Gerðir kirkjuþings - 1988, Blaðsíða 154
151
29. gr.
1. Prófastur hefur eftirlit með prestssetrum, kirkjum og
kirknaeignum i prófastsdæmi. Hann skýrir biskupi frá
þvi, sem honum þykir athugavert um þessar eignir, þ.á m.
skort á viðhaldi, og getur biskup lagt fyrir rétta aðila
að bæta úr.
2. Prófastur framkvæmir úttekt á prestssetrum og embættis-
bústöðum presta við prestaskipti og þegar prestur flytur
i annað húsnæði innan prestakallsins. Hann tekur út
nýjar kirkjur, kapellur og safnaðarheimili.
3. Prófastur setur nýjan prest i embætti, heimsækir presta
og visiterar kirkjur og söfnuði samkvæmt nánari ákvæðum
i erindisbréfi. Hann fylgir biskupi á visitasium hans
til presta og safnaða i prófastsdæminu.
4. Prófastur hefur eftirlit með að prestar skili embættis-
skýrslum til Hagstofu íslands. Hann gengur eftir þvi að
starfsskýrslum og endurskoðuðum reikningum sé skilað á
réttum tima og leggur fyrir héraðsfund með athugasemdum
sinum og sóknarnefnda og gerir tillögur um úrlausn. Þá
fjallar hann um ágreining, sem kann að risa milli
sóknarprests, sóknarnefndar og safnaðar.
5. Prófastur löggildir gerðabækur og aðrar bækur sóknar-
nefndar, eftir þvi sem við á.
6. Prófastur veitir presti leyfi til fjarvista úr presta-
kalli um stundarsakir, en leyfi til lengri fjarvista
veitir biskup að höfðu samráði við kirkjumálaráðherra.
7. Prófastur skipuleggur samstarf presta í sumarleyfi
þeirra og önnur samningsbundin leyfi i prófastsdæminu.
8. Nú getur sóknarprestur ekki gegnt embætti vegna veik-
inda, fjarvista eða af öðrum ástæðum, og ákveður
prófastur þá i samráði við sóknarprest, hvernig þjónusta
hans skuli leyst af hendi.
30. gr.
Prófastur hefur þau afskipti af veitingu prestakalla,
sem lög kveða á um.
Prófastur skipuleggur endurmenntun presta, sem pró-
fastsdæmið beitir sér fyrir i samráði við biskup og presta-
félög.
Prófastur sér um bókasafn prófastsdæmis, en guðfræði-
legu bókasafni prófastsdæmis skal komið á fót samkvæmt
ákvörðun héraðsfundar og héraðsnefndar fyrir fé, sem veitt
kann að vera á fjárlögum i þessu skyni og úr héraðssjóði, svo
og fyrir framlög einstakra manna.
31. gr.
Prófastur hefir þau afskipti af kirkjugörðum og heima-
grafreitum, sem lög kveða á um.