Peningamál - 01.02.2000, Blaðsíða 14
voru skipulögð viðskipti með 9 og 12 mánaða inn- og
útlán auk þess sem lágmarksfjárhæðir í viðskiptum
til 6 mánaða voru hækkaðar úr 50 m.kr. í 100 m.kr.
Lágmarksviðskipti í hinum nýju tímalengdum verða
50 m.kr. Með þessum breytingum næst sá mikils-
verði áfangi að millibankamarkaður hér á landi nær
til allra þeirra tímalengda sem millibankamarkaðir í
nágrannalöndum ná til.
Endurhverf viðskipti Seðlabanka fóru vaxandi
Endurhverf viðskipti Seðlabankans fóru mjög vax-
andi á síðustu mánuðum ársins 1999 og var staða
þeirra í árslok röskir 36 ma.kr. og hafði aukist um 13
ma.kr. á árinu. Nokkur lækkun hefur orðið í janúar og
febrúar en minni en búast mátti við. Ástæðan er batn-
andi staða ríkissjóðs gagnvart Seðlabanka.
Staða endurhverfra viðskipta er jafnan hæst um
áramót. Ástæður þessa má rekja til árstíðasveiflu í
lausafjárstöðu innlánsstofnana sem að jafnaði stafar
af árstíðabundnum breytingum í stöðu ríkissjóðs
gagnvart Seðlabankanum og árstíðabundnu gjald-
eyrisútstreymi. Þessu til viðbótar komu nú um ára-
mótin til sérstakir þættir, þ.e. einkavæðing ríkis-
fyrirtækja en andvirði hennar var greitt inn til ríkis-
sjóðs á síðustu mánuðum ársins að mestu leyti. Þá
var einnig á gjalddaga í fyrri hluta janúar söluand-
virði þess hlutar ríkissjóðs í viðskiptabönkunum
tveimur sem seldur var í desember sl. og er það
meginskýring þess að staða endurhverfra viðskipta
hefur ekki lækkað enn sem komið er.
Annar þáttur sem stuðlað hefur að aukinni fyrir-
greiðslu Seðlabankans við bindiskyldar lánastofnanir
er aukning bindifjárhæðar, en á síðasta ári jukust
innstæður á bindireikningum um 4 ma.kr. Þessi aukn-
ing endurspeglar að hluta hraðan vöxt lánastofnana á
síðasta ári en einnig víkkun bindigrunnsins sem nær
nú til fleiri liða í efnahag lánastofnana og fleiri lána-
stofnana en áður.
Tímabundin aukning grunnfjár í desember vegna
hugsanlegs 2000-vanda
Mikil aukning varð á grunnfé Seðlabankans á árinu
1999 eða 15,6 ma.kr. Auk þeirra þátta sem þegar hafa
verið nefndir stuðlaði varfærni vegna 2000-vandans
einnig að því að lánastofnanir juku endurhverf við-
skipti þegar leið að áramótum og byggðu upp stöðu á
viðskiptareikningum í Seðlabankanum til þess að
mæta hugsanlegum úttektum viðskiptavina. Staða
innlánsstofnana á viðskiptareikningum og innlendum
gjaldeyrisreikningum í Seðlabankanum var um 7,9
ma.kr. hærri í árslok 1999 en á sama tíma árið á
undan. Grunnfé Seðlabankans lækkaði strax í janúar
um 15,1 ma.kr. þegar innlánsstofnanir lækkuðu
innstæður sínar á viðskipta- og bindireikningum.
Í byrjun febrúar tóku gildi endurskoðaðar reglur
Seðlabankans um viðskipti við bindiskyldar lána-
stofnanir. Breytingarnar sem gerðar voru eru ekki
veigamiklar. Helstar eru þær að ákvæði eldri reglna
um leiðréttingu færslumistaka eru færðar inn í regl-
urnar og að frestur Seðlabankans til að tilkynna fyrir-
komulag vikulegra uppboða endurhverfra viðskipta
er færður frá föstudegi til mánudagsmorguns. Þá var
einum nýjum skuldabréfaflokki bætt á lista verðbréfa
sem hæfur er í endurhverfum viðskiptum og daglána-
viðskiptum við Seðlabankann.
PENINGAMÁL 2000/1 13
Endurhverf verðbréfakaup Seðlabankans
Staða í lok mánaðar. Nýjast 15. febrúar 2000
J F M A M J J Á S O N D J F M A M J J Á S O N D J F
0
5
10
15
20
25
30
35
40
Ma.kr.
1998 1999
Mynd 7
2000
Velta á millibankamarkaði með krónur
og vaxtamunur inn- og útlána frá júní 1998
J J Á S O N D J F M A M J J Á S O N D J
0
10
20
30
40
50
60
70
Ma.kr.
0,0
0,2
0,4
0,6
0,8
1,0
1,2
1,4
Prósentustig
til eins dags viku annarra tímalengda
O/N 3 M 6 M
2000
Mynd 6, a
1998 1999