Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 59
DV Bíó
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 59
Með þróun starfrænnar þrívíddar og tölvuteiknaðra mynda hefur hið svokallaða 3-D
fengið nýtt líf. Rúmlega 3.000 salir eru í notkun í dag sem bjóða upp á stafræna þrívídd og
tveir hér á landi. Áætlað er að um 5.000 slíkir salir verði virkir á heimsvísu árið 2009.
f þó nokkum tíma hefur verið rætt
um að stafræna þrívíddin hafi hafið
innreið sína í kvikmyndaheiminn og
sé framtíð bíóhúsanna. Það má segja
að með tilkomu Beowulf sé þrívíddin
komin til þess að vera og sé framtíðin,
að minnsta kosti nánasta framtíðin.
Með stafrænu þrívíddinni er ekki að-
eins verið að auka vægi bíóferða held-
ur er einnig verið að berjast á vissan
hátt gegn ólöglegu niðurhali þar sem
þrívíddarupplifunin er aðeins fáanleg
í þessum sérstöku bíósölum með til-
heyrandi búnaði.
ísland með þeim fyrstu
fslendingar voru með þeim fyrstu
sem settu upp sýningarsal sem býð-
ur upp á stafræna þrívídd og var það
í Sambíóunum í Kringlunni. Á þeim
tíma voru um 200 shkir bíósalir í notk-
un en þeir eru orðnir um 1.200 í dag í
Bandaríkjunum einum saman og um
3.000 á heimsvísu samkvæmt frétta-
vefnum Forbes.com. Fjölgun þeirra er
ekki síst í kjölfar myndarinnar Beowulf
sem hefur strax náð miklum vinsæld-
um og gagnrýnendur vilja meina að
hún sé bylting í þrívídd.
Gert er ráð fýrir því að þessum staf-
rænu þrívíddarsölum muni fjölga til
muna á næstu tveimur árum. Áætlað
er að um að minnsta kosti 5.000 slíkir
salir verði komnir í gagnið árið 2009.
Fjöldi mynda á leiðinni
Það má segja að þessi nýja þrí-
vídd sé rétt að skríða af stað þó svo
að Beowulf sé ekki fyrsta myndin af
þessari tegund. Til dæmis hafði verið
reynt á þrívíddina í myndunum Mon-
sterhouse og Polar Express en Robert
Zemeckis sem leikstýrir Beowulf gerði
einmitt þá síðamefhdu. Þær mynd-
ir fengu ekki mikla aðsókn og frekar
slaka dóma hvað þrívíddina varðaði.
Sú gagnrýni var hins vegar nýtt af Sony
Pictures við gerð Beowulfs og útkom-
an var allt önnur. Mögnuð þrívíddar-
upplifun.
f kjölfar fleiri þrívíddarsala og með
velgegni Beowulf hafa áform um gerð-
ir slíkra mynda stóraukist. Þá er ekki
bara verið að tala um myndir sem
flokkast undir Computer Generated
Motion eða tölvuteiloiaða hreyfimynd
hkt og Beowulf. Heldur einnig venju-
legar teiknimyndir sem og kvikmynd-
ir.
Meðal þeirra mynda sem eru vænt-
anlegar í þrívídd eru U2 3D en það
er heimildarmynd um tónleikaferð
hljómsveitarinnar U2 þar sem þessi
skemmtilega tækni er nýtt. Meistari
Tim Burton ædar að gera þrívíddar-
útgáfu af Ahce in Wonderland eða
Lísu í Undralandi sem kemur árið
2009. Myndin mun verða blanda af
venjulegri mynd og tölvuteiknaðari
hreyfimynd. Burton mun einnig end-
urútgefa hina frægu Nightmare Bef-
ore Christmas á næsta ári í þrívídd.
Þá mun Final destination 4 einnig
vera í þrívídd og má búast við vænum
skammti af bregðuatriðum þar. Þegar
allur hstinn er tekinn saman yfir þær
myndir sem hafa verið tilkynntar eru
væntanlegar um 20 þrívíddarmyndir á
næstu tveimur til þremur árum og má
búast við fleirum.
asgeir@dv.is
Nightmare Before Christmas
eftir Tim Burton Verður
endurútgefin á næsta ári í
þrívídd auk þess sem Burton
undirbýr Lísu í Undralandi.
