Peningamál - 01.02.2000, Síða 17
16 PENINGAMÁL 2000/1
... en mikil uppsveifla á hlutabréfamarkaði
Mikil uppsveifla varð á íslenska hlutabréfamarkaðn-
um á síðasta ári. Mikil veltuaukning var og veruleg
hækkun á gengi flestra hlutafélaga í úrvalsvísitölu
Verðbréfaþings. Þá var mikill áhugi á nýjum hluta-
bréfaútboðum, bæði útboðum vegna einkavæðingar
og hlutafjáraukningar hjá öðrum félögum.
Viðskipti með hlutabréf á Verðbréfaþingi Íslands
voru þrefalt meiri árið 1999 en 1998. Viðskiptin voru
um 39 ma.kr. 1999 en ríflega 13 ma.kr. 1998. Úrvals-
vísitala VÞÍ hækkaði um 47% á árinu 1999 sem
endurspeglar mikla spurn eftir hlutabréfum. Mark-
aðsvirði hlutabréfa á VÞÍ var 361 ma.kr. í lok ársins
1999 samanborið við 233 ma.kr. í ársbyrjun. Þessa
hækkun má rekja til hækkunar á verði hlutabréfa,
útgáfu nýrra hluta og nýskráningar á VÞÍ. Markaðs-
virði skráðra hlutabréfa er um 53% af VLF og er
þessi kennitala farin að nálgast hlutabréfamarkaði í
nágrannalöndum. Hækkun hlutabréfaverðs á um-
liðnu ári endurspeglar mikla eftirspurn eftir hluta-
bréfum sem má meðal annars rekja til mikillar bjart-
sýni meðal fjárfesta um afkomu íslenskra fyrirtækja í
framtíðinni.
Seðlabanki Íslands setti nýjar reglur um lausafjárhlutfall
bindiskyldra lánastofnana í desember og gilda þær frá 31.
desember sl. Um leið féllu úr gildi eldri reglur um laust
fé bindiskyldra lánastofnana. Útreikningstímabil, sem
lauk 20. desember sl., var síðasta gildistímabil þeirra. Að
hinum nýju reglum er gefinn aðlögunartími með þeim
hætti að viðurlög við vanhöldum leggjast ekki á af fullum
þunga fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Frá því vorið 1999 var unnið að undirbúningi hinna
nýju reglna í samstarfi við fulltrúa lánastofnana og Fjár-
málaeftirlitsins. Til þess að þær gætu tekið gildi þurfti að
breyta ákvæðum laga um Seðlabanka Íslands um laust fé
lánastofnana. Frumvarp þess efnis var samþykkt á
Alþingi skömmu fyrir jól.
Fyrirmyndir að nýjum lausafjárreglum er að finna hjá
seðlabanka Þýskalands, nefnd á vegum Evrópusam-
bandsins, ,,Groupe de Contact“ og Alþjóðagreiðslubank-
anum (BIS). Þær byggjast á öðrum grunni en þær eldri og
fela í sér að fram fer heildarmat á lausafjáreignum og
lausafjárskuldbindingum lánastofnana í efnahagsreikn-
ingi þeirra auk liða utan hans. Í hinum aflögðu reglum
var hins vegar eingöngu tekið tillit til krafna og skuld-
bindinga milli innlendra og erlendra lánastofnana inn-
byrðis og viðskipta lánastofnana við seðlabanka. Nýju
reglurnar eru því enn betur til þess fallnar að tryggja að
lánastofnanir eigi nægjanlegt laust fé til þess að mæta
skuldbindingum sínum. Hinar nýju reglur fela ekki í sér
minna aðhald að lausafjárstöðu lánastofnana en eldri
reglurnar og með þeim mun draga úr neikvæðum hliðar-
áhrifum sem eldri reglur höfðu á vaxtamyndun á
peninga- og verðbréfamarkaði.
Meginatriði hinna nýju reglna:
1. Laust fé skal flokkað eftir fjórum tímabilum og horft
er til lauss fjár næstu tólf mánuði. Tímabilin eru:
Laust fé innan eins mánaðar, eftir einn til allt að
þriggja mánaða, eftir þrjá mánuði til allt að sex mán-
aða og eftir sex mánuði til allt að tólf mánaða.
2. Lausafjárhlutfall (hlutfall lausafjárkrafna og lausafjár-
skuldbindinga) eins og það er skilgreint í reglunum
skal reiknað mánaðarlega á grundvelli upplýsinga í
lok hvers mánaðar.
3. Mat er lagt á lausafjárgildi allra krafna og skuld-
bindinga sem geta haft annaðhvort markaðsverð eða
skilgreindan tekju- eða gjaldastraum.
4. Einstakir liðir efnahagsreiknings og utan hans hafa
verið metnir með tilliti til þess hversu auðvelt og
tryggt er að koma þeim í laust fé. Liður er metinn
100% ef hann hefur full áhrif en engin áhrif ef mikil
óvissa er um hvort hægt sé að koma honum í laust fé.
5. Út frá vægi hvers lausafjárliðar er laust fé metið í lok
hvers mánaðar og þá tekið mið af markaðsverði,
stöðu, tekju- eða gjaldastraumum hvers liðar.
6. Gerð er krafa til þess að lausafjárkröfur séu meiri en
lausafjárskuldbindingar á fyrstu tveimur tímabilunum
(sbr. 1. tl.), þ.e. hlutfall krafna og skuldbindinga má
ekki vera lægra en einn fyrir hvort tímabil um sig.
Heimilt er að yfirfæra afgang á fyrsta tímabili yfir á
annað tímabil.
7. Nái lausafjárhlutföll ekki tilteknum lágmarksgildum
eru reiknuð viðurlög á þær fjárhæðir sem á vantar. Þau
samsvara 30 daga vanskilavöxtum eins og þeir eru á
hverjum tíma.
Nýjar lausafjárreglur tóku gildi um síðustu áramót