Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 27
27 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Guðrún G. Þórarinsdóttir og Karl Gunnarsson Sæbjúgað brimbútur við strendur Íslands; líffræði og veiðar Náttúrufræðingurinn 80 (1–2), bls. 27–32, 2010 Ritrýnd grein Inngangur Aukning hefur verið í verðmæta- sköpun í ýmsum greinum íslensks sjávarútvegs á undanförnum árum og stafar hún einkum af aukinni vinnslu og betri nýtingu á hefð- bundnum tegundum en einnig skýr- ist hún af nýtingu áður ónýttra teg- unda. Veiðar og vinnsla á brimbút (Cucumaria frondosa) til manneldis er dæmi um nýtingu áður ónýttrar auðlindar úr hafinu við Ísland. Í þessari grein verður vikið að útliti, útbreiðslu og nýtingu sæbjúgna, einkum brimbúts við Ísland. Sæbjúgu (Holothuroidea) hafa öld- um saman verið nýtt til manneldis og lyfjagerðar, einkum í Suðaustur- Asíu. Á síðastliðnum 50 árum hafa veiðar á sæbjúgum aukist verulega í kjölfar aukinnar eftirspurnar. Stjórn- un veiða og skráningu afla hefur hins vegar verið mjög ábótavant og hefur það víða leitt til ofveiði og síðan minnkaðs framboðs. Vegna aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs í Asíu hafa stærstu markaðslöndin (Kína, Japan, Hong Kong, Taívan, Singapúr) leitað til annarra heimsálfa eftir sæbjúgum og þar með einnig eftir nýjum teg- undum, sem hafa áður lítið eða ekki verið nýttar.1 Ein þeirra nýju sæ- bjúgnategunda sem bæst hafa inn á markaði í Suðaustur-Asíu á síðustu árum er brimbútur (C. frondosa), sem eingöngu lifir í Norður-Atlantshafi. Sæbjúgu (Holothuroidea) hafa öldum saman verið nýtt til manneldis og lyfjagerðar, einkum í Suðaustur-Asíu. Á síðastliðnum 50 árum hafa veiðar á sæbjúgum aukist verulega í kjölfar aukinnar eftirspurnar. Stjórnun veiða og skráningu afla hefur hins vegar verið mjög ábótavant og hefur það víða leitt til ofveiði og minna framboðs. Vegna aukinnar eftirspurnar og minnkandi framboðs í Asíu hafa stærstu markaðslöndin sóst eftir nýjum áður ónýttum sæbjúgnategundum frá öðrum heimsálfum, þar á meðal brimbút úr Norður- Atlantshafi. Skömmu fyrir 1990 hófust veiðar á brimbút (Cucumaria frondosa) við Atlantshafsströnd Bandaríkjanna og nokkru síðar í Kanada. Við Ísland byrjuðu veiðar á brimbút árið 2003. Brimbútsveiðarnar í Norður-Atlantshafi hafa aukist hratt og er nú svo komið að af öllum sæbjúgum í heiminum er um þessar mundir mest veitt af þessari tegund. Stutt er síðan veiðarnar hófust og litlar upplýsingar til um líffræði dýranna. Það er því erfitt að spá fyrir um hve miklum veiðum stofnarnir geti staðið undir til lengdar. Góð þekking á útbreiðslu brimbúts, stofnstærð, nýliðun, vaxtarhraða, aldri og stærð við kynþroska, ásamt veiðihæfni sæbjúgnaplóga, er nauðsynleg forsenda fyrir skynsamlegri nýtingu sæbjúgans hér við land. 1. mynd. Brimbútur teygir munnarmana upp í strauminn og grípur svif og lífrænar agnir sem fljóta hjá. – Sea cucumber (Cucumaria frondosa) in feeding position. Ljósm./Photo: Erlendur Bogason. 80 1-2#loka.indd 27 7/19/10 9:51:28 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.