Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Síðast en ekki sfst DV VIKUNNAR Vaitýr Sigurðston fráfarandi fangelsismálastjóri og nýskipaður rikissaksóknari færfjórar stjörnur. Valtýr hefur unnið gífurlega gott starf í málefnum fanga á (slandi, þrátt fyrir takmörkuð fjárframlög til málaflokksins. Margir mjög hæfir umsækjendur voru um stöðuna og sýndi Valtýr hvað í hann er spunnið með þv( að hljóta náð fyrir augum ráðherra. Þórður Bjömsson kaupmaður í Sunnubúðinni í Reykjavík fær þrjár stjörnur fyrir að sýna hetjulega mótspyrnu gegn vopnuðum ræningjum sem réðust inn í verslunina I vikunni. Þórður gafst ekki upp fyrr en hann mætti öxinni. Þar á ofan bauðst hann til að hitta einn ræningjanna og leiðbeina honum til betri vegar. Þórður lét atvikið ekki slá sig út af laginu og var mætturtil Atli Gíslason alþingismaður vinstri grænna og hæstaréttarlögmaðurfær tvær stjörnur fyrir að vera óþreytandi í stjórnarandstöðu þegar kemur að sölu ríkiseigna á gamla varnarliðs- svæðinu á Miðnesheiði. Barátta hans hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni þar sem hann hefur gagnrýnt söluna harðlega og sagt hana lögleysu. Atli Gíslason er andlit stjórnarandstöð- unnar þessa vikuna. Landslið Islands I knattspyrnu fær eina stjörnu fýrir að sýna framfarir á knattspyrnuvellinm. Þrjú - núll tap gegn Dönum er miklu betra þrjú - núll tap gegn Liechtenstein. Fleiri en tveir leikmenn áttu ágætan leik inni á vellinum og það er greinilegt batamerki frá niðurlægingartímabili síðustu mánaða. Þjálfari og fyrirliði eru jákvæðir og við skulum vera það með þeim. ÆTLAÐIALDREIAÐ TAKA ÞÁTTÍSVONA KEPPNI Ágúst Örn Guðmundsson, herra Norðurland fór með sigur úr býtum í keppninni um herra ísland sem haldin var á Broadway ívikunni. Hver er maðurinn? „Ágúst örn Guðmundsson." Hvaö gerir þú? „Ég er í menntaskólanum á Akur- eyri þar sem ég mun klára stúdent- inn í vor." Hver eru þín áhugamál? „Ætli það sé ekki bara þetta venju- lega hjá 19 ára strák. Hreyfmg, úti- vist, fjölskyldan, kærastan, tónlist, snjóbretti og mótorkross." Stundar þú einhverjar Iþróttir? „Ég hef æft bæði skíði og fótbolta en núna æfi ég bara sjálfur, ég er bara duglegur að fara í ræktina." Hefurðu búið erlendis? „Nei, það hef ég ekki gert, það er svo gott að vera heima á íslandi." Uppáhaldsstaður? „Staðurinn sem ég kem frá, Kópa- sker." Besti matur? „Það er klárlega jólamaturinn, svínabógur og allt sem honum til- heyrir á aðfangadagskvöld, hangi- kjöt og bara allur þessi góði hátíðar- matur." Uppáhaldshljómsveitin þln? „Ég get nú ekki sagt að ég eigi mér uppáhaldshljómsveit, éghlusta aðal- lega á það sem er vinsælast hverja stundina." Eftirminnilegasta prakkarastrik sem þú hefur gert? „Þegar ég var fjögurra ára náði ég að starta bíl foreldra minna og gerði mér lítið fyrir og keyrði aftan á bílinn hjá ömmu og afa." Hvað kom til að þú ákvaðst að taka þátt I Herra ísland? „Það var hann Sigurður Gests, á Akureyri sem sér um keppnina fyrir norðan sem fékk mig til að taka þátt í herra Norðurland sem ég svo vann. Úr því þannig var komið þýddi nú lítið að sitja heima og missa af þess- ari keppni. Ég hefði aldrei tekið þátt nema af mér var nokkurn veginn ýtt út í þetta. Ég lýsti því meira að segja keppninni? spenntir yfir þessu, bekkurinn minn „Það kom eiginlega bara á óvart fýrirnorðanogvinir, eða eitthvað um hvað þetta var ofboðslega