Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 9
9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
landi, af hverju og í hvaða tilgangi.
Náttúruminjasafn Íslands getur í
dag beitt sér fyrir því að svo verði
gert, svo sem í samstarfi við fjöl-
marga opinbera aðila á vegum ríkis
og sveitarfélaga. Náttúruminjasafn-
ið getur beitt sér fyrir því að benda
okkur sérstaklega á forgengileika
kenninga og þekkingar um náttúruna –
og erum við þar með komin með að
minnsta kosti eitt atriði sem greinir
stofnunina frá öðrum vísindastofn-
unum á sviði náttúruvísinda. Þetta
er mjög mikilvægt atriði og helst
í hendur við þá þróun sem orðið
hefur erlendis hjá sambærilegum
stofnunum. Þó svo að það hafi fjar-
að að einhverju leyti undan kenni-
valdi vísinda og vísindamanna á
undanförnum áratugum, þá hefur
vísindahyggjan sjaldan verið meiri.
Vísindin eru enn talin efla alla dáð
og ekki síst meðal vísindamanna
sjálfra. Fjölmörg náttúruminjasöfn
víða um heim hafa hins vegar
á undanförnum þrem áratugum
farið þá leið að efast um gildi
hreinnar vísindahyggju og nálgast
hlutverk sín af meiri gagnrýni en
áður. Söfnin hafa þar með horf-
ið frá því að gera flokkunarfræði
(taxonomy) að meginviðfangsefni
vísindalegs starf innan safnsins og
einblínt á vistfræði- og umhverf-
isrannsóknir sem meginmarkmið.
Þessari áherslubreytingu hefur síð-
an verið miðlað á sýningum og í
fræðslustarfi safnanna sem lið í því
að vekja fólk til umhugsunar og
umræðna (Weil 1997).
Ég vil sjá Náttúruminjasafn Ís-
lands sem hefur tekið alvarlega
þá breytingu sem orðið hefur á
sambandi opinberra stofnana á borð
við söfn og almennings í landinu.
Þetta er þróun sem hefur átt sér stað
erlendis og nú einnig hér á landi.
Söfn eru ekki lengur sömu stofn-
anirnar og þær voru fyrir fimm-
tíu árum, þar sem litið var á þau
sem virki vísindalegrar starfsemi
og miðlara hlutlausrar þekkingar.
Söfn eru í ríkara mæli farin að taka
sér stöðu sem vettvangur þar sem
ólíkar skoðanir heyrast og þar sem
ólík sjónarmið mætast. Það er með
öðrum orðum ekki lengur talið sjálf-
gefið að náttúruminjasöfn horfi á
hlutverk sitt fyrst og fremst út frá
sjónarmiðum vísindamanna á sviði
náttúruvísinda, heldur taki mið af
því að það sem við köllum náttúru
er margbreytilegt viðfangsefni, þar
á meðal félagslegt, menningarlegt,
andlegt, trúarlegt og fagurfræðilegt,
og að náttúran hefur gildi til með-
ferðar og afþreyingar og þannig
mætti lengi telja. Náttúruminjasöfn
hafa mætt þeim viðhorfsbreytingum
sem orðið hafa meðal almennings, í
menntakerfinu og hjá stjórnvöldum
gagnvart málefnum náttúrunnar og
gert sér far um að spegla þessar
breytingar í safnastarfi sínu, svo sem
söfnun, rannsóknum og miðlun.
Ég vil sjá Náttúruminjasafn Ís-
lands sem spyr krefjandi spurninga
en hefur jafnframt svör á reiðum
höndum um það hvað hefur verið
að gerast og er að gerast í málefnum
náttúruminjasafna á landsvísu – en á
undanförnum áratugum hafa verið
að byggjast upp söfn, setur og sýn-
ingar á sviði náttúrufræða án þátt-
töku þess miðstýringarvalds sem
Náttúruminjasafni Íslands er fært
í lögum. Náttúruminjasafn Íslands
verður að rækta samband sitt við
stofnanir sem eru nátengdar starf-
semi þess og spyrja hvernig hægt sé
að efla starfsemi þeirra, hvort hægt
sé að gera betur og um leið hvert eigi
að vera hlutverk Náttúruminjasafns
Íslands í þeirri flóru allri. Náttúru-
minjasafn Íslands á að spyrja sig að
því hvar skórinn kreppir í málefnum
Hvaða skoðun hefur Náttúruminjasafn Íslands á þeim hugmyndum sem komið nýverið hafa komið fram á borð við Heimur norðurhafa,
þar sem lagt er til að byggt sé safn og rannsóknamiðstöð á Akureyri um lífríki og menningu Norðurhafa?
Heimur Norðurhafa
Arctic Ocean World
Hugmyndir áhugahóps um byggingu safns og
rannsóknamiðstöðvar á Akureyri um lífríki og
menningu Norðurhafa
Heimur Norðurhafa - Arctic Ocean World
U M F A N G O G S T A Ð S E T N I N G
„Heimur Norðurhafa” er hugmynd að safni og sýningu á
heimsmælikvarða. Hægt er að byggja safnið upp í áföngum en
mikilvægt er að velja safninu þá staðsetningu að það hafi vaxtarrými.
Fyrsti áfangi safnsins þarf hins vegar að vera af þeirri
stærðargráðu að veki mikla athygli og áhuga, bæði hér á landi
og erlendis.
Æskilegt er að safninu verði valinn sá staður á Akureyri þar sem
aðgengi er gott. Staðsetning í göngufæri frá miðbænum hefur
mikla kosti hvað varðar ferðamenn en fyrst og fremst þarf svæðið
að bjóða þá kosti sem safnið þarfnast. Frumhugmyndir gera ráð
fyrir að svæði safnsins þurfi að vera 3-5000 fermetrar að stærð og
byggist sú viðmiðun á skoðun hliðstæðra safna erlendis.
Nákvæmt kostnaðarmat hefur ekki farið fram en gert er ráð fyrir að
stofnkostnaður geti orðið um 2 milljarðar króna.
80 1-2#loka.indd 9 7/19/10 9:50:31 AM