Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Blaðsíða 41
DV Ættfræði
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 41
MAÐUR VIKUIVIVAR
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Reykjavík 4.10.
1942 og ólst þar upp. Hún lauk prófi
fráVÍ 1960.
Jóhanna var flugfreyja hjá
Lofdeiðum 1962-71, stundaði skrif-
stofustörf hjá Kassagerð Reykjavíkur
1971-78, varalþm. Reykvíldnga 1978-
2003, alþm. Reykjavíkurkjördæmis
suður 2003-2007 og er nú alþm.
Reykjavílcurkjördæmis norður frá
2007. Hún var félagsmálaráðherra
1987-88, 1988-91, 1991-94 og er nú
félagsmálaráðherra frá 24.5. 2007, í
fjórða sinn.
JóhannasatístjómFlugfreyjufélags
Islands 1966-69 ogvarformaðurþess
1966 og 1969, sat í stjóm félagsins
Svalanna 1974-76 og var formaður
þess 1975 og sat í stjórn VR 1976-
83. Hún sat í nefnd til að undirbúa
frumvarp um tilhögun og framkvæmd
fullorðinsffæðslu og endurskoðun
laga um almannatryggingar 1978, sat
í tryggingaráði 1978-87 og formaður
þess 1979-80, var formaður stjómar-
nefndar um málefni þroskaheftra
og öryrkja 1979-83, sat í floklcsstjóm
Alþýðuflokksins 1978-94, var
varaformaður Alþýðuflokksins 1984-
93, var formaður Þjóðvaka 1995-
99. var varaforseti neðri deildar
Alþingis 1979 og 1983-84, sat í
utanrfkismálanefnd 1995-96, iðnað-
amefnd 1995-99, sémefnd um
stjómarskrármál 1995-97 og 1999-
2000 og 2004-2007, allsherjamefnd
1996-99, efnahags- og viðskiptanefnd
1999-2007, kjörbréfanefnd 1999-2003
og félagsmálanefnd 2003-2007. Hún
sat á þingi Alþjóðaþingmannasam-
bandsins 1980-85, í íslandsdeild
Alþjóðaþingmannasambandsins
1996-2003 og í íslandsdeild ÖSE-
þingsins 2003-2007.
Fjölskylda
Fyrrv. eiginmaður Jóhönnu er
Þorvaldur Steinar Jóhannesson, f. 3.3.
1944, starfsmaður hjá íslandsbanka.
Þau skildu. Foreldrar Þorvalds:
JóhannesEggertsson,hljóðfæraleikari
í Reykjavík, og k.h., Steinunn G.
Kristinsdóttir húsmóðir sem er látin.
Maki Jóhönnu frá 15.6. 2002
er Jónína Leósdóttir, f. 16.5. 1954,
blaðamaður og leikskáld. Foreldrar
hennar em Leó Eggertsson og k.h.
Fríða Björg Loftsdóttir.
Synir Jóhönnu og Þorvalds Steinars
em Sigurður Egill, f. 31.5. 1972,
starfsmaður hjá ísal, en kona hans er
Ragnheiður Elíasdóttir, starfsmaður
hjá KSÍ, og eiga þau tvo syni og eina
dóttur; Davíð Steinar, f. 22.3. 1977,
starfsmann hjá Olís, en kona hans er
Auður Oddgeirsdóttir og eiga þau tvo
syni.
Sonur Jónínu er Gunnar Hrafn
Jónsson, f. 1981.
Systkini Jóhönnu: Anna María, f.
4.10. 1942, húsmóðir í Reykjavík, gift
Bernhard Petersen framkvæmda-
stjóra; Hildigunnur, f. 19.5. 1950,
flugfreyja, búsett í Reykjavík, gift
Lámsi Ögmundssyni lögfræðingi;
Gunnar Egill, f. 19.5. 1950, d. 2001,
hagfræðingur í Reykjavík, var kvænt-
ur Guðfinnu Theódórsdóttur, fyrrv.
starfsmanni hjá SlF.
Foreldrar Jóhönnu: Sigurður Eg-
ill Ingimundarson, f. 10.7. 1913, d.
12.10.1978, alþm. og forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins, og k.h., Karít-
as Guðmundsdóttir, f. 19.12.1917, d.
26.8.1997, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Ingimundar,
daglaunamanns í Reykjavík
Einarssonar, b. á Egilsstöðum í
Ölfusi Jónssonar. Móðir Einars var
Sólveig Þorvarðardóttir, b. á Vötnum
í Ölfusi, bróður Þorbjörns Garðars,
föður Guðmundar H., fýrrv. alþm.,
og langafa Vals leikara, föður Vals,
fyrrv. bankastjóra. Þorvarður var
sonur Jóns, silfursmiðs og ættföður
Bíldsdalsættar Sigurðssonar. Móðir
Sólveigarvar GuðbjörgEyjólfsdóttir,
b. á Kröggólfsstöðum í Ölfusi Jóns-
sonar. Móðir Ingimundar var
Vilborg Jónsdóttir, systir Jóns á
Þorgrímsstöðum, langafa Hannesar
Jónssonar sendiherra, föður
Hjálmars sendiherra.
Móðir Sigurðar var Jóhanna,
verkakvennaforingi Egilsdóttir, b. í
Hörgslandskoti á Síðu Guðmunds-
sonar. Móðir Egils var Sigríður Eg-
ilsdóttir, b. í Jórvík í Álftaveri Gunn-
steinssonar, bróður Runólfs, langafa
Margrétar, ömmu alþingismann-
anna Jóns Helgasonar og Hjörleifs
Guttormssonar.
