Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 HelgarblaS DV HVERT SJALFSVIG Salbjörg Bjarnadóttir er geðhjúkrunar- fræðingur og verkefnastjóri verkefnisins Þjóð gegn þunglyndi hjá Landlæknis- embættinu. Því starfi hefur hún gegnt í fimm ár í tengslum við sjálfsvígsforvarn- ir á vegum embættisins. Salbjörg situr'í fagráði ásamt sex öðrum. ANNA KRISTINE bladamadur skrifar: annakristine@dv.ls „Hlutverk mitt er að halda utan um fræðslu tii faghópa, sjá um daglegan rekstur verkefnisins og samskipti og samvinnu við ólíka hópa fagfólks, grasrótarsamtök og almenning," segir Salbjörg um starfssvið sitt. „Fagráðið fór fljótlega að skoða hvað væri búið að gera í þessum málaflokki áður og eins hvað aðrar þjóðir unnu að. Við ákváðum að fylgja eftir forvarnarverkefni sem Þjóðverjar höfðu farið af stað með og staðfæra það upp á íslenskan veruleika. Verkefnið köllum við Þjóð gegn þunglyndi. Nú hafa þegar sextán aðrar þjóðir unnið á svipuðum nótum og stofnað European Alli- ance Against Depression (EAAD) sem við erum aðilar að. Reyndar útfærðum við verkefnið víðar þar sem okkur þótti mikilvægt að koma fræðslu um þunglyndi og sjálfsvígsatferli sem víðast inn í samfélagið þannig að fólk verði vakandi fyrir einkennum sem hafa ber í huga." Hver eru þau? „Það eru einkenni eins og fram- taksleysi, fólk dregur sig í hlé, mikl- ar hluti fyrir sér og stundum koma líkamleg einkenni fram." þann stuðning sem þau þurfa hverju sinni. Þá má einnig hrósa skólakerfmu fyrir lífsleiknikennslu þar sem börnum er kennt að þekkja tilfinningar sínar, setja sig í spor annarra og og ræða það sem er jákvætt ekki síður en það sem er erfitt. Eins hafa flestir skólar nú viðbragðsáætlun er dauðsfall eða annað alvarlegt áfall verður í hópi kennara, nemenda eða foreldra. Með því að hafa slíka áætlun verður allt skipulag betra, allir vita hver ber ábyrgð á að hafa samband við hvern, stuðningur og samstarf fjölskylduognánustuvinaogbekkj- arfélaga fer fljótt í gang. Svona við- bragðsáætlun mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar." Hægt að vekja fólk til umhugsunar Hvaö er hœgt aö gera til aö sporna við þessari miklu vanlíöan fólks, þannig að það grípi ekki til þessara örþrifaráða? „Það er ekkert eitt ráð við þessari spurningu og ég veit að við getum því miður aldrei komið í veg fyrir öll sjálfsvíg. Við getum hins vegar vakið fólk til umhugsunar um að vera vakandi fyrir einkennum kvíða og þunglyndis hjá sínum nánustu. Við þurfum að muna að þunglyndi og aðrir geðsjúkdómar geta verið svo alvarlegir að þeir leiða til dauða. Við erum þá ekki einungis að tala um sjálfsvíg heldur líkadauðaþarsem aðrirsjúkdómar koma við sögu en einstaklingurinn er ekki meðvitaður um eða hirðir ekki um að leita sér aðstoðar. Ég held að við þurfum að gefa okkur tíma til að tala við þá sem standa okkur næst, vera vakandi fyrir líðan hvert annars, þora að leita okkur aðstoðar eða benda þeim sem okkur þykir vænt um að leita sér aðstoðar. Það er fuilt af góðu fagfólki til sem getur aðstoðað þegar lífið er erfitt. Eins tel ég að samstarf foreldra og skóla sé mjög mikilvægt. Það eru oft kennarar sem sjá fyrstir vanlíðan barna og ungmenna og því eru þeir í fykilhlutverki tii að grípa inn í og í hverjum skóla er aðgangur að fagfólki sem getur brugðist við með fyrsta kontakt og verið í samstarfi við foreldra. Við verðum líka að muna eftir því að þegar einn veikist í fjölskyldu hefur það áhrif á alla í fjölskyldunni. Því er mikilvægt að bæði foreldrar og börn fái Sex lykilatriði til að ná bata og viðhalda honum Hver er þín skoöun á lyfjagjöf? „Umræðan um lyf hefur oft verið hávær og talað um að lyfjagjöf sé beitt ómarkvisst. Ég tel að við eigum mjög góða lækna og held að við eigum að treysta á að þeir gefi lyf vegna þess að þeirra er þörf. Við vitum að þunglyndislyf hafa hjálpað mörgum og stundum er ekki hægt að byrja á annarri aðstoð fyrr en lyfin eru farin að virka. Það er hins vegar alveg á hreinu að sá sem á við geðröskun að stríða þarf meira en