Gerðir kirkjuþings - 1990, Síða 241
eöa almenna mannúðarhreyfingu sjöunda áratugarins sem einkenndist af leit aö
handanlægum verömætum og einnig aö nýrri syntesu (hér vitnar hann í rannsóknir Kilian
Mc Donnell). Þaö er athyglisvert að þeir sem stóöu hvaö fastast gegn karismatísku
hreyfingunni voru kirkjudeildir eins og Missourisýnódan í Bandaríkjunum sem er næst
stærsta lútherska kirkjudeildin þar og telst íhaldssöm í meira lagi. Þessi kirkjudeild bannaöi
einfaldlega karismatísku hreyfinguna.
Annaö stigiö telur hann veriö hafa á áttunda áratugnum, þá verða þau skil að menn
aðlagast annað hvort hefðbundnum kirkjudeildum eða stofna nýja trúflokka. Þriðja stigið
aö mati Hales er þessi áratugur sem hann kallar aölögunartímann og er beint framhald
af síðasta áratug. Allt er oröiö rólegra, meira að segja Bennett og frú hans minnast nánast
aldrei á upphaflega reynslu sína og tala friösamlega um endurnýjun andans og Larry
Chrisensen er oröinn allur annar en áöur fyrr, þroskaöari og mildari, umburöarlyndari og
einnig fylgismenn hans sem taka nú sífellt meiri þátt í heföbundnu kirkjulegu starfi.
Bókaflóðiö sem áður var um þetta efni er nú þorrið.
Andinn er meö öörum orðum horfinn úr hreyfingunni vestanhafs. Tungutaliö skiptir
ekki máli lengur. Þeir sem ekki ganga til liðs við kirkjurnar stofna nýjar kirkjudeildir eöa
ganga í hinar hefðbundnu hvítasunnukirkjur. Hale vitnar í Richard Quebedeaus sem ritaði
bókina The New Charismatics II (1983), þá ákafur fýlgismaður hreyfingarinnar, nú segist
Hale hafa þaö eftir Quebedeaus aö "hann hafi ekki lengur áhuga á þessari hreyfingu."
Haie byrjar umfjöllun sína raunar á því aö tala um Jimmy Bakker sem var prestur
hjá hvítasunnukirkjunni Assemblies of God sem átti 160 sjónvarpssenda og náöi til 13,5
milljóna heimila. PTL sjónvarpsstööin (Praise The Lord=PTL) fékk 200 milljónir dollara
í gjafir á tveim árum 1984-6. Bakker stofnaöi eins konar kristilegt Disneyland og margt
fleira sem of kunnugt ætti aö vera þeim sem fylgjast meö kirkjumálum aö rekja þurfi.
Vegna hneykslismála af nánast öllu hugsanlegu tagi varð hann að yfirgefa starf sitt og lenti
svo í fangelsi. Jerry Falwell þekkja allir, sem stofnaöi Moral Majority, hann tók yfir PLT
sendistööina sem Hale kallar "trúarlegan iðnað" sem veltir í þessu tilviki tveim milljöröum
dollara árlega.
Mér er sjálfum minnisstætt þegar ég var í námsleyfi vestanhafs fyrri hluta árs 1987
og hneykslið með Jim Bakker komst í hámæli. Boöskapurinn var ógnvekjandi, ég tek
dæmi: Þeir sem Guö elska eru heilbrigðir og ríkir, skammastu þín ekki fyrir aö vera ríkur,
þaö sýnir aðeins aö Guö elskar þig. Þeir sem eru í hjólastól og eru fatlaöir eru aö greiða
fyrir syndir sínar, fötlun er refsing frá Guöi. Þannig mætti lengi telja. Þaö kom í
heimsfréttirnar þegar Jerry Falwell sat fyrir framan sjónvarpstökuvélina og hvatti fólk til
að senda peninga umsvifalaus annars dæi hann sjálfur innan ákveöins tíma, nokkurra
klukkustunda, hvort þaö var hann sjálfur eöa annar úr þessum hópi sem hótaði því að Guö
hefndi sín á þeim sem gæfu ekki man ég ekki. Aðrir þekktir sjónvarpsprédikarar af þessari
gerö eru m.a. Jimmy Swaggart og Pat Robertsson sem báöir gengu býsna langt í því að
rugla saman "trú" og stjórnmálum, Jimmy Swaggart var býsna iðinn í Suöur-Ameríku viö
aö berjast gegn þeirri hetjulegu mannréttindabaráttu kaþólska kirkjan og aörar kirkjudeildir
tóku þátt í; hann lagöi blessun sína yfir stjórnarstefnu einræöisherrans Pinochets.
Robertsson studdi contraskæruliöa í Nicaragua og hefur hvaö eftir annaö veriö gagnrýndur
harölega af kaþólskum kirkjuleiötogum sem leiötogum mótmælenda vestanhafs.
Dæmi um hina innbyggðu tilhneigingu þessara hópa til þess aö klofna er í ritgerö
238