Peningamál - 01.02.2000, Qupperneq 55
54 PENINGAMÁL 2000/1
og selja síðan aðgang að sjóðnum án þess að draga
verulega úr eigin áhættu vegna skuldabréfanna.
• Reglurnar veita bankastofnunum litla hvatningu
til að nýta tækifæri til að draga úr áhættu.
• Ýmis þróunarlönd hafa gagnrýnt að lönd innan
OECD séu sjálfkrafa talin traust.
• Reglurnar koma ekki nægjanlega vel í veg fyrir að
nýta megi sama eigið fé í mörgum fjármálafyrir-
tækjum.
• Vegna þess hversu þröngt reglurnar eru skil-
greindar geta stórir alþjóðlegir bankar skotið sér
undan því að telja með eigin eignum og áhættu-
meta eignir dótturfyrirtækja sem stunda fjármála-
starfsemi en eru ekki raunverulegir bankar sam-
kvæmt skilgreiningum.
Nýjar tillögur 1999
Í júní 1999 kynnti nefnd BIS um bankaeftirlit tillögur
að nýjum viðmiðunarreglum um eiginfjárkröfur
bankastofnana. Nýju regludrögin eiga eftir sem áður
að treysta öryggi og stöðugleika fjármálakerfisins,
efla samkeppnisjafnvægi og útfæra áhættumat betur.
Regludrögin beinast fyrst og fremst að alþjóðlega
virkum bönkum en geta þó átt við um banka á ýms-
um flækju- og færnistigum. Í tillögunum eru ekki
lagðar til breytingar á mati eigin fjár en nokkrir val-
kostir eru nefndir varðandi mat eigna (krafna). Til-
lögurnar byggja á þremur stoðum: Í fyrsta lagi lág-
marks eiginfjárkröfum, í öðru lagi yfirsýn og mati
eftirlitsaðila á eiginfjárþörf einstakra fjármálafyrir-
tækja og í þriðja lagi markaðsaðhaldi í formi ítarlegri
upplýsinga í reikningsskilum fjármálafyrirtækja.
Fyrstnefnda stoðin gerir ráð fyrir tveimur meginleið-
um. Annars vegar er staðlaða aðferðin sem notuð
hefur verið síðan 1988 þróuð áfram og gert ráð fyrir
að notað verði áhættumat alþjóðlegra matsfyrirtækja,
t.d. Moody's og Standard & Poor's. Hin aðferðin er
að bankar taki upp kerfi til að meta eigin eignir,
svonefnt innra mat. Í tillögunum er einnig minnst á
aðra valkosti en þeir verða ekki útfærðir frekar að
sinni.
Staðlaða aðferðin
Mælt er með því í tillögunum að þróa frekar þær
aðferðir sem nú eru í notkun. Helstu vankantar
núverandi aðferðar eru sniðnir af en haldið er í þá
hugmyndafræði sem að baki liggur. Í stuttu máli yrði
mat alþjóðlegra matsfyrirtækja, svo sem Moody's og
Standard & Poor's, látið ráða áhættuvog ríkja.
Áhættuvog banka sem hafa einkunn slíkra mats-
fyrirtækja ræðst af einkunninni, en annars yrði tekið
mið af vog landsins við flokkun bankanna. Þannig
hefði ríki með einkunnina AA- samkvæmt mati
Standard & Poor's eða betri einkunn, 0% áhættu-
vog en ríki með A+ til A- hefði 20% áhættuvog. Í dag
er miðað við að ríki sem er innan OECD (eða ríki
sem hefur sérstaka lánafyrirgreiðslu frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum (IMF)) og hefur ekki neyðst til
að endurskipuleggja endurgreiðslu skulda sinna sl. 5
ár hafi 0% áhættuvog en ríki utan OECD hafi 20%
vog. Tafla 1 sýnir tillögurnar fyrir ríki, banka og
fyrirtæki.
Innra mat
Önnur aðferð er einnig kynnt í tillögunum sem val-
kostur fyrir þróaða fjármagnsmarkaði. Þessi aðferð
byggist á því að bankastofnanir komi sér upp eigin
reglum við mat á kröfum (innra mat) og beiti því
síðan við flokkun og áhættumat. Það yrði síðan
hlutverk eftirlitsaðila að fylgjast með því hvort regl-
urnar standast þær kröfur sem til þeirra yrðu gerðar
og hvort innra mat fari fram í samræmi við reglurnar.
Þessi lausn þykir aðlaðandi í stærri og þróaðri bönk-
um því að flestir þeirra hafa þegar komið sér upp ein-
hverjum slíkum aðferðum þótt víða þyrfti að endur-
bæta þær nokkuð. Helsti gallinn við þessa aðferð er
sá að þar með væri kastað fyrir róða þeim ávinningi
sem fæst við það að sama aðferð sé notuð um allan
heim og því geti verið erfitt að bera saman áhættu
ólíkra banka. Þó er talið líklegt að settar yrðu ein-
hverjar meginreglur varðandi slíkt mat og sennilegt
Tafla 1 Nýjar tillögur um mat krafna
(m.v. aðferðir Standard & Poor's)
Mat (í %)
AAA A+ BBB+ BB+ Undir Ekki
Krafa á: til AA- til A- til BBB- til B- B- metið
Ríki ...................... 0 20 50 100 150 100
Banki (teg. 1) ....... 20 50 100 100 150 100
Banki (teg. 2) ....... 20 50* 50* 100* 150* 50*
Fyrirtæki .............. 20 100 100 100 150 100
Tegund 1 eru bankar þar sem mat byggir á mati ríkis.
Tegund 2 eru bankar sem hafa einkunn alþjóðlegs matsfyrirtækis.
* Kröfur á banka með stuttum líftíma, t.d. undir 6 mánuðum, yrðu metnar
einum flokki ofar en ella.