Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
ÞETTA HELST
ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST íVIKUNNI
160 m2 (búð á tveimur hæðum 1101 Reykjavík til leigu.
Efri hæð. Eldhús og stofa er eitt opið rými, innrétting
er svart háglans sprautulökkuð og granit borðplata,
tæki með stáláferð, innbyggð uppþvottavél fylgir
með. Eikarparkett á gólfum. Salerni flísalagt í hólf
og gólf, handlaug og vegghengt klósett svört að lit,
stór spegill með flúorlýsingu. Neðri hæð: Hringstigi milli
hæða. Þrjú svefnherbergi annað með fataherbergi innaf.
Sjónvarpsými. Á gólfum er elkarparkett. Allar huröar eru
háglans svart sprautulakkaðar. Stórt og rúmgott baðherbergi með Ijósum fllsum á
veggjum og gólfi, hornbaðkar og rúmgóður sérsmiöaður sturtuklefi, góð innrétting,
handlaug á borði og spegill, halógenlýsing ofan við innréttingu, hiti I gólfi. Þvottahús
og geymsla meö fllsum á gólfi, hiti i gólfi. Húsgögn fylgja Útg. í sameiginlegan garð.
Athugið eingöngu leigttil fyrirtækja.
Upplýsingar e-mail agust.magnusson@gmail.com
RÍKIÐ SVEIGIR LÖG
Sala Þróunarfélags Keflavík-
urflugvallar á tæplega 1.700
íbúðum er harðlega gagn-
rýnd og ríkið er sakað um
lögbrot. Atli Gíslason hæsta-
réttarlögmaður og þingmaður
gagnrýnir söluaðferðina harðlega og
segir hana heimildarlausa og ólög-
lega. Að hans mati og annarra hafi
stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflug-
vallar ohf. handvalið mögulega kaup-
endur. Samkvæmt lögum eiga Rík-
iskaup að sjá um alla sölu ríkiseigna
og þar á bæ undrast menn af hverju
verkefnið hafi ekki verið fært til stofn-
unarinnar. „Þessi gagnrýni er byggð
misskilningi. Á síðasta ári voru sett lög á Alþingi um að Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar skyldi annast umsýslu fasteigna á svæðinu," segir
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.
BANNA KÚBUFLUG
B
Bandarísk stjórnvöld
hafa þrýst á bandaríska
flugvélaframleiðandann
Boeing að stunda ekki
viðskipti við íslensk flug-
félög, Icelandair og Atíanta,
vegna leiguflugs dótturfýrirtækja
þeirra til Kúbu. Sökum áratugalangs
viðskiptabanns vilja Bandaríkja-
menn ekki að flogið sé til eyjarinnar
á bandarískum Boeing-flugvélum.
Deilan er óleyst og farið að horfa til
þess hvort íslensk stjórnvöld þurfi
að beita sér í lausn mála. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaðurVG,
segir máiið Bandaríkjastjórn til
skammar. „fslensk stjórnvöld eiga
að styðja við íslensku flugfélögin í að gefa frat í
þetta fáránlega viðskiptabann. Bandaríkin hafa í gegnum tíðina beitt
lönd þrýstingi af þessum toga og þetta er ljótur blettur í bandarísku
stjórnarfari," segir Steingrímur.
GLÆPIRI KOPAVOGI
Á eftir hinum alræmda mið-
bæ Reykjavíkur eru flestir
glæpir framdir í Kópavogi.
Breiðholtið kemur þar á
eftir og samanlagt beinist
fjórðungur allra útkalla lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu á
þessi tvö svæði. Tveir sérfræðingar
á vegum lögreglunnar unnu rann-
sókn þar sem afbrot á höfuðborg-
arsvæðinu voru greind niður eftir
hverfum. Niðurstöður sýna berlega
tengsl milli efnahags og glæpatíðni.
„Niðurstöður benda til þess að fleiri
glæpir eru framdir í hverfum þar
sem efnaminna fólk býr. Það virðist
vera tilhneigingin. f Breiðholti eru
meðaltekjur hvað lægstar og þar er glæpatíðnin meiri en til dæmis á
Seltjarnarnesi, þar sem er betri efnahagur og tiltölulega rólegt," segir
Benjamín Gíslason, annar sérfræðinganna.
