Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV s\\niv()ii\ ■ Hrafn Jökulsson, rithöfund- ur og lífskúnstner, stefnir hátt í jólabókaflóðinu með bók sína, Þar sem vegur- inn endar. Hrafn fjall- ar þar af einlægni um líf sitt ogþáum- breytingu sem varð eftir að hann fluttí norður á Finnboga- staði í Árneshreppi við ysta haf. þar unir hann glaður ásamt sambýliskonu sinni og hyggst ekki snúa aftur tíl höfuðborgar- innar í bráð. Hermt er að von sé á stórveislu á Finnbogastöð- um í vor þangað sem tugir vina Hrafns munu mæta. ■ Orðið á götunni segir frá því að Magnús Þór Gylfa- son, skrifstofustjóri borgar- stjóra, hafi verið ráð- inn fram- kvæmda- stjóri samskipta- sviðs hjá Alcan í Straums- vík. Enginn hefur gegnt starfinu frá því Hrannar Pétursson hvarf til Vodafone eftir átta ár. vefurinn segir jafnframt frá því að Jón Hannes Stefánsson, fyrrver- andi afleysingafréttamaður RtJV, hafi verið ráðinn til að sinna hluta af þeim verkefnum sem voru í verkahring upplýs- ingafulltrúa. Magnús Þór mun heyra beint undir Rannveigu Rist forstjóra og er ráðning hans talin hluti af ímyndar- hernaði álfrúarinnar. ■ Fréttablaðið tók upp skúbb DV um að Bille August hefði verið á fslandi að undirbúa gerð kvikmynd- ar eftír Slóð fiðrildanna eftír Ólaf Jóhann Ólafsson. En svo er að sjá sem blaðið telji sigekki þurfa að vitna tíl frumheimild- arinnar sem flestum í greininni þykir vera sjálfsögð kurteisi. Danski verðlaunaleikstjórinn hefur verið hér á landi undan- farna daga til þess að virða fyrir sér tökustaði og velta upp möguleikum á að ráða íslenska leikara í myndina um Slóð fiðr- ildanna. Bille hlaut Gullpálm- ann fyrir myndina um Pelle sig- urvegara. sigtryggur@dv.is Strax á fæðingardeildinni er byrjað að móta kynin. Stúlkur fá bleikan galla en strákar bláan. Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur BUGL, segir líkamsímynd fólks fara versn- andi og konur séu mun gagnrýnni á líkama sinn en karlar. Sigrún Daníelsdóttir Sigrún hefur áhyggjur af síaukinni áherslu á holdafar og megrunarkúra. varpsefni hvaða viðmið eru viður- kennd fyrir fegurð," segir hún. Konur þyngjast en fyrirmyndir grennast „Klassísk rannsókn frá níunda áratugnum sýndi að forsíðustúlkur Playboy hafa kerfisbundið minnk- að að ummáli í gegnum tíðina. Það sama má segja um keppend- ur í Ungrú Ameríku," segir Sigrún en ummái þessara tilteknu kvenna var athugað þar sem þær voru tald- ar lýsandi fyrir ríkjandi útlitsstaðla. „f Ijós kom að þær hafa ekki að- eins grennst heldur hafa brjóst og mjaðmir dregist saman þannig að kvenleg einkenni hafa orðið minna áberandi," segir hún. Sigrún bendir á að rannsóknir á þróun líkamsímyndar hafa sýnt að hún hefur farið versnandi hjá fólki en versnað mun meira hjá konum en körlum. Konur hafa verri mynd af líkama sínum en karlar. „Kon- ur hafa verið að þyngjast en fyr- irmyndirnar að grennast. Bilið á milli raunveruleikans og þess sem er eftírsóknarvert er alltaf að verða breiðara. Það er talið ýta undir óánægju kvenna með Iíkamsvöxt sinn og móta þá staðreynd að flest- ar konur og stúlkur eru óánægðar með líkama sinn," segir hún. Hættum þessum eyðileggjandi leik Sigrún segir að til að breyta sam- félaginu verðum við að byrja á okk- ur sjálfum. „Við verðum að hætta að spila með í þessum eyðileggj- andi leik. Við þurfum að hugsa um framtíð barna okkar og barnabarna. Hvernig samfélagi viljum við að þau alist upp í? Ef við veljum að kaupa vörur eins og fatnað, tímarit eða matvöru sem markaðssettar eru með fegrunar- og megrunarboð- skap, þá erum við að styrkja þenna boðskap," segir hún. