Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV Valdamenn í Sjálfstæðisflokknum eru sakaðir um að hygla gæðingum sínum með kaupum Háskólavalla á 1660 íbúðum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði. Kaupverðið var 14 milljarðar og hefur Atli Gíslason gagnrýnt kaupin harðlega fyrir að ekki hafi verið farið að lögum. Gunnar Svavarsson lýsti því yfir að fjárlaganefnd myndi óska eftir gögnum um fasteignamál á Miðnesheiði. ■■ ísSsaí m Varnarliðssvæðið Nýireigendur munu leggja fram milljarða til viðbótar til þess að gera íbúðirnar upp. UMDEILD EIGNASALA AMÐNESHEÐI Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar seldi Háskólavöllum 1660 íbúð- ir á gamla varnarsvæðinu í Kefla- vík á verði sem er langt undir meðalvirði íbúða í Reykjanesbæ og einnig undir lægsta fasteigna- verði sem þekkist á höfuðborg- arsvæðinu. DV fjallaði fyrst allra fjölmiðla um málið, þriðjudaginn 20. nóvember, þar sem fram kom að ríkið hefði verið sakað um að sveigja lög og fara fram hjá opin- berum reglum um sölu fasteigna. Vildarvinum og flokksbræðrum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafl verið afhentar eignirnar á silf- urfati, án þess að þær hefðu verið auglýstar opinberlega til sölu. Base keypti 20 hús 1 ágúst síðastliðnum keypti eignarhaldsfélagið Base ehf um 20 byggingar í þorpinu á Mið- nesheiði, sem aðallega eru til at- vinnustarfsemi. Þeirra á meðal eru stórar skemmur sem banda- ríski herinn notaði. Kaupverðið er um sjö hundruð milljónir króna og Atli Gíslason „I þessu tilfelli er verið að fara með opinbert fé og það er mjög óeðlilegt að opinberum reglum sé ekki fylgt. Það ætti að fara með þetta í gegnum Ríkiskaup og fara að settum reglum." samkvæmt Magnúsi Gunnarssyni, stjórnarformanni Þróunarfélags- ins, hefur Base áhuga á að kaupa fleiri eignir á svæðinu. Hann seg- ir Base þó ekki hafa boðið í hin- ar 1660 íbúðir sem Háskólavell- ir keyptu. Hins vegar hafi félagið áhuga á því að kaupa frekari eign- ir á varnarliðssvæðinu. Mjög flók- ið eignarhald er að baki Base, en að félaginu koma meðal annars Nl, þar sem Bjarni Benediktsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks- ins, gegnir stjórnarformennsku og fslenskir aðalverktakar, en Jón Sveinsson, fyrrverandi ráðgjafi Halldórs Ásgrímssonar, á stóran hlut í félaginu. Aðrir stofnfélag- ar eru Hringrás ehf, Meistarahús ehf, Hótel Keflavík ehf, Rafholt ehf, Eignarhaldsfélagið AV ehf, DM ehf., Húsanes ehf, Lykil ráð- gjöf ehf, Víkur ehf. og Sparisjóður Keflavíkur. Vísa ekki í sömu lögin Adi Gíslason, alþingismaður vinstri grænna, segir skýrt að lög hafi verið brotin þegar Háskóla- vellir keyptu íbúðirnar af Þróun- arfélagi Keflavíkurflugvallar. Hann vísar til reglugerðar um sölu eigna í eigu ríkisins þar sem segir: „Ríkiskaup ráðstafa þeim eign- um ríkisins sem ákveðið hefur ver- ið að selja eða láta af hendi með öðru móti." Þá segir enn fremur í reglugerðinni að Ríkiskaupum beri að bjóða eignir til sýnis og sölu með opinberri auglýsingu þar sem allar helstu upplýsingar séu tilgreindar. Ríkiskaup meta svo tilboð sem berast og gera til- lögu til fjármálaráðuneytisins um hvaða tilboði skuli taka. Atli Gíslason telur söluna vera á afar gráu svæði því lagarammi þessara félaga sé mjög óljós. „f þessu tílfelli er verið að fara með opinbert fé og það er mjög óeðli- legt að opinberum reglum sé ekki fylgt. Það ætti að fara með þetta í gegnum Ríkiskaup og fara