HITTMALIÐ
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra olli upp-
námi í utanríkisþjónustunni þegar hann skrifaði Fidel Castro Kúbu-
forseta bréf og óskaði eftir því að hitta hann í Havana. Halldór Ás-
grímsson, þáverandi forsætisráðherra, komst í málið og sagði titring
vera í utanríkisþjónustunni á sama tíma og viðkvæmir samningar
voru við Bandaríkjamenn um brotthvarf varnarliðsins.
Guðni Agustsson
Raðlienann fyrrverandi
reit Castro bréf og óskaði
eftir fundi í Havana.
Fidel Castro Leiðtoginn varð
Guðna mikil f -atning fyrir að
standa uppi í hárinu á
bandaríska heimsveldinu.
SENDICASTRO
AÐDÁANDABRÉF
Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra komst í hann krappan
árið 2005 skömmu áður en hann
lagði upp í för í einkaerindum til
Kúbu með eiginkonu sinni Margréti
Hauksdóttur. f lífssögu Guðna, Guðni
af lífi og sál, sem kemur út í dag, segir
samkvæmt heimildum DV frá því at-
viki sem ógnaði samskiptum íslands
og Bandaríkjanna. Guðni er og hef-
ur lengi verið mikill aðdáandi Fidels
Castro Kúbuforseta og hann hafði
hug á að hitta hann í Kúbuförinni.
Hann ritaði því bréf til leiðtogans
þar sem hann lýsti langvarandi og
stöðugri aðdáun sinni á forsetanum
sem hefði alla tíð staðið uppi í hárinu
á bandaríska heimsveldinu. Bauðst
hann jafnframt til að miðla af ára-
langri reynslu sinni sem landbúnað-
arráðherra á fslandi og gefa Castro
góð ráð í landbúnaðarmálum. Lagði
Guðni til að þeir Castro myndu hitt-
ast í Havana einhvern þeirra daga
sem hann áformaði að dvelja í land-
inu.
Ertu ekki í fríi?
Skömmu áður en Guðni átti að
leggja upp í Kúbuförina hringdi sími
hans. Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra var á línunni og heyra mátti
að honum var brugðið þegar hann
spurði Guðna hvort hann hefði ritað
Castro béf. Guðni viðurkenndi það.
Forsætisráðherra sagði Guðna þá að
allt væri á öðrum endanum í utan-
ríkisþjónustunni út af þessu máli en
um þetta leyti stóðu yfir viðkvæmar
viðræður íslendinga og Bandaríkja-
manna út af brotthvarfi vamarliðs-
ins. Loks spurði Halldór mæðulega
hvort Guðni ætti ekki að vera í ffíi.
Guðni hugsaði sinn gang í ljósi þess
að bréf hans til Castros var farið að
ógna heimsfriði. Hann komst að
þeirri niðurstöðu að fundurinn með
Castro væri ekki þess virði og til-
kynnti forsætisráðherra að hann aft-
urkallaði bréfið.
Bréfið ritskoðað
Förin tíl Kúbu varð Guðna og
konu í senn gefandi og yndisleg þótt
ráðherrann næði ekki fundi með
Fidel. Helst þótti ráðherra skorta á
Kúbu frelsi, dugandi bændur, Jónas
Jónsson frá Hriflu og Framsóknar-
flokkinn. Hann fékk aldrei skýringu
á því hvernig utanríkisþjónustan
komst á snoðir um bréf hans.
Lífssaga Guðna, sem skráð er af
Halidór Ásgrímsson Forsætis-
ráðherranum var brugðið þegar
hann frétti af bréfi landbúnaðar-
ráðherranstil Kúbuleiðtoga.
Sigmundi Erni Rúnarssyni, kemur
í verslanir í dag og er hennar beðið
með nokkurri óþreyju þar sem þess
er að vænta að Guðni geri þar upp
samstarfið við Halldór Ásgrímsson,
fýrrverandi formann Framsóknar-
flokksins, en milli þeirra ríkti iðu-
lega djúpur ágreiningur og á köflum
kuldi. n@dv.is