Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 19
19
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hryggdýra sem m.a. voru skordýra-
ætur. Það hefur valdið breytingu í
skordýrasamsetningu og skortur
er nú á frjó- og fræberum (bæði
hryggdýrum og hryggleysingjum),
sem hefur haft áhrif á gróðursam-
setningu. Slangan veldur auk þess
tjóni á rafmagnskerfi eyjunnar,
hús- og gæludýrum og getur verið
hættuleg mönnum.14,70,78
Vatnagoði (5. mynd) þykir fal-
legur og hefur verið vinsæl skraut-
planta í tjörnum. Hann er upp-
runninn í Suður-Ameríku en finnst
nú í yfir 50 löndum í fimm heims-
álfum og er talinn ein versta ágenga
vatnaplantna heims. Hann getur
tvöfaldað stofn sinn á 12 dögum
og myndar þétta gróðurhulu á yfir-
borði stöðuvatna. Þar með hindrar
hann aðgang sólarljóss og súrefnis
og getur þannig valdið marktækum
breytingum á lífríki og fjölbreytni
viðkomandi vatns. Nákvæmlega
hver breytingin verður á hverjum
stað fer eftir aðstæðum. Vatnagoði
stíflar vatnsfarvegi og torveldar því
veiði og siglingar.78,85
Pokarækja (6. mynd) var flutt inn
í Flathead River-Lake vatnakerfið í
Montana, Bandaríkjunum, um 1970
vegna tilraunar til að stækka stofn
rauðlaxins (Oncorhynchus nerka),
sem var vinsæl sportveiðitegund.
Rækjan, sem átti að verða fæða fyrir
laxinn, veitti vatnaflóm (cladocera)
og krabbaflóm (copepoda) vatna-
kerfisins harða samkeppni svo að
stofnar þeirra hrundu á örfáum
árum. Flærnar höfðu verið laxinum
mikilvæg fæðulind og þar sem hann
virtist ekki éta pokarækjuna hrundi
laxastofninn um 1986. Laxinn hafði
verið mikilvæg fæðuuppstretta
fyrir marga fugla og spendýr og í
kjölfar hrunsins sást staðbundin eða
árstíðabundin fækkun skallaarna
(Haeliaeetus leucocephalus) (úr nokkr-
um hundruðum í 25) og einnig
fækkaði í stofnum sjö annarra fugla-
tegunda og fimm spendýrategunda.
Svæðið hafði verið vinsæll ferða-
mannastaður vegna auðugs dýra-
lífs en ferðamönnum fækkaði úr
46.500 árið 1983 niður fyrir 1.000
árið 1989.77,86,87
Dæmin sem hér hafa verið
nefnd eru einungis brot af þeim
hundruðum dæmasbr. 78 sem hægt
væri að taka, en sýna vel hvernig
áhrifin geta virkað bæði upp á við
(e. bottom-up) og niður á við (e. top-
down) í fæðukeðjum og tengsla-
samböndum lífvera.
Meðal annars vegna þeirra vist-
fræðilegu áhrifa sem framandi teg-
undir geta haft, hvort sem þær
verða ágengar eða ekki, getur
tilvist þeirra einnig haft marg-
víslegar þróunarfræðilegar afleið-
ingar.13,17,18,64,67,88 Framandi tegund
í tilteknu vistkerfi getur: a) Leitt
til taps á erfðabreytileika vegna
þess að einstaklingum fækkar eða
tegundir eða stofnar deyja út. b)
Sett nýja valkrafta á þær tegundir
sem fyrir eru. Skýrt dæmi um þetta
finnst í Ástralíu þar sem framandi
körtutegund (Bufo marinus) virðist
hafa valdið stækkun á gapstærð
snáka sem éta froskana.89,90 c) Upp-
lifað nýja valkrafta á sjálfa sig vegna
samspils við tegundir og umhverfi
sem hún hefur ekki kynnst áður og
jafnframt losnað við aðra valkrafta
sem á henni voru í upprunaleg-
um heimkynnum. d) Orðið fyrir
landnemaáhrifum91 við það að
fáir einstaklingar úr upprunalega
stofninum voru fluttir til nýrra
heimkynna. Lítill erfðabreytileiki
eða óvenjuleg samsetning gena-
samsæta gæti þannig einkennt nýja
stofninn í samanburði við hinn
upprunalega. e) Valdið erfðaþreng-
ingu (e. genetic bottleneck) í öðrum
tegundum eða stofnum vegna
tímabundinnar fækkunar í þeim.
f) Myndað nýja stofna eða teg-
undir með kynblöndun sem annars
hefðu verið mjög ólíkleg, ýmist
með öðrum stofni sömu tegundar
sem fluttur hefur verið á sama
stað, með annarri framandi teg-
und, með upprunalegri tegund
eða þá að tilvist hennar veldur
kynblöndun tveggja upprunalegra
tegunda. Marktæk breyting getur
orðið á erfðum framandi tegundar
á nýjum stað á nokkrum árum eða
áratugum vegna aðlögunar92, en
þúsundir eða milljónir ára tekur
þó að mynda nýjar tegundir.93 Því
er ljóst að heildartap á tegundum
og erfðabreytileika vegna ágengra
tegunda er meira en sú mögulega
aukning sem gæti orðið.64
5. mynd. Vatnagoði (Eichhornia crassipes) þekur yfirborð þverár Salt Slough í Kaliforníu.
– Water hyacinth (Eichhornia crassipes) covers the surface of a tributary of Salt Slough,
California. Ljósm./Photos: Colin Wilson, GISD (vinstri/left) & Adam Morrillby, California
Invasive Plant Council (hægri/right).
6. mynd. Pokarækja (Mysis relicta). – Opos-
sum shrimp (Mysis relicta). Ljósm. fengin
af Wikipedia / Photo from Wikipedia.
80 1-2#loka.indd 19 7/19/10 9:51:18 AM