanda sem hér er bent á. Spurningunni sem varpað var fram í byrjun greinarinnar um uppruna Gerpis hefur ekki verið svarað. Hins vegar má ljóst vera að einhvers staðar er veila í þekk- ingunni og villa í grunnforsend- unum. Annaðhvort er aldur Gerpis vanmetinn og aldursgreiningarnar rangar eða að rekhraðinn til lengri tíma litið er vanmetinn, eða þá hitt að jarðsaga Íslands og hegðun gosbelta er allfrábrugðin því sem talið hefur verið. Summary Where did the Barðsnes Central Volcano originate? Gerpir, the easternmost promontory of Iceland, is part of the old and extinct Barðsnes Central Volcano that during the last 13–14 million years has drifted towards east, away from its origin inside one of the volcanic belts. In NW-Iceland is the Hrafnseyri Central Volcano of sim- ilar age as Gerpir that has been drifting towards west away from its origin in- side a volcanic zone. The petrology and stratigraphy of Gerpir and Hrafnseyri central volcanoes indicate that they orig- inated inside a rift zone, not in a flank zone. But where was this rift zone or zones? In Northern Iceland two such zones are known, the extinct Húnaflói rift zone and the active N-Iceland rift zone. Calculations, using 1.8 cm/yr spreading rate for Iceland, show that Gerpir can only have reached its current location 150 km east of N-Iceland rift axis by very asymmetric spreading with high eastward drift. Same calculations, on the other hand, show that Hrafnseyri Central Volcano can only have reached its current location, 150 km east of the Húnaflói rift axis, by very asymmetric spreading with high westward drift. This is a dilemma, there is a contradic- tion between the suggested spreading rate and the rock age. New ideas about more frequent rift jumps in Iceland than previously suggested have been emerg- ing in recent years. These ideas do not solve the problem. Ancient crustal wedg- es hidden deep below the surface can explain the apparent high drift rate but no such wedges are known. 80 1-2#loka.indd 75 7/19/10 9:53:21 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.