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdótt- ir segir fyrsta skrefið til viðhorfs- breytingar að vilja breytíngar. „Fólk er viðkvæmt fyrir því að breyta kynjahlutverkunum," segir hún en þó eigum við enn von. PLAYBOYSTELPUR Fatanúmer fara minnkandi Eitt af hlutverkum kvenna nú á dögum er að vera grönn. „Fata- númer fara minnkandi og gínurn- ar sömuleiðis, segir Kolbrún Mar- elsdóttir, varaformaður Spegilsins, forvarna- og fræðslusamtaka um átröskunarsjúkdóma, en þau hafa fengið fjölda ábendinga um að það líti út fyrir að starfsfólk tískuvöru- verslana sé ráðið út frá megurð. Sigrún Daníelsdóttir, sálfræð- ingur á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, hefur ekki farið var- hluta af því vandamáli sem átrask- anir eru. „Börnin læra það sem fyr- ir þeim er haft í þessu sem öðru. Ef foreldri er mjög gagnrýnið á eig- in líkama og er sífellt í megrun er ekki við öðru að búast en það síist inn hjá barninu," segir hún og lýsir þeirri ofuráherslu sem er á grann- an líkama í nútímasamfélagi. Steinunn tekur undir með henni. „Útlitsdýrkun er ríkjandi og mikil krafa um að allir passi í sama form. Það sést vel í auglýsingum og sjón- HUGMYNDIR UNGMENNA um umsjón með fjármálum heimilisins að mati 10. bekkinga 2006 Heimild: Andrea Hjálmsdóttir, Eru þau með jafnréttið í farteskinu? BA-verkefni Alltaf/frekar eiginkonan Jafnt EÐLILEG SKIPTING HJÓNA á umsjón með þvotti heimilisins að mati 10. bekkinga 2006 Alltaf/frekar eiginkonan Jafnt ■ DRENGIR ■ STÚLKUR h Alltaf/frekar eiginmaðurinn | DRENGIR ■ STÚLKUR Heimild: Andrea Hjálmsdóttir, Eru þau með jafnréttið í farteskinu? BA- verkefni Alltaf/frekar eiginmaðurinn Kynnum vinsælasta vaxið í dag Sársaukaminna SÚKKULAÐIVAX Bjóðum bæði upp á Brasilískt vax og Hollywood vax 15 % kynningarafsláttur af fyrstu komu til 1 Des. Minnum á nýja og endurbætta heimasiðu á www.snyrtihornid.is SNYRTIHDRNIÐ Míövangi 41 I Hafnarfiröi 1 Sími: 552 1200 um heilu hópana jafnvel þó við vit- um betur. Til eru staðalímyndir um innflytjendur, samkynhneigða og háskólanema, og margir líta ósjálf- rátt til þeirra þó þeir séu meðvitað- ir um fjölbreytileika þessara hópa. Það gengur ekkert upp að segja konur vera einsleitan hóp og algjör- lega frábrugðinn karlmönnum, lfkt og haldið var fram í bókinni um að konur væru frá Venus og karlar frá Mars," segir Hjálmar og furðar sig á þessari einföldun. Það er fólki eðlislægt að draga aðra í dilka, ef svo má að orði kom- ast. Þannig flokkum við umhverfi okkar og gerum það einfaldara. En staðalímyndirnar sem leiða af því geta haft skaðlegar afleiðingar. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttír, talskona Femínistafélags íslands, bendir á að fastbundnar hugmynd- ir um kynjahlutverk hafi þær afleið- ingar að konur komist síður í valda- stöður og karlmenn veigra sér við að tjá tilfinningar. Slíkt þykir ekki hæfa hlutverki þeirra sem konu og karls. Svelt Umdeild auglýsing með ítalskri fyrirsætu sem hefur barist við átröskun í 18 ár. ERLA HLYNSDOTTIR blcidamaöur skrifar: erla&dv.is Konur eiga að vera fallegar. Þær eiga að vera grannar, vel snyrtar heima- kærar mæður sem þvo þvott. Ein- hvern veginn þannig er hin full- komna kona í hugum margra. Allt of margra segja sumir. Strax á fæðingardeildinni er byrj- að að móta kynin. Stúlkur fá bleikan galla en strákar bláan. Einstaka sér- vitur móðir biður um bláan galla á stelpuna sína og hjúkrunarfræðing- arnir horfa á hana í forundran. Eng- inn gengur svo langt að setja strákinn í bleik föt. Það væri nú einum of. Leikfangabæklingarnir segja sína sögu. Þar standa stoltar hnátur við strauborð á bleiku síðunum en strák- arnir fjarstýra bláum bílum. Telp- ur sem vilja ærslast teljast óþekkar. Gáskafullir strákar eru bara strákar. Þó að nú séum við komin inn í 21. öldina eru unglingar enn á þeirri skoðun að konur eigi að þvo þvottinn en karlmenn að sjá um fjármálin. Við erum föst í viðjum staðalímynda. Einföldun á raunveruleikanum Hjálmar G. Sigmarsson, sérfræð- ingur á Jafnréttisstofu, segir staðalí- myndir einföldun á raunveruleikan- um. „Við notum þær oft til að alhæfa SÍFELLT GRENNRI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.