Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV SANDKORN ■ Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri þarf svo sannarlega að bretta upp ermar til þess að tryggja ör- yggi íbúa og gesta í miðbænum. Ný skýrsla lögregl- unnar á höíuðborgarsvæðinu sýnir að flest hegningarlagabrot eru framin þar eða nærri fimmtung- ur allra brota sem tilkynnt eru til lögreglu. Niðurstöður skýrsl- unnar sýna að 18 prósent út- kalla lögreglu snúa að miðborg- inni og brotum þar. Borgarstjóra bíður ærið verkefni og ljóst að hann þarf að finna leiðir til að draga úr glæpatíðni í miðborg- inni. ■ Gunnar I. Birgisson, bæj- arstjóri Kópavogs- bæjar, þarf líka að hafa áhyggjur. Ef brotatíðni er skoðuð eftir hverf- um kemur í Ijós að í Kópavogi eru flest brot framin og snúa útköll lögreglu í 13 prósent til- vika að bænum. Breiðholtið er ekki langt undan því 11 prósent útkalla beindust að hverfinu. Það vekur athygli að niðurstöð- ur skýrslunnar, Afbrot á höfuð- borgarsvæðinu, sýna bein tengsl milli glæpatíðni og efnahags. I þeim hverfum þar sem efnahag- ur er sem lægstur er brotatíðnin hvað hæst á meðan hún er lægri í hverfum þar sem efnahagur er betri. Markaðsmenn Toyota þurftu 5 sýna iðrun og biðja þjóðina fsökunar eftir að hafa nýlega birt aug- lýsingu um lyftara frá fýrirtækinu. / Femínist- N arbrugðust Ifg&y' skjóttvið »X oglýstuyfir ip vanþóknun sinni á upp- semingu og boðskap auglýs- ingarinnar. Eftir hörð viðbrögð femínistanna sendu forsvars- menn Toyota ff á sér yfirlýsingu þar sem beðist var velvirðing- ar á auglýsingunni og birtingu hennar. Þeir lofa að birta hana aldrei aftur og femínistar unnu fullnaðarsigur. Meðfylgjandi er sjálf auglýsingin og dæmi nú hver fyrir sig. ■ Frjálslyndir eru heldur ósáttir við svokallað Skólaþing sem er kennsluver Alþingis fyrir efstu bekki grunnskóla. Nemend- ur fara þar í hlutverka- eiki og setja sig í spor þingmanna. Tölvutækni og margmiðlun eru notaðar til að stýra leiknum en vefsíða hans er skolathing.is. Frjáls- lyndir eru hins vegar ekki svo frjálslyndir þegar kemur að því að víkja ffá staðreyndum en í leiknum eru aðeins fjórir flokkar í þingi í stað þeirra fimm sem þar eru í raun. Sigurjón Þórð- arson, fyrrverandi þingmaður flokksins, er heldur ósáttur og telur að jafnvel þó flokkarn- ir á Skólaþingi heiti tilbúnum nöfnum sé það ígildi Frjálslynda flokksins sem þarna vanti. erla@dv.is Tolf ara drengur stal bíl á meðan hann var í helgarleyfi frá meðferð- arheimilinu Stuðlum. Hann á sögu um fikniefnaneyslu og ofbeldis- glæpi. Geir Jón Þórisson segir málið svakalegt. Hjá Barnaverndar- stofu fengust þær upplýsingar að afar sjaldgæft sé að tólf ára börn séu vistuð á meðferðarheimilum. Fimmtán ára félagi drengsins er á Kvíabryggju fyrir ofbeldisbrot og fíkniefnamisferli. * Meðferðarheimiliö | StuðlarTólf ára I pilturervistaðurá 8 meðferðarheimilinu. Ivleðterðarstqö íyrir unglinga ERLA HLYNSDÓTTIR blaðamaður skrifar: Tólf ára síbrotamaður stal bíl í fé- lagi við þrjá vini sína um síðustu helgi á meðan hann var í helgar- leyfi frá meðferðarheimilinu Stuðl- um. Þrír piltanna skiptust á að aka bifreiðinni og var sá elsti, 15 ára, við stýrið þegar lögregluna bar að garði. Þá höfðu þeir ekið um Hafn- aríjörð í tvær klukkustundir. DV fjallaði í september um þann tólf ára eftir að hann réðst með hnífi á lögregluþjón. Þá var hann fluttur á Stuðla til neyðarvistunar en afar fátítt er að svo ung börn dvelji þar. Drengurinn á að baki sögu um fíkniefnaneyslu og beit- ingu ofbeldis auk þess sem hann hefur verið á vergangi á götum Reykjavíkurborgar. Svakalegt mál „Þetta er það sem fólk óttast mest, að ungir krakkar eigi erfitt með að ná sér á strik þegar þeir em einu sinni byrjaðir í afbrotum," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það getur verið heilmikið mál að koma í veg fyrir áframhaldandi brotaferil þegar hann er hafinn. Þessi ungmenni þurfa á leiðsögn að halda. Mér finnst þetta svakalegt mál," segir hann. Tólf ára pilturinn hefur samkvæmt heimildum DV neytt fíkniefna auk svokallaðs læknadóps, þar á meðal flogaveikilyfsins Rivotril sem hefur verið fjallað um að undanförnu vegna þess hversu algengt er að það sé misnotað. Ekki sakhæfur