Peningamál - 01.02.2000, Blaðsíða 46
PENINGAMÁL 2000/1 45
auk greiðslujöfnunarinnar og greiðsluuppgjörsins.
Greiðslujöfnunin fer fram með þeim hætti að öllum
greiðslum til og frá hverjum einstökum þátttakanda
er safnað saman í lok dags og þá er reiknuð út jöfn-
unarstaða, þ.e. jákvæð eða neikvæð greiðslustaða.
Greiðsluuppgjörið fer síðan fram á reikningum þátt-
takenda í Seðlabankanum. Þetta kerfi er nú orðið há-
þróað og afkastamikið. Um þessar mundir er verið að
taka í notkun sel en það er sjálfstæð varaaðstaða með
fullbúnu varakerfi sem hægt er að grípa til ef aðal-
kerfið bregst.
Aðlögun að Lamfalussy-skilyrðunum
Í skýrslu sem Seðlabankinn gaf út í ársbyrjun 1997
var metið hvernig greiðslujöfnunarkerfi RB stæði
gagnvart Lamfalussy-skilyrðunum. Í ljós kom að
kerfið uppfyllti ekkert af skilyrðunum sex. Nokkuð
hefur þó þokast í rétta átt. Búið er að setja lög um
öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum (lög nr.
90/1999). Þar er lagalegur grundvöllur greiðslukerfa
treystur mjög. Einnig eru í vinnslu reglur og samn-
ingar sem munu tryggja að greiðslujöfnunarkerfi RB
muni uppfylla að fullu Lamfalussy-skilyrði I um
traustan lagalegan grundvöll. Með nýju reglunum
mun kerfið einnig uppfylla skilyrði III um að við-
brögð við greiðslufalli og lausafjárskorti séu ljós
(þótt ekki sé enn hægt að setja skilyrði um hámarks-
skuldastöðu gagnvart öðrum þátttakendum) og skil-
yrði IV um að hægt verði að ljúka uppgjöri þótt sá
aðili sem hefur stærstu nettóskuldina bregðist. Skil-
yrði II um að þátttakendur geri sér grein fyrir áhætt-
unni í kerfinu ætti að vera uppfyllt, þótt nauðsynlegt
sé að viðhalda þeirri þekkingu sem til staðar er. Í
gangi er vinna við að kljúfa greiðslujöfnunina frá
öðrum kerfum RB og stofna um hana sérstakt félag
og opna þannig fyrir almennt aðgengi að greiðslu-
jöfnuninni. Þar með væri skilyrði V um jafnt aðgengi
uppfyllt. Þegar selið hjá RB verður tekið í gagnið
verður skilyrði VI uppfyllt en það fjallar um að
rekstraröryggi sé tryggt og aðgangur að varakerfi sé
til staðar. Því eru horfur á að Lamfalussy-skilyrðin
verði að mestu uppfyllt á næstu mánuðum.
Fyrirhugað stórgreiðslukerfi Seðlabankans
Um nokkurt skeið hefur Seðlabanki Íslands haft hug
á að koma á fót stórgreiðslukerfi sem yrði rauntíma-
uppgjörskerfi. Helsta ástæðan fyrir áhuga Seðla-
bankans á slíku kerfi er sú að mesta áhættan fylgir
stærstu greiðslunum og auk þess væri með þessu
hægt að draga verulega úr þeim vanda sem kann að
skapast af sýndarbókun í greiðslujöfnunarkerfi og
hugsanlegri upprakningu. Með því að gera þær strax
og endanlega upp á viðskiptareikningum í Seðla-
bankanum mætti eyða að mestu greiðslufallsáhættu
og einnig yrði dregið mjög úr kerfisáhættu.
Seðlabankinn mun væntanlega bjóða þátttakendum
upp á daglánaviðskipti gegn tryggingum til að auka
laust fé í kerfinu.
Verðbréfaskráning Íslands
Rafræn skráning verðbréfa er á næsta leiti. Verð-
bréfaskráning Íslands mun sennilega hefja fulla starf-
semi á næstunni og þá mun ferli verðbréfaviðskipta
breytast nokkuð. Verðbréfin sem slík verða aflögð en
rafræn skráning eignarréttindanna sem þeim fylgja
verður að veruleika. Viðskipti á Verðbréfaþingi Ís-
lands munu verða gerð upp í Verðbréfaskráningu Ís-
lands með þeim hætti að Verðbréfaþing tilkynnir um
þau viðskipti sem verða. Færslurnar eru síðan sendar
til kaupanda og seljanda (þ.e. þingaðila á Verðbréfa-
þingi) sem bæta við upplýsingum, t.d. um þá banka-
reikninga sem greiðslur eiga að fara um. Bankafærsl-
ur verða síðan sendar inn í greiðslujöfnunarkerfi RB.
Að morgni næsta viðskiptadags þegar endanlegt upp-
gjör greiðslujöfnunar á sér stað verða eigendaskipti á
eignarréttindum (verðbréfum). Þannig næst afhend-
ing gegn greiðslu sem er eitt helsta markmið skil-
virkrar og áhættulítillar greiðslumiðlunar verðbréfa.
Hlutverk seðlabanka
Seðlabankar hafa mjög misstórt hlutverk í greiðslu-
miðlun. Þetta helgast nokkuð af ólíkum hefðum en
breytingar á fyrirkomulagi greiðslumiðlunar síðustu
ár hafa víða leitt til breytinga á hlutverki seðlabanka.
Í mörgum tilfellum eru seðlabankar vettvangur
uppgjörs, þ.e.a.s. uppgjör greiðslujöfnunar fer fram
um viðskiptareikninga þátttakenda í seðlabanka við-
komandi lands. Af sömu ástæðu eiga seðlabankar
yfirleitt og reka stórgreiðslukerfi í hverju landi.
Vegna þess hversu mikilvæg greiðslumiðlun er í fjár-
málakerfinu hafa seðlabankar litið á það sem hlut-
verk sitt að fylgjast með henni, bæði rekstri greiðslu-
kerfa og rekstraröryggi þeirra og ekki síður með tilliti
til fjárhagslegs stöðugleika alls fjármálakerfisins.
Með breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, sem
gerð var 1998, varð það eitt af hlutverkum bankans
„að stuðla að greiðri, hagkvæmri og öruggri