Peningamál - 01.02.2000, Page 11
10 PENINGAMÁL 2000/1
Mikil viðskipti á gjaldeyrismarkaði á árinu 1999 en
lítil inngrip Seðlabanka
Viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri námu
alls 468 ma.kr. á árinu 1999 og jukust um 16% frá
fyrra ári. Hlutdeild Seðlabankans var um 4% og
hefur farið hratt minnkandi frá árinu 1996 þegar hún
var um 80%. Veltan á markaðnum sveiflast nokkuð
frá einum mánuði til annars en að meðaltali var hún
um 40 ma.kr. á mánuði á síðasta ári.
Seðlabankinn hefur ekki átt viðskipti á milli-
bankamarkaðnum síðan í júní á síðasta ári og hefur
því ekki með beinum hætti haft áhrif á gengi krón-
unnar. Eins og áður segir styrktist gengi krónunnar
nokkuð í desember og náði hámarki undir lok mán-
aðarins. Þegar krónan var sterkust var hún rösklega
5% yfir miðgengi. Tímabundnir þættir ollu að mati
Seðlabankans styrkingu krónunnar á þessu tímabili.
Veigamestu þættirnir voru að stofnanafjárfestar fóru
sér hægt í erlendum verðbréfakaupum og lánastofn-
anir höfðu yfir nægu erlendu lánsfé að ráða. Að auki
kann varfærni vegna hugsanlegs 2000-vanda að hafa
stuðlað að styrkingu krónunnar.
Aðhaldssöm peningastefna leiddi til styrkingar á
gengi krónunnar
Gengi krónunnar veiktist nokkuð fyrstu dagana í jan-
úar og gætti þá þess að hinir tímabundnu þættir sem
styrkt höfðu gengið snerust við. Veiking Banda-
ríkjadals og skörp lækkun hlutabréfaverðs vestan
hafs og austan virtist ýta undir áhuga innlendra fjár-
festa á hlutabréfakaupum erlendis. Seðlabankinn
Fjármálamarkaðir og aðgerðir Seðlabankans1
Vaxtahækkanir og víkkun vikmarka
Gengi krónunnar styrktist talsvert í desember en þá gætti áhrifa ýmissa tímabundinna þátta svo sem var-
færni vegna hugsanlegs 2000-vanda og lítilla verðbréfakaupa innlendra aðila erlendis. Gengi krón-
unnar veiktist á ný í janúar og brást Seðlabanki Íslands við með því að hækka stýrivexti sína um 0,8 pró-
sentustig þann 12. janúar sl. Í kjölfarið styrktist gengi krónunnar og var eftir það á bilinu 4%-5% yfir
miðgengi fráviksmarkanna. Þann 14. febrúar víkkaði Seðlabankinn vikmörk gengisstefnunnar í ±9% og
hækkaði vexti sína um leið um 0,3 prósentustig. Í árslok tóku gildi nýjar reglur um laust fé lánastofnana,
reglur um lausafjárhlutfall. Þær byggjast á greiningu á lausafjáreiginleikum eigna og skulda lánastofn-
ana. Þær gera kröfu um að lausafjáreignir á næstu þremur mánuðum séu jafnar eða meiri en skuldbind-
ingar sem fallið geta á sama tíma. Þá setti Seðlabankinn nýjar reglur um verðtryggingu sparifjár og
lánsfjár og tóku þær gildi í ársbyrjun. Einnig voru gerðar breytingar á reglum bankans um millibanka-
markað í krónum sem tóku gildi 1. febrúar. Tvær nýjar tímalengdir bættust við, til 9 og 12 mánaða. Að
lokum voru gerðar smávægilegar breytingar á reglum bankans um viðskipti við bindiskyldar lánastofn-
anir sem einnig tóku gildi í byrjun febrúar.
1. Gögn í þessari grein ná fram til 15. febrúar.
Mynd 1
Heildarvelta á millibankamarkaði með
gjaldeyri og aðild Seðlabankans 1993-1999
1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999
0
100
200
300
400
500
Ma.kr.
0
20
40
60
80
100
%Heildarvelta Aðild Seðlabankans (%)