að sett- um reglum," sagði Atíi. IKLIPPINGU AISUNB OSÆTIIVEGUA SOlU TAPltGA 1.700 IBÚOA A KtfLAVIKURflUGVLl Ll: RÍKIÐ SAKAÐ IftAll IRAIAU&USUAIINS00ntiiiIR. ! lI vellir vísa hins vegar til laga um hlutverk Þróunarfélags Keflavík- urflugvallar, sem tóku gildi í árs- lok 2006. Þar segir að heimilt sé að fela Þróunarfélagi Keflavíkurflug- vallar að annast í umboði ríkis- ins umsýslu fasteigna á svæði sem koma á hið fyrsta í arðbær borg- araleg not. Enn fremur segir að félaginu sé heimilt að annast um- sýslu eigna á flugvallarsvæðinu. Út fyrir verksvið Ríkiskaupa Baldur Guðlaugsson, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu, svaraði gagnrýni Atla og sagði hana byggða á misskilningi. „Á síðasta ári voru sett lög á Alþingi um að Þróunarfélag Keflavíkur- flugvallar skyldi annast umsýslu fasteigna á svæðinu," segir hann. Árni Mathiesen Neitai þvíað fjölskyldutengsl hafi liaft áluif á kaup Háskólavalla. Árni er bróðir Þorgils Óttars Mathiesen. tmm ■ Baldur segir starfsemina á svæð- inu vera svo víðtæka að hún nái langt út fyrir hlutverk Ríkiskaupa. Fyrir vikið sé eðlilegt að halda eignasölunni utan við stofnunina. „Með brottför varnarliðsins var ekki verið að yfirtaka fáar eignir heldur heilt bæjarfélag og verk- efnið var margþætt og snúið." Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur sagt að upp- sprettan að þessari umræðu komi frá mönnum sem hafa ekki feng- ið eignir á Miðnesheiði og geri nú hvað þeir geti til þess að gera kaupin tortryggileg. Árni Mathie- sen fjármálaráðherra neitar að persónuleg tengsl hafi ráðið nokkru um kaupin. Alþingi skoðar Gunnar Svavarsson, formað- ur fjárlaganefndar Alþingis, sagði á miðvikudag að nefndin myndi óska eftir gögnum um sölu fast- eigna á Keflavíkurflugvelli og hef- ur hann farið þess á leit við Rík- isendurskoðun og efnahags- og skattanefnd Alþingis að koma einnig að málinu. Hann segir þó nefndina ekki hafa forsendur til þess að rannsaka beint kaup Há- skólavalla á íbúðunum, heldur séu margir kostnaðarliðir óskýrð- ir og vill nefndin sjá gögn og þau minnisblöð sem til eru. Guðjón Arnar Kristjánsson, sem einnig á sæti í fjárlaganefnd, telur að heppilegast hefði verið að farið hefði verið að reglugerð um sölu ríkisfasteigna og Ríkiskaup hefðu annast málið. Hið sama á við um Óskar Ásgeirsson, sér- fræðing á sviði eignasölu hjá Rík- iskaupum, sem lýsir undrun yfir því að salan hafi ekki komið inn á borð til sín. Mikil tenging Fasteignafélagið Klasi virðist vera tengt félaginu Fasteign, en hið síðarnefnda á einnig miklar eign- ir í þorpinu á Miðnesheiði. Með- al þeirra fyrirtækja sem standa að LANGTÚT FYRIR VERKSVIÐ RÍKISKAUPA t-essssgj v ^ 8=5s“*aS:fflL Háskólavöllum eru eins og fram hefur komið Glitnir og fasteigna- þróunarfélagið Klasi, sem Þor- gils Óttar Mathiesen, bróðir Árna Mathiesen fjármálaráðherra, leið- ir. Félagið Klasi er til húsa í sömu byggingu og Fasteign. Varafor- maður Fasteignar er Árni Sigfús- son, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi og aðstoðarmaður Árna Mathiesen, á sæti í varastjórn. Fréttavefurinn eyjan.is benti á að samkvæmt vef- síðum Fasteignar og Klasa starfar sama fólk hjá báðum félögum, því sömu aðilar eru skráðir fyrir bók- haldi, uppgjöri og skrifstofústjórn beggja félaga. Gunnar Svavarsson Formaður fjárlaganefndai hefur óskað eftir því að Rikisenduiskoðun komi að málinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.