Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 51
51 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags flokkanna stöfuðu af fjórum algeng- ustu þörungahópunum, þ.e. hin- um smágerðu, botnlægu agn- og gjarðeskjum og sviflægu dós- og sáldeskjunum (3. tafla). Í lindavötn- unum voru gjarðeski langsamlega mest áberandi þörungahópurinn (3. tafla). Í dragavötnunum voru agn- og gjarðeski álíka mikið áberandi, en í dalavötnunum var hlutdeild fjögurra helstu þörungahópanna nokkuð jöfn. Flóra heiðavatnanna 8. mynd. Dreifing 126 algengustu tegunda og afbrigða kísilþörunga í stöðuvötnunum 49 m.t.t. umhverfisþáttanna sjö sem best út- skýrðu breytileikann í kísilþörungaflórunni. Hringirnir gefa gróflega til kynna fjórar helstu gerðir þörungahópa í vötnunum. Númer vísa til auðkennistölu tegunda (sjá 1. töflu). – Distribution of common diatom taxa (n = 126) in Icelandic lakes with respect to 7 environ- mental variables that best describe the variation in the diatom assemblages in a canonical correspondence analysis (CCA). Ellipses broadly encompass the position of 1. small benthic Fragilaria, 2. other small benthic/periphytic diatoms, 3. planktonic, and 4. large periphytic diatoms in the biplot. Numbers refer to species names provided in Table 1. líktist mjög flóru lindavatnanna en var þó heldur fjölbreyttari (3. tafla). Umræður Almenn einkenni kísilþörunga- flórunnar Stöðuvötnin 49 í þessari rannsókn endurspegla vel þann fjölbreyti- leika sem einkennir íslensk vötn með tilliti til jarð- of vatnafræðilegra þátt sem og efna- og eðlisþátta. Að sama skapi var kísilþörungaflóran allfjölbreytt. Alls greindust 329 teg- undir og afbrigði sem tilheyrðu 14 ættkvíslum, en af þeim voru 139 tegundir og afbrigði algeng. Af teg- undunum og afbrigðunum 139 eru 38, eða 27,3%, sem ekki hafa verið greind áður hér á landi og því er um fyrsta fund tegundanna að ræða á Íslandi. Nærri lætur að tegundirnar og afbrigðin sem greind voru í rann- sókninni, 329 talsins, svari til 58% af 80 103 114 106 84 87 83 75 85 122 82 112 81 10986 110 111 108 107 105 113104 2. á s (λ = 0 ,1 46 ) 1. ás (λ = 0,268) 2. Aðrir smáir botnþörungar 1. Smá, botn- læg gjarðeski 4. Stórar ásætur 3. Sviflægir þörungar 39 80 1-2#loka.indd 51 7/19/10 9:52:18 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.