19. júní - 19.06.2008, Page 17
15
mjög mikilvæg og hefur skapað
gríðarlega mikil verðmæti á
Íslandi. Það er mikilvægt að við
virkjum mann- og fjárauð bæði
karla og kvenna.
Fleiri og fleiri sjá einnig þann
viðskiptalega ávinning sem
felst í því að virkja betur auðinn
sem felst í konum hvort sem
það er mannauður þeirra eða
fjárauður. Konur taka 80% af
kaupákvörðunum heimilanna
og þær verða sífellt ríkari þannig
að kaupmáttur þeirra eða
„vald veskisins“ er mikið. Ekkert
fyrirtæki hefur efni á að horfa
framhjá þessum vaxandi og
öfluga hópi. Það sýnir sig líka í
fjölmörgum rannsóknum að þau
fyrirtæki sem nýta sér mannauð
kvenna í lykilstöðum og við
mikilvægar ákvarðanatökur skila
einfaldlega betri árangri og
meiri arðsemi. Þetta hefur verið
rannsakað í velflestum löndum
í kringum okkur og gildir jafnt
um einkafyrirtæki sem fyrirtæki
á markaði. Ég held að ekki sé
lengur hægt að deila um að svo
sé. Því jafnara sem hlutfall karla
og kvenna er því betra bæði fyrir
fyrirtækin og samfélagið.“
Kvenvinsamlegra
viðskiptaumhverfi
Halla lauk BS-gráðu í
viðskiptafræði frá Auburn
háskólanum í Montgomery í
Bandaríkjunum og MBA gráðu
í alþjóðlegum viðskiptum frá
Garvin Graduate School of
International Management
(Thunderbird). Hún var
áður framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs Íslands og tók
virkan þátt í uppbyggingu
Háskólans í Reykjavík. Hún stýrði
Stjórnendaskóla Háskólans í
Reykjavík, var framkvæmdastjóri
verkefnisins Auður í krafti kvenna
og var lektor við viðskiptadeild.
Halla hóf starfsferilinn í
Bandaríkjunum þar sem hún var
starfsmannastjóri hjá M&M-Mars
Inc. og Pepsi Cola.
Kristín er hagfræðingur
frá Háskóla Íslands og
er með mastersgráðu í
alþjóðaviðskiptum frá
Handelshöyskolen í Bergen í
Noregi. Hún var aðstoðarforstjóri
hjá Kaupþingi Singer &
Friedlander í London til
ársloka 2006 og átti þátt í því
að umbreyta gamaldags og
rótgrónum breskum banka í
nútímalegt fjármálafyrirtæki.
Hún átti einnig stóran þátt í
að gera Kaupþing að stórum
alþjóðlegum banka en þegar
hún hóf störf var það lítið
verðbréfafyrirtæki. Kristín var
framkvæmdastjóri Fjárstýringar
og sá alfarið um fjármögnun
bankans. Áður starfaði Kristín
um tíma hjá Statoil í Noregi, hjá
Skeljungi og hjá Íslandsbanka.
Þær Halla og Kristín hafa
því báðar mikla reynslu af
störfum tengdum fjármála- og
viðskiptageiranum og hafa náð
gífurlegum árangri á sínu sviði.
Kom aldrei til greina að breyta
karllægum gildum og hefðum
innan frá fremur en að stofna til
þess eigið fyrirtæki?
„Það er tvennt í þessu,“
segir Kristín. „Þegar talað er
um að viðskiptalífið sé ekki
kvenvinsamlegt er það ekki
Kristín
Pétursdóttir
og Halla
Tómasdóttir hjá
Auði Capital eru
eldhugar
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Myndir: Bára Kristinsdóttir