Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 31
31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Brimbútur heldur sig aðallega
á hörðum botni, uppi á steinum
en einnig í sandi á milli steina og
kletta og er í mörgum tilfellum
óveiðanlegur vegna staðsetningar
sinnar. Það dregur líklega úr hættu
á svæðisbundinni útrýmingu eins
og átt hefur sér stað með aðrar
sæbjúgnategundir víða erlendis.30
Einnig halda ung dýr sig á grynnra
vatni en þau eldri og brimbútar finn-
ast allt niður fyrir 300 m dýpi, miklu
dýpra en veitt er.19,22 Óvissuþáttur
er þó að ekki er vitað um þéttleika
dýranna á þeim svæðum þar sem
ógerlegt er að veiða.
Vegna lítils hreyfanleika, lít-
ils vaxtarhraða, seins kynþroska,
nýliðunar sem háð er þéttleika og
blettóttrar dreifingar er brimbút-
ur viðkvæmur fyrir ofveiði. Víða
í heiminum hafa sæbjúgu verið
ofveidd og margir stofnar þeirra
eru í hættu. Vel skipulagðar sjálf-
bærar veiðar hafa þó verið stund-
aðar í Alaska, Washingtonríki og
Kaliforníu, en í þessum tilfellum
er um að ræða aðrar tegundir sem
eru verðmætari en brimbútur og
veiðarnar því arðbærar þrátt fyrir
takmarkaðan afla.3
Lokaorð
Ásókn í veiðar á brimbút við Ísland
hefur aukist til muna á síðustu
árum og allt bendir til þess að svo
verði áfram. Þegar nýting nýrrar
tegundar hefst, vegna skyndilegrar
opnunar markaða, eru því miður
í flestum tilfellum litlar sem engar
líffræðilegar upplýsingar til um
tegundina, magn eða útbreiðslu.
Mikilvægt er því að afla upplýsinga
um líffræði íslensku fánunnar óháð
nýtingu. Hafrannsóknastofnunin
hefur kannað útbreiðslu og hlut-
fallslegt magn brimbúts á örfáum
svæðum við landið. Hafa þessar
rannsóknir gefið vísbendingar um
að tegundin sé hér í veiðanlegu
magni. Engar líffræðilegar rann-
sóknir hafa hins vegar enn verið
gerðar á brimbút við Ísland. Góð
þekking á útbreiðslu brimbúts,
stofnstærð, nýliðun, vaxtarhraða,
aldri og stærð hans við kynþroska,
sem og veiðihæfni sæbjúgnaplóga,
er nauðsynleg forsenda fyrir skyn-
samlegri nýtingu sæbjúgans hér
við land.
Summary
The sea cucumber (Cucumaria
frondosa) off the coast of Iceland
Sea cucumbers have been harvested for
human consumption in Asia for more
than a millennium, but the fisheries have
been badly managed and poorly docu-
mented and thus overfished in many ar-
eas. Recently, in response to increased
market demand and decreased supply of
sea cucumbers due to depletion of tradi-
tional resources, the exploitation of sea
cucumbers has spread to new regions and
a number of new species are now harvest-
ed. One of those species is Cucumaria
frondosa, fished in the North-Atlantic. The
fishery of C. frondosa developed on the
east coast of U.S.A. and Canada during
the 1990s and has expanded since then.
In Iceland this fishery started experi-
mentally in 2003 and has since increased.
Like many previously non-exploited
resources for which markets emerge sud-
denly, there is practically no information
on population structure or the biology of
sea cucumbers in Icelandic waters. The
size of the population, growth pattern,
size at sexual maturity, recruitment and
the rate at which populations are being
exploited are all necessary information,
for rational management of the stocks.
80 1-2#loka.indd 31 7/19/10 9:51:43 AM