Öllum drengjunum fjómm sem vom teknir á stolnu biffeiðinni var sleppt að lokinni yfirheyrslu en haft var samband við foreldra sem sóttu þá á lögreglustöðina. Geir Jón segir að jafnvel þótt sá elsti sé orðinn sakhæfur sé unglingum ekki haldið nema ríkir rannsóknarhagsmunir séu í húfi eða mál sérlega alvarlegt. GuðjónBjarnason, sálfræðingur hjá Barnaverndarstofú, segir mjög sjaldgæft að tólf ára börn séu vistuð á Stuðlum en meðferðarstofnunin heyrir undir Barnaverndarstofu. Starfsemi Stuðla er tvíþætt. Annars vegar er þar neyðarvistun þar sem ungmenni eru vistuð í hámark fjórtán daga með það að markmiði að stöðva hættulega hegðun. Hins vegar er þar meðferðarstarf fýrir ungt fólk sem yfirleitt á við vímuefnavanda að stríða. SI fvUbryaduWna ofbeldisbrota og nknteteamisfertii. TÓLF ÁRA REÐST MEÐ HNÍFI fl LÖGRE6LU OV DV 14. september 2007 Drengurinn sem réðst á lögreglu- mann í september komst nú aftur í kast við lögin. Níu ára á meðferðarheimili Guðjón segir Bamaverndarstofú alltaf gæta meðalhófs og beita vægustu úrræðum sem til greina koma.Efþaudugaekkitilertekiðfastar á málunum. Eitt meðferðarheimili á landinu er sérstaklega fýrir yngsta aldurshópinn, eðamutiltólfára, oger það Geldingalækur á Rangárvöllum. Meðalaldur á meðferðarheimilum Bamavemdarstofu er hins vegar tæp 16 ár. „Það vill enginn sjá 12 ára böm á slíkum stöðum. Hlutverk okkar er „Þetta er það sem fólk óttast mest, að ungir krakkar eigi erfitt með að ná sér á strik þegar þeir eru einu sinni byrj- aðir í afbrotun." að sjá til þess að þau fari ekki þangað nema full þörf sé á því og ljóst að annað hafi þegar verið fullreynt," segir Guðjón. Kunningi á Kvíabryggju í DV í september kom fram að tólf ára drengurinn hafi gerst sekur um ofbeldisverk og verið í vafasömum félagsskap eldri pilta. Meðal kunningja hans er 16 ára drengur, sá komst í fréttimar fýrir nokkrum mánuðum eftir að hafa skemmt um þrjátíu bfla í Hafnarfirði með því að brjóta í þeim rúður, sparka í þá og rispa. Tjónið nam um 20 milljónum króna. Félagsskapnum tilheyrir einnig 15 ára piltur sem nýverið var dæmdur til refsivistar á Kvíabryggju vegna ofbeldisbrota og fíkniefhamisferlis. Tekið skal fram að það vom aðrir piltar sem vom með unga síbrotadrengnum í bílnum um helgina. Meðferðarheimilið StuðlarTólfára pilturervistaðurá meðferðarheimilinu. SKALDID SKRIFAR Hinn einstaki arfur ..-/íísfaé,'.-. KRISTJflN HREINSSON SKAID SKRIFAR, Madurgetur sein sagtfengid aö vita hvort ntiklareöa litlar likurséuáþvíaö maðurberi ibláöinu sjúkdóma. Okkar ágæti forseti, herra Ólafúr Ragnar Grímsson, er í dag að benda þjóðinni á hætturnar sem blasa við ef unglingar byrja drykkju áfeng- is snemma á lífsleiðinni. Þetta er stórkost- legt framtak. En á sama tíma situr ungur og óharðnaður heilbrigðisráðherra við völd og vill, í nafhi ffelsis, að leyft verði að selja áfengi í matvöruverslunum. Tvískinnungurinn og þau margföldu sldla- boð sem við sendum æskulýð þessa lands gera frelsið að helsi og helsið að frelsi, ekki síst þeg- ar heilbrigð skynsemi og skjótfenginn gróði eru metin að jöfriu í orðræðu þeirra sem völd- in hafa. Áfengissýki er sjúkdómur sem menn losna ekki við en geta haldið niðri með því að drekka ekki. Það sem verra er, sjúkdómurinn er talinn ættgengur - sagður ganga í erfðir eins og syk- ursýki, hjartasjúkdómar og krabbamein. Þetta leiðir hugann að erfðamengjum og umræðu sem nú er að vaxa fiskur um hrygg. Því í dag má heimsækja Kára sem ríkjum ræð- ur hjá íslenskri erfðagreiningu og fýrir 60.000 krónur má þar kaupa skrá yfir þá sjúkdóma sem maður fær kannski á lífsleiðinni. Maður getur sem sagt fengið að vita hvort miklar eða litlar líkur séu á því að maður beri í blóðinu sjúkdóma eins og: MND, MS, krabba- mein, hjarta- og æðasjúkdóma og yfirleitt alla þá sjúkdóma sem hugsanlega er hægt að bera. Það hlýtur að vera hryllileg upplifun að frétta það að maður beri banvænan sjúkdóm í blóði. En einhver mun þó ábyggilega geta nýtt slíkar upplýsingar - sér og öðrum til hagsbóta. Á sextíu þúsund hér metið er mengið hjá mönnum sem fölna og bleikjast, já, núgeta tryggingafélöginfengið að fœkka þeim kúnnum sem veikjast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.