Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Side 44
■d 44 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Ferðir DV gÁFERÐINNI Fell, hóll, fjall eða þúfa? Engarfastar skilgreiningareru til á þessu, að minnsta kosti ekki ennþá, en samkvæmt málskyni (slenskumælandi manna erfjall stærst, þá fell, slöan hóll, en þúfa minnst. Öll koma þessi orð fyrir (örnefnum, og rétt stærðarröð kemur til dæmis fram (örnefnunum Akrafjall, Búrfell, Orrustuhóll og Svalþúfa. örnefnafræðingar benda á að fell vísi oftast til stakrar myndunar (Búrfell, Vöröufell, Snæfeil) en fjall geti hvort sem er verið stakt eða hluti af stærri heild (Akrafjall, Ingólfsfjall/fell, Hverfjall/fell, Selsundsfjall). TekiðafVisindavefnum. * c * #. . i Áramót í Básum Fyrir þá sem vilja halda sína eigin flugeldasýningu, án þess að flugeldarnir hverfi í reykmettaðan himininn, ættu að skella sér í Bása um áramótin. Ferðafélagið Útivist stendur fyrir áramótaferð í Bása í Þórsmörk. Uþplifunin þykir einstök því óneitanlega er óvenjulegt að fagna nýju ári á fjöllum, fjarri mannabyggðum. Lltil brenna verður tendruð auk þess sem blys, kyndlar og flugeldar verða á svæðinu. Dagarnirverða nýttirtil gönguferða en ferðin kostar 16.500 krónur fyrir meðlimi í Útivist. 17.500 fyrir aðra. Ævintýra- helgarferðá HlööufeU Ferðafélag Islands stendur um helgina fyrir sannkallaðri ævintýraferð. Farið verður í helgarferð í Hlöðuvelli og gist í skála Fl, en þangað verður ekið á breyttum fjallajeppum. Næsta dag verður svo gengið á Hlöðufell, Högnhöfða eða Skriðu eftir því sem aðstæður leyfa. Fararstjóri verður María DöggTryggvadóttir en vert er að árétta að nauðsynlegt er að mæta vel útbúinn til ferðarinnar, með nesti, svefnpoka og góðan búnað til göngu. Boðið verður upp á sameiginlega máltíð á laugardagskvöldið en hún er innifalin í verðinu sem er 16 þúsund krónur fyrir meðlimi F(. 18 þúsund fyrir aðra. Akstur, gisting og fararstjórn er innifalið. Helgarferöi Þórsmörk Helgina 30. nóvembertil 2. desember stendur Ferðafélag Islands fyrri spennandi ferð í Þórsmörk. María DöggTryggva- dóttir mun leiða hópinn á Rjúpnafell, Útigönguhöfða, Hátinda og fleiri staði eftir því sem aðstæður leyfa. Lagt verður af stað á föstudegi klukkan sex síðdegis og ekið á fjallajeppum f Þórsmörk. Gist verður í Skagfjörðsskála en akstur, gisting, fararstjórn og sameiginlegur kvöldverður er innifalinn (18 þúsund króna fargjaldinu. Kvöldvaka verður á laugardagskvöldinu en haldið verður heim á sunnudag. Ferðafélag íslands var stofnað 27. nóvember 1927 og verður því 80 ára í næstu viku. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins segir markmið þess enn hin sömu, þó samfélagið hafi gjörbreyst á þessum tíma. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS 80 ÁRA Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ Að leggja í gönguferð yfir Dranga- jökul. „Fyrir 80 árum tíðkaðist varla að ferðast um fsland; að kynna sér landið og náttúruna. Það þótti mik- ill munaður og var ekki á færi nema efnuðustu manna. Vegir voru mjög takmarkaðir og samgöngur lélegar. Fólk hugsaði fyrst og fremst um að fæða sig og klæða," segir Páll Guð- mundsson framkvæmdastjóri FÍ um aðstæður til ferðalaga við stofn- un FÍ árið 1927. VirtirforsetarFÍ Páll segir hugmyndina um að stofna Ferðafélag íslands sprottna úr viðjum fyrsta forseta þjóðarinn- ar. „Sveinn Björnsson fékk þessa hugmynd og hvatti meðal annarra Jón Þorláksson, forsætisráðherra til að taka af skarið og stofna félagið. Það gerði hann í félagi við nokkra góða menn, skömmu eftir að hann lét af embætti. Forsetar FÍ hafa alla tíð verið framamenn í þjóðfélag- inu, “ segir Páll. Ólafur Orn Har- aldsson er forseti FÍ i dag og heíúr verið í fjögur ár. Sömu gildi Páll segir að þrátt