Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 35
DV Sport
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 35
1 \ \ /
1 ■ \ / Hi t 4
í. b3Sí «*■ JH M 1 mm
Vestmannaeymgurmn hefur
marga fjöruna sopið á ferli sínum sem knattspyrnumað-
ur. Hann hefur leikið á Englandi í tíu ár og farið á kost-
um með Portsmouth á þessari leiktið. Það hefur þó ekki
alltaf verið dans á rósum hjá Hermanni,
sem fallið hefur fjórum sinnum með
jafnmörgum liðum. Ipswich hafnaði á
> sínum tima tilboði Liverpool i
Hermann og hér ræðir
^WhM^^^^^hann um hæðir og lægðir
Árið sem við fórum niður gerði Liverpool
tilboð í mig, sem Ipswich hafnaði. Ég varsvo
íém fúllmeð að fá ekki tækifæri til að prufa
í Evrópukeppni með Ipswich
Frá Wimbledon lá leið Hermanns
til Ipswich árið 2000, en Ipswich var
þá nýliði í ensku úrvalsdeildinni. Ips-
wich kom liða mest á óvart á fyrsta
tímabili Hermanns með liðinu, en þar
átti Hermann eftir að vera í þrjú ár.
„Fyrsta tímabilið var ótrúlega gott.
Ipswich keypti held ég bara mig fyrir
það tímabil. Það var frábært tímabil,
frábærir áhorfendur, frábær aðstaða
og mjög skemmtilegur klúbbur. Við
lentum í fimmta sæti með 66 stig.
Svo átti að bæta aðeins liðið og
sjá hvort við gætum ekki gert betur,
sem var kannski fullmikið til ætlast.
Við byrjuðum tímabilið þar á eftir
alveg hræðilega illa. Okkur gekk vel
í Evrópukeppninni en vorum ekki
með nógu breiðan hóp," segir Her-
mann.
Mörg lið á Englandi hafa staðið sig
vel á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeild-
inni en þurft að sætta sig við fall á því
næsta. Sú varð raunin með Ipswich.
„Þetta er svokallað „second season
syndrome". Það er ekkert sérstakt sem
orsakar þetta. Sum lið fara beint niður
aftur, önnur lið standa sig vel, halda
sér uppi og bæta sig. Þetta er bara svo
hrikalega erfið deild að þú verður að
byrja vel og fá sjálfstraust í liðið. Ef þú
byrjar illa verður þetta basl. Það þarf
að fá smá sjálfstraust í liðið og trú á
að liðið eigi heima þarna," segir Her-
mann.
„Það var samheldnari hópur hjá
Ipswich en hjá Lundúnaliðunum.
Það bjuggu allir í Ipswich og það var
auðvelt að hópa mönnum saman,
hvort sem það var í golf eða til að fara
á pöbbinn og fá sér tvo eða þrjá sam-
an. Við gerðum mikið saman og þetta
var heimilislegri klúbbur. Góður mór-
all og það byggðist mikið á því. Þetta
snýst um það, þetta er sport sem á að
hafa gaman af og menn voru mættir
til að hafa gaman af þessu og þá verð-
ur allt miklu einfaldara."
ipswich hafnaði
tilboði Liverpool
Hermann var eitt ár með Ipswich
í 1. deildinni, áður en leið hans lá til
Charlton. Hermann fékk að fara til
Charlton í mars árið 2003, vegna fjár-
hagsörðugleika sem Ipswich var í á
þeim tíma. Hann mátti hins vegar
ekki byrja að spila með Charlton fyrr
tímabilið 2003-2004.
„Ég fékk tækifæri á að fara fyrr. Ips-
wich tók tilboði frá West Brom sem ég
hafnaði. Ég vildi vera eitt ár í viðbót
hjá Ipswich og sjá hvort við kæmumst
ekki upp aftur. Það gekk ekki nógu
vel," segir Hermann. Arið sem Ips-
wich féll úr úrvalsdeildinni fékk liðið
tilboð frá einu stærsta liði Englands,
en því tilboði var hafnað.
„Arið sem við fórum niður gerði
Liverpool tilboð í mig, sem Ipswich
hafrtaði. Ég var svo sem fúll með að fá
ekki tækifæri til að prufa að spila með
topp klúbbi og sjá hvernig hefði farið.
Svo buðu þeir (Liverpool) einhvem
pening plús einhverja leikmenn. En
það er oft þegar stórir klúbbar bjóða
að þá fá smærri liðin dollaramerld í
augun. En ég hélt bara áfram og var
ekkert að velta því fyrir mér meira.
