Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 49
49 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 104 86 m ax 6. mynd. Þáttur kísilþörunga, annarra en gjarðeskja, í stöðuvötnunum 49 raðað eftir dýptarflokkum vatnanna (mesta dýpi, Zmax). Aðeins byggt á tegundum sem komu fyrir í a.m.k. þremur vötnum og með meira en 5% af hlutfallslegu magni. – Relative abundance profiles of diatom taxa present in at least 3 lakes and with a relative abundance of more than 5% in one lake (excluding benthic Fragilaria spp.) from 49 Icelandic lakes arranged by maximum lake depth (Zmax) categories. 1. Gjarðeskjavötn Flest smágerðu, botnlægu gjarð- eskin voru ríkjandi í grunnum vötnum með tiltölulega mikla basavirkni, háa rafleiðni og mik- inn kísil. Þessir efnaþættir ein- kenndu einkum grunn lindavötn. Á meðal tegunda í þessum þör- ungahópi voru Fragilaria brevis- triata (67), F. brevistriata var. inflata (68), F. construens var. binodis (74), F. construens var. venter (75), F. elliptica (78), F. lapponica (79), F. parasitica (82), F. pinnata (83) og F. pseudoconstruens/construens (85). Dæmi um vötn í þessum flokki eru Ásbjarnavatn á Hofsafrétti og Vífilsstaðavatn. Tengsl flóru og umhverfisþátta Af þeim 16 umhverfisbreytum sem athugaðar voru í tengslum við kísil- þörungaflóruna reyndust allar nema sýrustig (pH) og súlfat (SO4) útskýra á marktækan hátt hluta af breytileika í kísilþörungagögn- unum (þvinguð hnitunargreining, p < 0,05). Sýrustigi og súlfati var þ.a.l. sleppt í frekari úrvinnslu gagnanna. Sama gilti um járn (Fe), kalsíum (Ca), kalíum (K), magnesíum (Mg) og natríum (Na). Þessum fimm breytum var sleppt þar sem þær sýndu marktæka, jákvæða fylgni við köfnunarefni (TN), basavirkni (ALK) og rafleiðni (COND), án þess þó að bæta útskýr- ingarmátt umfram það sem köfn- unarefni, basavirkni og rafleiðni gerðu. Eftir nánari tölfræðigreiningu stóðu eftir sjö umhverfisbreytur sem best útskýrðu breytileikann í kísil- þörungagögnunum. Þessar sjö um- hverfisbreytur voru meðaldýpi (MD), rafleiðni (COND), lífrænt kolefni (TOC), kísill (SiO2), köfn- unarefni (TN), basavirkni (ALK) og vatnshiti (TEMP). Í endanlegri hnitunargreiningu voru 23,8% af breytileika kísilþörungaflórunnar rakin til þessara sjö umhverfisþátta. Samkvæmt hnituninni mátti í gróf- um dráttum greina fjóra meginhópa kísilþörunga m.t.t. umhverfisþátta í vötnunum (7. og 8. mynd): 1. gjarð- eskjavötn, 2. agn- og nafeskjavötn, 3. dós- og sáldeskjavötn og 4. taf- leskjavötn. 80 1-2#loka.indd 49 7/19/10 9:52:17 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.