Gerðir kirkjuþings - 1990, Page 26
16. mál: Kirkjusókn og messutímar.
Þetta mál er tekið fyrir sem sérstakt þingmál (12. mál) og vísast til þess þar.
Kirkj ueignanefndin:
Ailsherjarnefnd óskar eftir því að hraðaö verði afgreiðslu málsins og útgáfu síðari
hluta skýrslunnar.
Skipulag Skálholtsstaðar:
Allsherjarnefnd fékk á sinn fund höfunda skipulagsins og vígslubiskup, sem útskýröu
hugmyndirnar og sýndu líkan og teikningar af deiliskipulagi og svöruðu spurningum
nefndarmanna.
Nefndin lýsir ánægja sinni með þær hugmyndir sem fyrir liggja. Fram kemur hin
mikla áhersla á að varðveita fornminjar, sem sýna glöggt þann anda sem áður ríkti
þegar Skálholt var samfélag iðandi af lífi og hýsti margbreytilega starfsemi- og
hvernig sú hugsun endurspeglast í skipulagshugmyndunum.
Nefndin telur mjög mikilvægt að gerð sé sú breyting sem, arkitektarnir leggja til
varðandi þjóðvegarstæðið og breytingar á staðfestu aðalskipulagi.
Skýrsla utanríkisnefndar.
Formaður nefndarinnar, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir kom á fund
allsherjarnefndar og svaraði spurningum hennar. Var samþykkt eftirfarandi tillaga:
Kirkjuþing þakkar utanríkisnefnd vel unnin störf á liðnum árum og hvetur biskup og
kirkjuráð til að huga að því hvernig upplýsingar um alþjóðleg samskipti kirkjunnar gætu
borist söfnuðunum til eflingar almennari áhuga safnaðarfólks á þessum víðtæka og
mikilvæga málaflokki.
Sr. Þórhallur Höskuldsson bað um eftirfarandi bókun í sambandi við álit
allsherjarnefndar v/. fyrri umfjöllunar kirkjuþings um kristinfræðslukennslu í skólum sbr.
17. mál kirkjuþings 1989. "Könnun á hlut kristinfræðslu í skólum".
"Full ástæða er til, að kirkjan láti sig varða stöðu kristinna fræða í grunnskólum
landsins eins og áður hefur verið ályktað um á kirkjuþingi og með tilliti til skýrslu um
námstjóra í kristnum fræðum 1977 - 90, sem fyrrum námstjóri í þessari grein hafa ritað.
Þar er sagt frá ýmsu, sem áunnist hefur, en þar er líka sagr frá þeirri alvarlegri þróun,
að hlutur kristinna fræða hafi farið minkandi í skólastarfi þrátt fyrir ákvæði námskrár
og viðmiðunarstundaskrár."
Þá tók sr. Þórhallur fram, að í þessum orðum væri engin dómsáfelling í garð
Menntamálaráðuneytisins.
Að lokum vill allsherjarnefnd þakka kirkjuráði og störf þess frá síðasta kirkjuþingi og
biður biskupi og kirkjuráðsmönnum blessunar.
Með áliti þessu fylgir sérálit frá dr. Gunnari Kristjánssyni um skýrslu nefndar um
safnaðaruppbyggingu.
Sr. Jón Bjarman lagði til, að sérstök atkvæðagreiðsla færi fram um 14. mál í skýrslu
biskups Um safnaðaruppbyggingu og skýrslu verkefnisstjóra. Var það gert og greinin
23