Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 63
63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
0 5 10 15
0
5
10
15
0
1
2
3
4
1
2
3
4
1
2
3
4
V − A (km)
S
−
N
(k
m
)
VÍ
GRE
FHG
styrkurinn kringum áramót (>1.950
µg/m3, sjá 6. mynd) er meira en 3-falt
hámarksgildi yfir árið. Á „venjuleg-
um“ dögum er hámarkið oft í kring-
um 50–100 µg/m3, þannig að um
áramót er hámarkið meira en 20-falt
hámark flestra venjulegra daga.
Breytileiki í styrk svifryksmeng-
unar um áramót sýnir mikilvægi
þess að mælingar á styrk séu gerðar
með mikilli tímaupplausn. Vindur
og úrkoma á Íslandi hjálpa verulega
til við að halda styrk svifryksmeng-
unar niðri og slá hratt niður stóra
toppa, eins og þá sem verða um
áramót.
Í hægum vindi og þurrviðri er
líklegt að mengun vegna svifryks sé
langt yfir sólarhrings-heilsuverndar-
mörkum (50 µg/m3) frá miðnætti til
morguns á nýársdag og því ættu þeir
sem eru í áhættuhópum að fylgjast
vel með veðurspám um áramót.
Einnig er starfandi viðbragðsteymi,
samkvæmt viðbragðsáætlun Heil-
brigðisnefndar Reykjavíkurborgar,24
sem fylgist með loftgæðum í borg-
inni og sendir út viðvaranir til helstu
fréttamiðla landsins þegar ástæða er
til að vara við skertum loftgæðum.
Auk þess geta íbúar borgarinnar
fylgst með niðurstöðum mælinga
frá Grensásvegi á svifryksmæli sem
finna má á heimasíðu Umhverfis- og
samgöngusviðs, www.reykjavik.is.
Summary
Particulate matter pollution
during New-year’s Eve celebra-
tion in Reykjavik, Iceland
The airborne particulate matter pollu-
tion (PM10) around New-years Eve in
Reykjavik, Iceland, reaches values that
are many times greater (up to 2374 µg m-3,
30 min value) than the typical daily
peak values (~100 µg m-3, 30 min value).
Strong winds (and precipitation) are ef-
ficient in reducing the peak concentra-
tion, and changes in the wind direction,
even for relatively calm winds, can com-
plicate the time series. Although the
concentration reaches high values, these
pollution events are of short duration.
8. mynd. Útreiknaðir ferlar svifryksagna frá miðnætti til klukkan 04:00 eftir miðnætti,
1. janúar 2006. – Calculated particle paths from midnight till 4 am on 1 January 2006.
klukkan 03:00. Ef við notum ferilinn
samkvæmt mælingum VÍ setjum
við tígultáknið sem merkt er 3 á
mælistöðina og finnum svo tígul-
táknið fyrir miðnætti, sem er ~7 km
í NA (einnig sjáum við að ögnin
hefur farið nokkuð fyrir sunnan
mælistöðina og svo aftur í norður
áður en hún mælist). Sama má gera
fyrir aðrar samsetningar á upphafs-
og mælingatíma og nota má ferlana
fyrir GRE og FHG á sama hátt.
Þrátt fyrir alla óvissu í því hver
ferill svifryksagnanna er nákvæm-
lega, er ljóst að loft frá Grafarvogi
og Mosfellsbæ getur hafa færst
inn að mælistöðvunum um klukk-
an 03:00 á nýársnótt. Við teljum
því líklegast að áramótin 2005/6
hafi ferskur NV-vindur borist að
mælistöðvunum. Þegar vindáttin
breyttist, fyrst í NA-átt og síðan í
A-átt, hafi hluti af menguðu lofti
borist aftur inn yfir mælistöðvarn-
ar. Þannig er mögulegt að svifryk
frá Grafarvogi og Mosfellsbæ hafi
borist inn yfir mælistöðvarnar um
klukkan 03:00.
Áramótin 2006/7 og 2007/8 var
vindáttin nokkurn veginn stöðug og
ferlarnir því þeim mun einfaldari.
Í samanburði við hámarkið
áramótin 2006/7 fylgdi hámarkið
2007/8 vel því sem búast mátti
við vegna áhrifa vindstyrks á styrk
mengunar (C), þar sem styrkurinn
fellur í öfugu hlutfalli við vind-
styrk, C ∞ 1/u, þar sem u er vind-
hraði. Áramótin 2007/8 var vind-
hraðinn um 11 m/s, en aðeins 1,5
m/s áramótin 2006/7, en þar er
ríflega 7-faldur munur á vindhraða.
Hámarksstyrkur svifryksmengunar
áramótin 2007/8 var 268 µg/m3 og
1.963 µg/m3 áramótin 2006/7; þar
er munurinn einnig ríflega 7-faldur
og kemur það vel heim við áhrif
vindstyrks.
Niðurstöður
Svifryksmengun vegna flugelda um
áramót er margfalt meiri en þau
hámarksgildi sem mælast yfirleitt
yfir árið. Svifryksmengun PM10
mælist sjaldan meiri en 600 µg/m3
(30-mín. gildi), sjá 5. mynd, svo að
80 1-2#loka.indd 63 7/19/10 9:52:48 AM