Þetta gekk ekki og svoleiðis er bara
boltinn," segir Hermann.
Skemmtilegt þangað
til Dowie kom
Hermann var hjá Charlton í fjög-
ur ár, þar af þrjú ár undir stjóm Alans
Curbishley, núverandi stjóra West
Ham. A sama tíma og Charlton bauð
í Hermann bauð Portsmouth einnig í
hann.
„Portsmouth var þá á leið upp í
efstu deild en ég ákvað að ganga ekki
til liðs við félag þar sem baráttan yrði
erfið. Ég vildi fara í stöðugan klúbb,"
segir Hermann.
Curbishley hætti með Charlton
vorið 2006. Við liðinu tók Iain Dowie
og gengi liðsins fór að hraka. „Það var
mjög skemmtilegur tími (hjá Charl-
ton), þangað til Iain Dowie tók við.
Curbishley var búinn að vera með
liðið í fimmtán ár, þrjú ár sem ég var
þarna, og það var bara ákveðin leið
sem við spiluðum. Allir vissu hvert
hlutverk þeirra væri. Ég held að hann
hafi bara hugsað að hann kæmist
ekki lengra með klúbbinn og ákveð-
ið að sjá hvort einhver annar gæti
tekið við. Ég held að Iain Dowie hafi
gert þau mistök að ætla að breyta of
mörgu á of stuttum tíma. Við vissum
nákvæmlega hvað við áttum að gera
en hann kom með eitthvað algjörlega
nýja hluti og það gekk ekki upp," seg-
ir Hermann og bætir við að hann hafi
mikla trú á Alan Pardew, núverandi
stjóra Charlton.
„Þegar Pardew tók við var allt ann-
ar bragur á liðinu og þar er ffábær
þjálfari á ferð, sem ég held að eigi eftir
að ná langt."
Mikil samkeppni
hjá Portsmouth
Það var svo í sumar að Portsmouth
festi kaup á Hermanni. Gengi Port-
smouth hefur verið gott á leiktíðinni
til þessa. Liðið er í 6. sæti deildar-
innar, þrátt fýrir að hafa spilað við öll
fjögur stærstu lið Englands í fyrstu sjö
umferðum tímabilsins.
Hermann segir að gengi Port-
smouth til þessa sé betra en menn
þar á bæ þorðu að vona. „Við erum
búnir að spila hörku skemmtilegan
fótbolta og mannskapurinn er bara
það góður að ég held að ef við náum
að halda stöðugleika út tímabilið, þá
verður mjög athyglisvert að sjá hvar
við endurn."
Portsmouth styrkti lið sitt mikið
í sumar og Hermann segir að sam-
keppnin sé af hinu góða. „Þetta er
hörkusamkeppni og menn verða að
vera á tánum og standa sig. Maður
vill frekar vera í klúbbi þar sem geng-
ur vel og vera að vinna leiki, þá verð-
ur allt skemmtilegra og einfaldara.
Ef það gengur illa er farið í að flækja
hlutina og velta því of mikið fyrir sér.
En þegar vel gengur þá rennur þetta
eins og smurð vél."
Hermann hefur fallið fjórum sinn-
um úr ensku úrvalsdeildinni með
jafnmörgum liðum en hann lætur þá
staðreynd ekki fara í taugamar á sér.
„Þetta er bara staðreynd. Það þýð-
ir ekkert að fela sig fyrir þessu. Þetta
er ekkert viðkvæmt í mínum aug-
um. Svona er h'fið. Ég hef nú náði að
standa mig nokkuð vel. Maður horfir
oft í það hvort maður sé að gera eitt-
hvað rétt og hvort maður sé að bæta
sig," segir Hermann.
í góðu sambandi við
Bent og Holland
Hermann hefur verið með marga
knattspymustjóra á sínum ferli sem
knattspymumaður en það er þó einn
sem skipar sérstakan sess hjá Her-
manni. „Þeir sem standa upp úr em
þeir sem hafa skýra stefriu og vita
hvað þeir vilja og koma því til leik-
manna á góðan hátt, þannig að menn
ná skilaboðunum. ,
Steve Coppell var fyrsti stjór-
inn minn hjá Crystal Palace og gaf
mér sénsinn og kom manni á blað á
Englandi. Hann treysti á mig og vissi
hvað ég gat. Hann kenndi mér eitt og
annað fyrsta árið og það hafði mjög
góð áhrif á mig. Ég nefrii hann yfir-
leitt þegar ég er beðinn um að nefna
einn. Annars em margir góðir," segir
Hermann, sem nú leikur undir stjóm
Harrys Redknapp hjá Portsmouth.