Polar Express árið 2004
Var fyrsta mynd sinnar tegundar
og mikill brautryðjandi.
Beowulf Skartar ótrúlegri
þrívídd sem ekki hefur sést áður.
Baleí
TERMINATOR4
Heimasíðan Ain't It Cool News, sem
er þekkt fyrir haldgóðan fréttaflutn-
ing úr kvikmyndageiranum, greindi
frá því í gær að leikarinn Christian
Bale hefði samþykkt að leika í
Terminator 4. Samkvæmt heimildum
heimasíðunnar mun Bale taka að sér
hlutverk Johns Connor, en aðrar
heimasíður sem greindu frá málinu
voru því ekki endilega sammála.
Tökur á myndinni hefjast árið 2008
og er það von framleiðanda að nýr
þríleikur muni verða til um baráttu
vélmenna Skynets-fyrirtækisins og
mannkynsins.
Paul McCartney safnaði tæpum átta
milljónum á uppboði í London í
vikunni þegar handmálaður risagítar
áritaður af honum sjálfum var seldur
hæstbjóðanda á sextíu þúsund pund.
Um hönnun á gítarnum sá grafíski
hönnuðurinn Rosie Brooks.
McCartney var að vonum ánægður
með að gítarinn hafi selst á svo háu
verði þar sem málefnið er gott.
Kaupandinn hefur sagst ætla að gefa
Great Ormond Street-sjúkrahúsinu
gítarinn í desember.
Lætursig
hvebH
Gamanleikarinn Jerry Seinfeld hefur
sagst ætla að taka sér fri frá
kvikmyndum eftir að hafa Jjáð
aðalpersónu teiknimyndarinnar Bee
Movie rödd sína. í nýlegu viðtaii var
Seinfeld spurður að því hvort hann
hygðist leika í einhverju á næstunni,
sagðist gamanleikarinn efa það. „Ég
vil vera með börnunum mínum. Ég
erofgjamáaðhlaða ámig
verkefnum og það fær mig til að eyða
minni tíma með fjölskyldunni.
Börnin mín eru ung og ég held að ég
látí mig hverfa í smá tíma eftir þessa
mynd," segir Seinfeld.
BEOWULF
RE\DmON
DAIVIIVREALLIFE
Hetjan Bjólfur birtist í Danmörku til þess að losa konungsdæmi
Hroðgars undan trölfinu Grendel. Bjólfúr kemst svo innan skamms
að því að konungurinn veit meira um tröllið en hann lætur uppi.
Sagan er byggð á fomu bresku kvæði sem hefúr verið notað í efriivið
kvikmynda í fleiri skipti. Iæikarar á botð við John Malcovich, Anthony
Hopkins og Angelinu Jolie og það allt í þrívídd. Stanslaust stuð.
IMDb: 7,0/10
Egypskur maður er teldnn til fanga á leið sinni frá Afríku til
Washington. Farið er með manninn í leynilegar fangabúðir og á
sama tíma fer eiginkona hans, sem er bandarísk, að hafa veruleg-
ar áhyggjur. Ekki h'ður á löngu þar til leyniþjónustan og eiginkona
mannsins hefja kapplilaup við tímann svo þau geti bjargað mann-
inum áður en það er um seinan.
IMDb: 6,5/10
Dan Bums er einstæður faðir sem hefúr helgað líf sitt bömum
sínum. Dag einn kyrtnist hann Marie í bókaúð. Þau kynnast vel
og tilfinningar vakna hjá Dan, en honum til mikillar mæðu reyn-
ist Marie vera í sambandi með bróður hans. Toppmynd með þeim
Dane Cook og Steve Carrell í aðalhlutverkum.
IMDIi: 7,5/10
Rottentomatoes: 69%
Metacritic: 59/100
Rottentomatoes: 45%
Metacritic: 55/100
Rottentomatoes: 63%
Metacritíc: 65/100