lyf. Við leggjum mikla áherslu á í allri okkar fræðslu að það séu sex atriði sem þarf að hafa í huga til að ná bata og viðhalda honum. Þau atriði sem við tölum um eru: Viðtöl við fagaðila þar sem ein- staklingur getur rætt um líðan sína, samskipti við aðra og er hjálpað til að sjá lausnir sem gætu gert lífið léttara. Lífsstílsbreytingar svo sem hvað varðar hreyfingu, mataræði, svefn og neyslu áfengis- og vímuefna, sem mjög mikilvægt er er að hætta á meðan á þunglyndinu stendur en það er vitað að áfengi og önnur vímuefni geta gert þunglyndið enn erfiðara. Fræðsla um orsakir og afleið- ingar þunglyndis bæði fyrir þann sem þjáist af sjúkdómnum og ekki síður til nánustu ættingja og vina. Lyf eru oft nauðsynleg, stundum tímabundið, stundum til lengri tíma. Mikilvægt er að útskýra vel virkni lyfjanna og eins þær aukaverkanir sem geta komið. Með því eru meiri líkur á að einstaklingurinn verði fús til samvinnu og taki lyfin rétt og minnki þau eða hætti í samráði við iækni sinn. Fjölskyldustuðningur því mjög mikilvægt er að fjölskyldan sé með í ráðum því það er jú oftast hún sem er í mestum tengslum við þann sem varð veikur og býr jafnvel með einstaklingnum. Bjóða þarf upp á hjónaviðtöl og fjölskylduviðtöl auk þess sem stuðningur inn á heimilið getur verið nauðsynlegur. Ávallt þarf að gefa líðan barna gaum sem búa við að foreldri glímir við geðrænan vanda og bjóða upp á stuðning. Eftirfylgd. Það hefur oft ver- Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkr- unarfraeðingur „Á hverju ári eru yfir tvö þúsund nýir syrgjendur." mælt með að forðast einangrun og bent á ýmis úrræði sem eru í boði eins og Hugarafl, Geðhjálp, klúbb- inn Geysi og athvörf Rauða kross- ins, sem öll vinna mjög áhuga- verða og uppbyggilega vinnu með þeim sem sækja staðina. Því er oft ábótavant að einstaklingar haldi sig við meðferðina; viðkomandi finnst hann oft ekki þurfa meira og hættir að mæta eða taka lyfin og þá getur sjúkdómurinn tekið sig upp aftur. Því er nauðsynlegt að vera í góðu samstarfi við viðkomandi og hlusta á hvað hann hefur til mál- anna að leggja." ið gagnrýnt að eftirfylgd sé ekki næg. Góð eftirfylgd er nauðsynleg og getur komið í veg fýrir að ein- staklingur veikist það alvarlega að hann þarfnist innlagnar. Því er nauðsynlegt að brýna fyrir not- andanum að mæta í viðtöl, taka lyfin rétt og í nógu langan tíma og vera í góðum tengslum við ætt- ingja, vini, skóla og/eða vinnuum- hverfi ef það er til staðar. Eins er Hvert sjálfsvíg er harmleikur „Mikilvægt er að muna að hvert sjálfsvíg er harmleikur. Sá sem ákvað að svipta sig lífi hefur af ein- hverjum ástæðum verið kominn í þrot með lífið. Það er ekki víst að hann hafi langað til að deyja en viðkomandi fannst bara svo erf- itt að lifa í vanlíðan sinni. Hvert sjálfsvíg og einnig alvarleg tilraun til slíks, getur haft alvarleg og lang- vinn áhrif á fjölda einstaklinga í umhverfi viðkomandi. Við þurfum að muna að bak við hvern einstakl- ing sem sviptir sig lífi er fjöldi fólks sem syrgir. Það má búast við að það séu um og yfir tvö þúsund nýir syrgjendur á hverju ári sem bætast við þá sem enn eru að syrgja frá því á árunum á undan og þar af eru að minnsta kostí 150 til 200 manns foreldrar, makar, börn, systkini sem þarfnast frekari aðstoðar ár hvert. Þessir einstaklingar spyrja sig oft ýmissa áleitinna spurninga sem erfitt er að spyrja og fá eða engin svör eru við. Spuminga eins og: Af hverju hún, hann? Hefði ég getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir harmleikinn? Stundum kenna syrgjendur sér um hvernig fór. Stundum einangra þeir sig af ótta við höfnun eða dóma umhverfis- ins. Það er því mikilvægt að leyfa þeim að ræða málin og minna á að það er sá sem svipti sig lífi sem ber ábyrgðina. Það var hann/hún sem svipti sig lífi." Syrgjendur þurfa á umhyggju að halda „Ef sjálfsvíg verður innan fjöl- skyldunnar eða í vinahópi þarf að sinna nánustu aðstandendum vel. Syrgjendur þurfa á umhyggju að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.