Peningamál - 01.02.2000, Side 3
Verðbólga áfram mikil
Verðbólga jókst enn undir lok ársins 1999, miðað við
12 mánaða hækkun vísitölu neysluverðs. Frá janúar
árið 1999 til janúar sl. hækkaði vísitala neysluverðs
um 5,8% og hafði verðbólga hér á landi ekki verið
meiri frá árinu 1991. Hækkunin á síðasta ári var
1,2% meiri en Seðlabankinn spáði í október síðast-
liðnum, og stafar frávikið einkum af því að opinber
gjöld hækkuðu meira í janúar sl. en gert var ráð fyrir,
en einnig hækkaði húsnæðisliður vísitölunnar meira
en reiknað var með.
Vísitala neysluverðs stóð að vísu í stað í nóvem-
ber, en það má rekja til árstíðabundinnar lækkunar á
grænmetisverði og tímabundinnar lækkunar á ben-
sínverði sem gekk að mestu leyti til baka í desember
og janúar. Verðlagsþróun í desember og janúar var
hins vegar með líkum hætti og fyrr á árinu að því
undanskildu að hækkun opinberra gjalda átti, sem
fyrr segir, verulegan þátt í hækkun vísitölunnar í jan-
úar. Að öðru leyti skýrir verðhækkun bensíns og hús-
næðis stóran hluta hækkunarinnar auk þess sem mat-
væli önnur en búvörur héldu áfram að hækka.
Að því er verðhækkun bensíns áhrærir er augljós-
lega um utanaðkomandi áhrif að ræða sem ekki er
ástæða til að bregðast við. Af hækkun vísitölu
neysluverðs á síðasta ári má rekja tæplega 1% til
hækkunar bensínverðs á erlendum mörkuðum og
samanlagt skýrir hækkun bensín- og húsnæðisverðs
tæpan helming verðbólgu síðasta árs. Bensínverð
hækkaði á ný í desember og janúar eftir lækkun í
nóvember sem rekja mátti til lækkunar bensínskatta
og tímabundinnar lækkunar á heimsmarkaðsverði í
október. Heimsmarkaðsverð á bensíni hækkaði síðan
á ný og náði nýjum toppi í janúar, en er nú álíka hátt
og það var hæst í september.
Hækkun bensínverðs skýrir ekki hvers vegna
verðbólga hér á landi hefur aukist langt umfram
verðbólgu í helstu viðskiptalöndum, sem einnig hafa
mátt þola svipaða hækkun bensínverðs og húshitun-
arkostnaðar að auki. Að hluta til má rekja mismuninn
á innlendri og erlendri verðbólgu til hækkunar hús-
næðisverðs.2 Tæpur þriðjungur af hækkun vísitölu
neysluverðs yfir árið 1999 stafaði af tæplega 15%
Þróun og horfur í efnahags- og peningamálum1
Aukin verðbólga og viðskiptahalli krefjast aðhalds í hagstjórn
Verðbólga jókst á síðustu mánuðum sl. árs og varð meiri en Seðlabankinn hafði spáð. Til þess að við-
halda aðhaldi peningastefnunnar við þessar aðstæður hækkaði Seðlabankinn vexti í janúar. Gengi krón-
unnar styrktist nokkuð síðustu 2 mánuði ársins. Haldist gengi krónunnar tiltölulega hátt ætti verðbólga
að öðru óbreyttu að hjaðna nokkuð þegar líða tekur á árið 2000, en lækkun vísitölu neysluverðs í
febrúar er í meginatriðum í samræmi við spá Seðlabankans fyrir árið í heild. Miklu skiptir að komandi
kjarasamningar grafi ekki undan stöðugleika gengis og verðlags. Aðhaldssöm peningastefna hefur við
ríkjandi aðstæður í för með sér hækkun á raungengi og tímabundið erfiðari samkeppnisstöðu atvinnu-
veganna, en hjá því verður ekki komist ef takast á að halda verðbólgunni í skefjum. Aðhaldssamari
stefna í ríkisfjármálum myndi draga úr þessum hliðarverkunum. Þess sjást nú merki að farið sé að draga
úr vexti útlána, þótt enn sé hann mun meiri en samrýmist lítilli verðbólgu. Aðhald peningastefnunnar
má því síst vera minna en nú er, en frá áramótum hafa vextir verið hækkaðir tvívegis og vikmörk gengis-
stefnunnar víkkuð.
1. Í þessari grein eru notaðar upplýsingar sem tiltækar voru þann
11. febrúar 2000.
2. Að hluta kann mismunurinn að stafa af ofmati á hækkun innlends hús-
næðiskostnaðar vegna þess að hérlendis hefur til þessa eingöngu verið
tekið mið af hækkun húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðis-
2 PENINGAMÁL 2000/1