Karítas var dóttir Guðmundar,
kaupmannsíReykjavíkGuðjónssonar,
sjómanns í Reykjavík Bjömssonar,
bróður Guðrúnar, ömmu Alberts
Guðmundssonar ráðherra.
Móðir Guðmundar var Steinunn
Þorsteinsdóttir, b. í Breiðamýrarholti
Þorsteinssonar, garðyrkjumanns
í Úthlíð í Biskupstungum
Þorsteinssonar, b. á Hvoli í Mýrdal,
hálfbróður Bjarna Thorsteinssonar
amtmanns, föður Steingríms skálds.
Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. í
Kerlingardal Steingrímssonar, bróður
Jóns „eldklerks". Móðir Þorsteins í
Úthh'ð var Þómnn Þorsteinsdóttir,
b. á Vatnsskarðshólum í Mýrdal
Eyjólfssonar. Móðir Steinunnar var
Guðlaug Stefánsdóttir, b. á Brekku
í Biskupstungum Gunnarssonar, af
Vfldngslækjarætt ráðherranna Davíðs
Oddssonar, Ingólfs Jónssonar og
Eggerts G. Þorsteinssonar, sem og
Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar,
og Jóns Helgasonar skálds.
Móðir Karítasar var Anna María
Gísladóttir sjómanns Jónssonar frá
Irafelli í Kjós. Móðir Önnu Maríu var
Vilborg, systir Salvarar, langömmu
Sigurðar Sigurjónssonar leikara.
Vilborg var dóttir Frímanns, b.
að Kirkjuvogi Gíslasonar. Móðir
Vilborgar var Margrét Þórðardóttir,
b. á Bakka í Höfnum Þorkelssonar,
bróður Ögmundar, afa Tómasar
Guðmundssonar skálds.
T
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra lætur eldd deig-
an síga. Hún hélt því fram á
Alþingi síðastliðinn þriðjudag
að húsnæðisstefnan í landinu
væri augljóslega koniin í þrot
og að það hijóti að vera eitt
af brýnustu verkefnum ríkis-
stjórnarinnar að taka á þeini
vanda.
AXDLÁT
Pétur Björnsson
fyrrverandi forstjóri og aðaleigandi Verksmiðjunnar Vífilfells.
Pétur Bjömsson, fýrrv. forstjóri og
aðaleigandi Verksmiðjunnar Vífilfells,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð í Garðabæ aðfaranótt 14.11.
sl. Útför hans fór fram í gær.
Starfsferill
Pétur fæddist í Reykjavík 22.5.
1930 og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1949, stundaði
nám í fagurfræði og heimspeki við
Grenoble og Sorbonne í París 1950-
51, og í hagfræði við Trinity College
í Cambridge 1952-53 og við Florida
State University 1954-56.
Eftir að Pétur kom heim hóf hann
störf hjá Verksmiðjunni Vífilfelli, fyrst
við útkeyrslu á landsbyggðinni, starfaði
síðan við markaðs- og auglýsingadeild,
varð aðstoðarforstjóri fýrirtækisins
1960 og var síðan framkvæmdastjóri
þess og stjómarformaður um langt
árabilfrál977.Þávarhannmeðforstjóri
heildverslunarinnar Þórður Sveinsson
& Co frá 1963 og framkvæmdastjóri og
stjómarformaður þess fýrirtælds frá
1975.
Pétur lék golf um árabii og var
mikill áhugamaður um þá íþrótt.
Hann var m.a. stofnandi og formaður
Golfklúbbs Ness á Seltjamarnesi 1964,
meðstofnandi og ritari Sambands
íslenskra einkaklúbba í golfi 1966 og
stofhandi og meðritstjóri Golfblaðsins
1968.
Fjölskylda
Péturkvæntist24.5.1957, Sigríði
Hrefnu Magnúsdóttur, f. 20.12.
1936, húsmóður. Hún er dóttir
Magnúsar Ólafssonar, heildsala í
Reykjavík sem er látinn, og k.h.,
Guðrúnar Ólafíu Karlsdóttur
húsmóður sem varð hundrað ára í
ágúst sl.
Dætur Péturs og Sigríðar Hrefnu
eruÁsta Pétursdóttir, f. 17.10.1957;
Erla Pétursdóttir, f. 25.7. 1959, og
Guðrún Sylvía Pétursdóttir, f. 7.11.
1967. Þær systurnar stunda eigin
fjármálaumsýslu í sameiningu.
Barnabörn Péturs eru nú ellefu
talsins en langafabörnin eru þrjú.
Systkini Péturs eru öll látin. Þau
voru Ólafur, f. 1932, sjómaður í Reykja-
vflc; Edda, f. 1934, húsmóðir í Reykja-
vflc; Iðunn, f. 1937, húsmóðir í Reykja-
vflc.
Foreldrar Péturs voru Björn Ól-
afsson, f. 26.11. 1895, d. 11.10. 1974,
alþm., ráðherra, stórkaupmaður og
iðnrekandi í Reykjavík, og k.h., Ásta
Pétursdóttir, f. 1.12. 1906, d. 25.12.
1968, húsmóðir.
Björn var sonur Guðmundar Ól-
afssonar, útvegsbónda á Akranesi, og
Ingibjargar Ólafsdóttur.
Ásta var dóttir Péturs Sigurðssonar
og Jóhönnu Gestsdóttur.