Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 67
67
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
snúið sér snöggt og stórar kvarnir
gætu hamlað þessum hröðu hreyf-
ingum þar sem fiskarnir yrðu of
næmir fyrir hreyfingunum.6
Stóra heyrnarkvörnin er breyti-
legri að stærð og lögun en litla
heyrnarkvörnin eða jafnvægiskvörn-
in.6 Erfitt er að segja fyrir víst hvaða
þýðingu mismunandi lögun kvarna
hefur, en hún er væntanlega tengd
lífssögu tegundanna. Rannsóknir
benda til þess að fisktegundir sem
hafa sérhæfða heyrn hafi sérstaka
lögun kvarna. Til dæmis hafa fiskar
sem lifa á miklu dýpi flóknari lögun
kvarna en þeir sem eru grynnra.7
Djúpsjávartegundir sem lifa í myrkri
nota heyrn frekar en sjón.
Lögun kvarna getur einnig verið
mismunandi milli einstaklinga af
sömu tegund (7. mynd). Sýnt hefur
verið fram á það, með því að skoða
lögun þorskkvarna sama stofns sem
voru í mismunandi umhverfi, að
bæði erfðafræðilegir þættir og um-
hverfi hafa áhrif á lögun kvarna.
Þessir einstaklingar uxu mishratt
og mynduðu kvarnir af mismun-
andi lögun; það bendir til þess að
umhverfið hafi áhrif á lögunina.8
Á hinn bóginn uxu einstaklingar af
mismunandi stofnum á svipuðum
hraða en mynduðu kvarnir af mis-
munandi lögun og það bendir til
áhrifa erfða á lögunina.8 Önnur
rannsókn sýndi að lögun þorskkv-
arna við Ísland og Kanada voru
svipuð9 þrátt fyrir erfðafræðilegan
mun á milli þessara tveggja stofna.10
Vaxtarhraðinn var svipaður hjá þess-
um tveimur þorskstofnum. Erfitt
getur verið að greina milli umhverfis-
og erfðafræðilegra áhrifa á lögun
kvarna, en áhrif umhverfisins hafa
iðulega verið talin vega þyngra.9
Kvarnir í rannsóknum
Aldurssamsetning fiskstofna
Við rannsóknir á ýmsum stofnfræði-
legum þáttum fiska er nauðsynlegt
að þekkja aldurssamsetningu stofns-
ins. Nýta má þekkingu á aldurssam-
setningu fiskstofna við mat á stofn-
stærð þeirra, fylgjast með þróun
árganga í gegnum veiðar ásamt því
að fylgjast með breytingum, svo
sem þyngd, kynþroska og lengd
eftir aldri. Rannsóknastofnanir víða
um heim safna fjölda kvarna úr
ýmsum nytjategundum. Í sumum
tegundum, m.a. og síld og laxi, er
hreistur fremur notað til að ákvarða
aldurinn. Í enn öðrum tegundum,
eins og túnfiski og hákörlum, er
aldurinn ákvarðaður með því að
lesa árhringi í hryggjarliðum. Til
að gera sér grein fyrir umfanginu
á aldurslesningu má áætla að árið
1999 hafi hátt í 2 milljónir fiska verið
aldursákvarðaðar (kvarnir, hreistur,
hryggjarliðir).4 Á Íslandi eru kvarnir
notaðar til að ákvarða aldur á þorski,
ýsu, ufsa, loðnu, urriða og bleikju,
auk ýmissa flatfiska og fleiri fiskteg-
unda.11
Aðgreining undirstofna
Líffræðileg skilgreining á stofni er:
hópur einstaklinga sömu tegundar
sem æxlast innbyrðis.12 Samkvæmt
þessari skilgreiningu er fiskstofn
einstaklingar sem eru á sama hrygn-
ingarsvæði á sama tíma ársins. Hug-
takið stofn er mikið notað í stjórnun
fiskveiða og er þá átt við þann
hluta tegundarinnar sem verið er
að stjórna. Það geta hins vegar hæg-
lega verið fleiri en einn líffræðilegur
undirstofn innan þess stofns. Flestir
fiskstofnar samanstanda af einum
eða fleiri undirstofnum.13 Með því
að skoða lögun og efnasamsetn-
ingu kvarna er hægt að greina á
milli undirstofna fiska sem hafa
verið aðskildir hver frá öðrum. Hins
vegar er ekki hægt að segja til um
hvort hóparnir séu erfðafræðilega
frábrugðnir hver öðrum og ekki
heldur hvenær aðskilnaður þeirra
átti sér stað. Þessar aðferðir hafa ver-
ið notaðar með góðum árangri við
ýmsar fisktegundir, svo sem þorsk,
ýsu og makríl.14,15,16,17 Við Ísland
hafa þær verið notaðar til að skoða
aðgreiningu þorsks sem hrygnir á
mismunandi svæðum umhverfis
landið. Með báðum aðferðum var
hægt að greina milli þriggja undir-
stofna þorsks. Þorskur sem hrygndi
fyrir Norðurlandi var frábrugðinn
þorski sem hrygndi fyrir Suðurlandi.
Einnig var þorskur sem hrygndi
á meira en 125 m dýpi frábrugð-
inn þorski sem hrygndi á minna
en 125 m dýpi fyrir Suðurlandi16,17
(8. mynd). Þessir þrír undirstofnar
aðgreindust bæði árið 2002 og 2003.
6. mynd. Stóra heyrnarkvörnin í fjórum fisktegundum: skarkola (Pleuronectes platessa),
ufsa (Pollachius virens), síld (Clupea harengus) og búrfiski (Hoplostethus atlanticus).
– Sagitta in four fish species: plaice (Pleuronectes platessa), pollock (Pollachius virens),
herring (Clupea harengus) and orange roughy (Hoplostethus atlanticus). Ljósm./
Photo: Steven E. Campana.
7. mynd. Kvarnir úr þorskum sem veiddir voru í Breiðafirði vorið 2002. – Cod otoliths from
Breiðafjörður in spring 2002. Ljósm./Photo: Ingibjörg G. Jónsdóttir.
80 1-2#loka.indd 67 7/19/10 9:53:04 AM