Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 68
Náttúrufræðingurinn
68
Niðurstöðurnar benda til þess að
þorskar sem hrygna á ákveðnum
svæðum komi aftur ári seinna inn á
sömu hrygningarsvæði. Merkingar
á íslenskum þorski hafa einnig bent
til þess að hátt hlutfall þorska sýni
tryggð við sín hrygningarsvæði.18
Uppruni og blöndun einstaklinga
Það er erfitt að fylgjast með fari
fiska. Merkingar gefa mikilvægar
upplýsingar um far þeirra. Til þess
að afla þeirra upplýsinga þarf að
merkja fiskinn en hann þarf einnig
að endurheimtast. Einnig má skoða
efnasamsetningu kvarna (eða jafn-
vel einstök efni) í hverjum árhring
fyrir sig og skoða þannig breytingar
milli ára hjá einstaklingum og jafn-
vel fylgja því eftir hvenær þeir fara
af uppeldissvæðum til hrygningar.
Einnig er hægt að skoða mun milli
einstaklinga og sjá hverjir hafa verið
í svipuðu umhverfi og hvort eða hve-
nær aðskilnaður þeirra hefur orðið.
Þess konar rannsóknir væru upp-
lagðar fyrir fisktegundir með dreifð
hrygningarsvæði en sameiginlegar
uppeldisstöðvar, eins og t.d. íslenska
þorskinn. Hrogn og seiði þorsks
berast frá aðalhrygningarsvæðum
fyrir Suður- og Vesturlandi á upp-
eldissvæði fyrir Norður- og Austur-
landi og meginþorri þorska að fimm
ára aldri er á uppeldissvæðunum.19
Þessi aðferð hefur meðal annars
verið notuð með góðum árangri við
Ástralíu þar sem hægt var að sýna
fram á að fullorðnir einstaklingar
af gullflekk (Pagrus auratus) væru
upprunnir á einu eða tveimur upp-
eldissvæðum. Eftir að einstakling-
arnir yfirgáfu uppeldissvæðin voru
þeir á flakki í tvö til þrjú ár áður en
þeir tóku sér bólfestu á einhverju
ákveðnu hrygningarsvæði.20
Efnafræði kvarna er líka hægt að
nota til að skoða hlutföll ákveðinna
undirstofna innan blandaðs hóps
á fæðuslóð. Margar fisktegundir
koma ár eftir ár á ákveðin svæði til
að hrygna, en á fæðuslóð safnast
saman einstaklingar sem hrygna
á mismunandi svæðum. Skýrt
dæmi um þetta eru anadromous ein-
staklingar (lifa að mestu í sjó en
hrygna í fersku vatni) sem hrygna
hver í sinni á en eru á sömu fæðu-
slóðum í hafi.21 Þar sem efnasam-
setning kvarna í einstaklingum sem
hrygna á sama svæði er ólík þeim
sem hrygna á öðrum svæðum má
skoða hlutföll mismunandi hrygn-
ingarstofna innan blandaða hópsins.
Einnig má rekja uppruna hrygning-
arfisks (þ.e.a.s. finna út hvar hann
var sem seiði) með því að bera
efnasamsetningu heilla kvarna úr
seiðum saman við kvarnakjarna
(innsti hringurinn í kvörninni sem
samsvarar fyrsta æviárinu) úr full-
orðnum fiski úr sama árgangi og
seiðin (til dæmis ef seiði sem safnað
var árið 2000 væru borin saman
við kvarnakjarna úr 5 ára fiski sem
safnað hefði verið árið 2005). Rann-
sókn af þessu tagi hefur verið gerð
á þorski við Ísland.22 Í henni var
rakinn uppruni þorsks sem hrygndi
á mismunandi svæðum árin 2002
og 2003 (árgangar 1996 og 1997).
Árin 1996 og 1997 voru mjög ólík.
Straumar frá hrygningarsvæðum
fyrir Suðurlandi að uppeldissvæð-
um fyrir Norðurlandi voru sterkir
1997 og við það blönduðust seiði frá
mismunandi hrygningarsvæðum.
Árið 1996 voru straumar ekki eins
sterkir og því var minni blöndun
seiða. Þessi munur í blöndun gerði
það að verkum að ekki var hægt að
greina á milli seiða frá mismunandi
hrygningarsvæðum 1997 og því ekki
unnt að rekja uppruna þess árgangs.
Forsendur fyrir þessum rannsókn-
um eru að (1) hægt sé að greina
milli hrygningarhópa/seiða, (2) sýni
séu til staðar úr öllum mögulegum
hrygningarhópum/seiðahópum og
(3) þau efni sem nota á í rannsókn-
inni breytist ekki mikið frá þeim
tíma sem þeir eru aðgreindir á vorin
og þar til þeir blandast.1 Umhverfis-
aðstæður skipta því miklu máli fyrir
þessar rannsóknir.
Far milli ferskvatns og sjávar
Um 160 fisktegundir lifa bæði í
fersku vatni og sjó (e. diadromous),
en það er tæplega 1% allra fiskteg-
unda.21 Sumar tegundir lifa meiri-
hluta æviskeiðsins í sjó en hrygna
í fersku vatni (áðurnefndar ana-
8. mynd. Aðgreining undirstofna þorsks umhverfis Ísland með lögun og efnasamsetn-
ingu kvarna. Hver litur samsvarar svæðum þar sem lögun og efnasamsetning kvarna var
svipuð. Sýnum var safnað tvö ár; 2002 (þríhyrningar) og 2003 (ferningar). – Discrimi-
nation between cod in Icelandic waters using otolith shape and chemistry. Each colour
indicates locations with similar otolith shape and chemistry. Samples were collected in
2002 (triangles) and 2003 (squares).
24°W 22°W 20°W 18°W 16°W 14°W
63°N
64°N
65°N
66°N
80 1-2#loka.indd 68 7/19/10 9:53:04 AM