fyrir að sam- félagið haf breyst ótrúlega hratt á þessari öld og síðustu séu mark- mið Ff enn þau sömu og þau voru í upphafi. „Markmiðin eru að hvetja fólk til að ferðast, kynnast landinu, byggja upp aðstöðu fyrir ferða- menn í óbyggðum og á hálendi fslands, merkja gönguleiðir, kort- leggja vinsæl göngusvæði og útbúa leiðarlýsingar. Þessi markmið hafa verið við lýði frá upphafi og stand- ast tímans tönn," segir Páll. Félagsmönnum fjölgar enn Fyrsta ferðin var farin strax árið 1927 en þá var farið með nemendur í barnaskóla Reykjavíkur að Kolvið- arhóli. Fljótlega var svo farin önnur ferð með Gullfossi yfir á Snæfells- nes. í þeirri ferð voru 120 manns en hún hlaut mikla og verðskuld- aða athygliog ferðin hlaut mikla at- hygli. f kjölfarið fjölgaði gríðarlega í félaginu en fýrstu árin gengu mörg þúsund manns í félagið. Starfsem- in varð því strax mjög öflug. Páll segir að á þessum árum hafi orðið ákveðin vakning um ferðalög inn- anlands. „Þetta var eitthvað sem höfðaði sterkt til fólks og í kjölfar- ið gengu menn á lagið. Farnar voru bæði fræðsluferðir um nágrennið og svo lengri og erfiðari ferðir, en reynt var að gera eitthvað við allra hæfi," segir Páll. í dag eru um 8 þúsund meðlim- ir í FÍ. Þessi tala hefur staðið nokk- uð í stað undanfarin tíu til fimmt- án ár en um 1940 voru félagsmenn orðnir um sex þúsund. Páll segir markmiðið að fjölga í félaginu. „Við stefnum á að ná tíu þúsund félags- mönnum á næstu árum. Tugir þús- unda fslendinga ferðast um landið árlega og því ættu þeir allir heima í okkar röðum. Við viljum sérstak- lega opna félagið fyrir ungu fólki. Á síðusm tveimur árum hafa um tvö þúsund nýjir félagsmenn gengið til liðs við félagið, en flestir þeirra eru á bilinu 20 til 40 ára. Endurnýjunin er því mjög mikil og góð," segir Páll en árlega eru farnar á bilinu 100 til 150 ferðir á vegum FÍ. Árbækur frá upphafi Ff hefur allt frá byrjun gefið út árbækur. Sú fyrsta kom út árið 1928 en þessar bækur eru hverju sinni tileinkaðar ákveðnu svæði eða sýslu á landinu. Árbækurn- ar eru sérlega vandaðar og unnar í samvinnu við bændur og heim- fólk. „Þær eru nákvmæasta fs- landslýsing sem til er og í raun stórmerkileg heimild sem hefur komið út samfleytt í 80 ár," segir Páll en allar bækurnar eru til sölu hjá FÍ. Þær eru árlega gefnar út í átt til tíu þúsund eintökum, en all- ir félagsmenn fá bækurnar sendar heim til sín. Rekstur Ff er fjármagnaður með árgjaldi, leigu á fjallaskálum, sjálf- boðavinnu og tekjum úr ferðum. „Við rekum um 40 skála á hálend- inu og það er mjög kostnaðarsamt. Ef einhver rekstrarafgangur er til staðar fer hann allur í að bæta að- stöðu eða efla starfið," segir Páll. Ff hefur alla tíð forðast að taka afstöðu í pólitískum mál- um. „Vegna útrása ákveðinna fyr- irtækja er sótt meira og meira í óbyggðir og upp á hálendið. Land- ið er ekki eins ósnortið og það var fyrir 80 árum en FÍ hefur ekki beitt sér í pólitíkinni. f málum þar sem fýrirtæki kemur inn á starfssvæði félagsins þá tekur það mjög skýra afstöðu en annars lætur félagið slíkt eiga sig," segir Páll. Tuttugu fá gullmerki Afmælisdagur Ff verður þann 27. nóvember. Páll segir dagskrá á afmælisdaginn veglega. „Þar sem félagið er stofnað í kaupþingssaln- um í Eimskipafélaginu ætlar stjórn- in að fúnda þar og snæða góðan hádegismat. Að því loknu verður afmælisfundur í Norræna húsinu kukkan hálf 4. Þar verður um 150 manns boðið; embættismönnum og velunnurunum FÍ auk þess sem 20 manns verður veitt gullmerki fé- lagsins en slíkt er jafnan gert á stór- háú'ðum. Síðan um kvöldið verður opið hús í Mörkinni frá klukkan sex til átta þar sem allir eru velkomnir, en þar verðru boðið upp á kaffi og með því," segir Páll að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.