Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 16
Náttúrufræðingurinn 16 verið við gerð válista Alþjóðanátt- úruverndarsamtakanna árið 2009 töldust 22% hryggdýra (spendýr, fuglar, skriðdýr, froskdýr og fiskar), 35% hryggleysingja og 70% plantna vera í útrýmingarhættu.5 Þessi mikli útdauði tegunda á sér margvíslegar orsakir, sem þó má allar rekja beint eða óbeint til umsvifa mannsins, svo sem eyðing- ar búsvæða, ofnýtingar, mengunar, loftslagsbreytinga og síðast en alls ekki síst til áhrifa af framandi ágengum tegundum.8 Í Þúsaldar- skýrslu Sameinuðu þjóðanna eru ágengar tegundir taldar á meðal helstu ógna við líffræðilega fjöl- breytni1 og nefnd Alþjóðanáttúru- verndarsamtakanna um lifun teg- unda hefur lýst því yfir að ágengar tegundir séu næststærsta ógnin við upprunalegar tegundir á eftir eyð- ingu búsvæða.9 Áætlað er að um 40% tegunda sem tilgreindar eru í bandarískum lögum um tegundir í útrýmingarhættu séu þar vegna áhrifa frá framandi, ágengum teg- undum.10 Þá bendir nýleg úttekt til þess að neikvæð áhrif ágengra tegunda á líffræðilega fjölbreytni séu vanmetin á heimsvísu og virð- ast þau fara vaxandi.11 Ágengar tegundir hafa því hlotið verðskuldaða og vaxandi athygli á síðari árum, ekki einungis vegna neikvæðra áhrifa á líffræðilega fjöl- breytni heldur einnig vegna þess að rannsóknir á ágengum tegundum veita mikilvæga innsýn í ýmsa atferlisfræðilega, vistfræðilega og þróunarfræðilega ferla og auka þannig skilning á tengslum lífvera í tíma og rúmi.12–18 Hlutfall vísinda- greina sem fjalla um málefni tengd ágengum tegundum hefur hækkað ört síðustu tvo áratugi og árleg- um tilvísunum í þær hefur fjölgað hraðar en tilvísunum í greinar um stofnvistfræði og stofnferla almennt, en þó ekki eins hratt og tilvísunum í greinar er tengjast hnattrænum loftslagsbreytingum.19 Hvað er framandi, ágeng tegund? Tilfærsla tegunda, þ.e. landnám teg- unda á nýjum svæðum, getur verið náttúrulegt ferli. Fjölmörg dæmi eru um að tegundir nemi ný svæði af sjálfsdáðum, oft fyrir atbeina vinda, strauma eða annarra teg- unda en mannsins.20 Mismunandi loftslag og landfræðilegar hindr- anir, svo sem úthöf, fjallgarðar og eyðimerkur, hafa þó í mörgum til- fellum takmarkað slíka náttúrulega tilfærslu og átt stærstan þátt í að móta tegundasamsetningu sem er mismunandi eftir svæðum, löndum eða heimshlutum.21,22 Mikil breyting varð á þessu með hnattvæðingu mannsins. Menn byrjuðu markvisst að flytja nytja- tegundir um verulegar vegalengdir fyrir um 2.000 árum. Fyrir um 1.000 árum færðist flutningur tegunda í vöxt með tilkomu verslunar araba í Austur-Afríku og jókst enn frekar með nýlenduvæðingu Evrópu- manna fyrir um 350 árum.23 Segja má að hnattvæðing manna hafi byrjað árið 1492 er Kólumbus sigldi til Ameríku.8 Allt frá þeim tíma hafa tegundir verið fluttar milli landa í vaxandi mæli en flutningurinn tók annað stökk við iðnbyltinguna og hefur náð alveg nýjum hæðum síðastliðin 25 ár.24 Flutningurinn Helstu hugtök í líffræði ágengra tegunda Upprunaleg, náttúruleg, innlend (e. native, natural, indigenous, original): Tegund innan náttúrulegs útbreiðslusvæðis, þ.e. sem hefur þróast þar eða komist þangað eftir náttúrulegum leiðum. Einlend (e. endemic): Upprunaleg tegund sem finnst aðeins á einu tilteknu, afmörkuðu svæði og hvergi annars staðar. Framandi, innflutt, útlend, erlend (e. alien, introduced, exotic, foreign): Tegund utan náttúrulegs útbreiðslusvæðis, sem komist hefur þangað fyrir tilstilli mannsins, óháð því hvenær það gerðist. Með fótfestu/bólfestu (e. established, naturalized): Framandi tegund sem myndað hefur lífvænlegan (e. self-sustaining) stofn í náttúrulegu umhverfi. Ágeng (e. invasive): Framandi tegund í viðkomandi vistkerfi, sem a) sýnir mikla eða hraða útbreiðsluaukningu af eigin rammleik eða b) veldur eða er líkleg til að valda minnkun líffræðilegrar fjölbreytni, efnahagslegu eða umhverfislegu tjóni eða er skaðleg heilsufari manna. Innflutningsþrýstingur (e. propagule pressure): Mælikvarði á hversu oft eða í hve miklum mæli framandi tegund eða tegundir hafa verið fluttar inn (viljandi eða óviljandi) á ákveðið svæði. Tregðufasi (e. lag phase): Fyrsta skeið í landnámssögu ágengrar tegundar, sem einkennist af innflutningi, bólfestu, lítilli stofnstærð, takmarkaðri útbreiðslu og hægum eða engum stofnvexti. Vaxtarfasi (e. log phase, growth phase): Annað skeið í landnámssögu ágengrar tegundar, sem einkennist af örum stofnvexti og aukinni útbreiðslu. Móttækileiki vistkerfis (e. invasibility): Mælikvarði á hversu auðveldlega framandi tegund geti náð fótfestu í viðkomandi vistkerfi. Hjálpartegund (e. facilitator): Tegund sem greiðir fyrir afkomu framandi eða ágengrar tegundar. Hjálpartegund getur verið framandi eða upprunaleg. Aðlagað úr 12,14,15,17,33,49,133,144,155 80 1-2#loka.indd 16 7/19/10 9:51:00 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.