„Redknapp er maður sem er hok-
inn af reynslu og hann flækir ekkert
hlutina. Þetta er frábær náungi og
algjört „legend". Hann kaupir menn
sem hann veit hvað geta og er góð-
ur í því að fá leikmenn sem hann veit
að skila sínu. Ef þeir gera það ekki þá
bara segir hann þeim það og kaupir
nýja."
Hermann segir að hann hafi eign-
ast marga vini á öllu sínu flakki á milli
liða á Englandi. „Maður á fullt af fé-
lögum. Eins og Matt Holland. Við vor-
um saman í þrjú ár hjá Ipswich og svo
fjögur ár hjá Charlton. Við höldum
alltaf góðu sambandi. Svo var Darren .
Bent líka hjá Ipswich og Charlton og
við emm í fínu sambandi."
Hvergi nærri hættur
Ivar Ingimarsson hætti nýverið að
leika með landsliðinu og ekki er langt
síðan Heiðar Helguson ákvað að
hætta einnig. Hermann segir að hann
sé hins vegar ekkert á þeim buxunum .
að hætta með landsliðinu.
„Þegar landsliðsþjálfarinn velur
mig, þá mæti ég, það er engin spum-
ing. Þótt ég sé 33 ára líður mér ekk-
ert eins og gömlum karli. Mér finnst
ég vera í fi'nu standi og það em bara
allir misjafnir. Sumir þurfa meiri tíma
en aðrir. Menn verða bara að virða þá
sem taka þessa ákvörðun.
Ég þekki mjög vel bæði ívar og
Heiðar. Þetta em frábærir drengir og
miklir keppnismenn. Auðvitað sakn-
ar maður þess að hafa þá ekki en sú
ákvörðun sem þeir taka er rétt ákvörð-
un fyrir þá," segir Hermann, sem hef-
ur hug á því að snúa sér að þjálfún
þegar ferlinum lýkur.
„Ég er að ná mér í þjálfaramennt-
un og mun klára það. Ég er búinn
að vera í kringum fótbolta frá því ég
var smágutti. Maður getur haft alla
reynslu í heiminum og verið hjá mis-
munandi þjálfurum og annað en svo
er það bara hvemig maður kemur
þessu frá sér sjálfúr hvort þetta eigi
við mann eða ekki. Það kemur í ljós,"
segir Hermann.
Slóst við Ólaf Þórðarson
Hermann á 74 landsleiki að baki .
fyrir íslands hönd. Þegar hann er
spurður eftir því hver sé eftirminni-
legasti leikurinn segir hann að margir
komi upp í hugann.
„Þegar er virkilega góð stemning í
Laugardalnum, þá sldlarþað séralltaf.
Þá labbar maður inn á völlinn og veit
að maður er ekkert að fara að tapa.
Ég get nefiit Ítalíu þar sem mættu 20
þúsund manns og einnig Frakkana og
Spánverja. Það stendur alltaf upp úr
þegar það er frábær stemning á Laug-
ardalsvelh og við stöndum okkur á
móti stærri liðunum," segir Hermann,
sem var meðal þeirra sem lék leikinn
fræga gegn Frökkum í Frakklandi árið
1999, sem Frakkar unnu 3-2
„Að hafa verið 2-0 undir og jafna
í 2-2 var ótrúlegur karakter. Frakkar
hefðu ekkert komist í lokakeppnina
ef hann hefði endað 2-2. Það var frá-
bær keppni. Það var mildll stöðugleiki
í liðinu þá og við verðum að reyna að
finna þann takt aftur. Þá vorum við
að fá á okkur fá mörk. Fótboltinn var
kannski ekki eins skemmtilegur og
upp á síðkastið en það skilaði góðum
úrslitum," segir Hermann.
Þegar Hermann var nýliði í ís-
lenska landsliðinu lenti hann í
skondnu atviki með harðjaxlinum
Ólafi Þórðarsyni. „Ég mætti, kjúkl-
ingurinn, og tók hann öxl í öxl og
hann var ekkert sáttur við það. Ég
var með Helga Sig í herbergi og hann
henti Helga út og læsti hurðinni. Svo
slógumst við þar til að herbergið var
alveg komið á hvolf, alveg kófsveittir .
og lamaðir. Við slógumst bara vel og
tókum á því. Hann hafði mig allavega
ekki, það er alveg á hreinu. Þetta var
bara góður slagur," segir Hermann
að lokum. dagur@dv.is