skemmti- sextíu manns komu saman á KEA- legt, það var rosalega góður andi á hótelinu og horfðu á strákinn." meðal strákanna og þetta var bara í alla staði geggjað." Hvaö er fram undan sem herra fsland? Áttir þú von á sigrinum? „Það er einmitt það sem ég er að „Nei, ég get nú ekki sagt það þó fara að fá á hreint á næstunni. Það svo að fjölskyldan þykist hafa vitað verður spennandi að fá að heyra þetta allan tímann, það er nú varla hvað er fram undan." mikið að marka það þar sem þau eru svolítið hlutdræg." Hver er þín fyrirmynd? „Það mun vera hann pabbi." Hvað fannst vinum þínum um þátttöku þína I keppninni? Hver er draumurinn? „Það voru nú bara allir mjög „Að það gangi vel í lífinu." SAXDKORX ■ Dögg Pálsdóttir, varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir á bloggsíðu sinni að orðin ráðherra og sendiherra særi ekki málkennd sína. Eins og greint hefur verið frá vill Stein- unnValdís Óskarsdóttir, þingmaður (eða -kona) Samiylking- arinnar, hins vegar að þess- umorðum verðibreytt í lögunum sökum misræmisins sem því fylgir að kona sé kölluð „herra". „Ég held að kröftum okkar í jafnréttisbaráttunni sé mun betur varið í að einbeita okkur að ein- hverju þarfara en þessu, t.d. því að jafna hlutfall kynjanna alls staðar þar sem misvægi er í slíkum hlut- föllum, auka umræðuna um jafn- réttismál, t.d. jafna stöðu foreldra gagnvart bömum sínum. Svo ekki sé minnst á óútskýrðan launamun kynjanna," segir Dögg. ■ Sprengjuhöllinnihefurvíðaver- ið hrósað fyrir skemmtilega texta í lögum sínum. Hljómsveitin er tal- in vekja upp stemmingu fýrri tíma, með beittum og sniðugum textum, sem samdir em á íslensku, ekki ensku eins og u'ðkast hefur undanfarið. Textarpilt- annahafa greinilega víða vakið athygli, því helstí texta- höfundur sveitarinnar Bergur Ebbi Bene- diktsson var fenginn til þess að semja texta ofan í þær Hara-syst- ur sem gefa út geisladiskinn Bara Hara fýrir jól. Bergur samdi texta við lagið Það er dýrt að vera til og verður gaman að sjá hvemig þeim Rakeli og Hildi tekst til. ■ DV greindi frá því í vikunni að Bille August hefði verið á landinu til þess að skoða bæði íslenska leikara og íslenskt landslag. Senn mun Bille ráðast í að taka upp kvikmyndina Slóð fiðrildanna, sem fengið hefur enska heitíð A Joumey Homp. Myndin er byggð á bók Olafs Jóhanns Ólafssonar en staðið hefilr til að kvikmynda bóldna frá árinu 2005. Upphaf- lega var það norska kvikmynda- gerðarkonan LivUllman sem skrif- aði handrit myndarinnar. Verður það handrit ekki notað, heldur mun Ólafur Jóhann sjálfur sjá um handritaskrifin. dori@dv.is A MORGUN Rússsbanareið hitastigsins tftii örlitinn stans í vindhringekjunni, sem svifrykið í höfuðborginni nýtti sér til þess að slá yfir heilsuverndarmörkin, er rússibanan- um ýtt af stað á nýjan leik. Hlýtt um land allt a föstudag með rigningu, á laugardag kólnar luatt i kjölfar djúprar lægðar sem fer yfir landið. Reikna má með ofanhríð og nokkuð hvössu um tíma norðan-og norðaustan- lands. Um kvöldið kólnar og frostið getur hæglega farið niður í 10 stig inn til landins um nóttina. Á sunnudag ryðst síðan lilýtt loft ui suðri. Hlýnarafturmeð rigningu sunnan til, en norðanlands verður veður siaplegtframeftirdegi. Eftii helgina heldur h-ingferðrússibanans I'KtÍ : i afi.im. fyrst með a l'.v.issrisunnanattog HINN DAGINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.