Peningamál - 01.02.2000, Blaðsíða 57
56 PENINGAMÁL 2000/1
Gagnrýni á innra mat
Tillögur Basel-nefndarinnar um innra mat eru það
óljósar að erfitt er að festa hendur á því hverjir gætu
notað þessa aðferð og hvernig bæði framkvæmd og
eftirliti yrði háttað. Í tillögunum er talað um að sumir
þróaðir (e. sophisticated) bankar nýti sér þessar að-
ferðir en of óljóst er hvernig útfærslan verður. Nauð-
synlegt yrði að setja alþjóðlega staðla til að tryggja
sambærilegt mat. Einnig yrði að tryggja að eftirlits-
aðilar hefðu úr nægri þekkingu, fjármagni og mann-
afla að spila til að þessi aðferð gæti gengið upp.
Gagnrýni á önnur atriði
Samkvæmt tillögunum eru gefnir tveir valkostir
varðandi mat á bönkum, eins og sjá má í töflu 1 á bls.
54. Það er gagnrýnt að fyrri valkosturinn gefi það í
skyn að bankar og ríki tengist einhvers konar bönd-
um sem ekki séu til staðar í raunveruleikanum. Sum
ríki utan G10-hópsins hafa áhyggjur af 150% áhættu-
vog þar sem hún kunni að leiða til skyndilegra og
mikilla breytinga á eiginfjárþörf ef skuldastaða
versnar. Önnur ríki telja þetta fyrirkomulag hins
vegar til bóta því að með þessu sé hægt að flokka
kröfur betur.
Leitað umsagna
Tillögur Basel-nefndarinnar eru til umsagnar til 31.
mars á þessu ári og fyrirhugað er að nefndin skili af
sér fullbúnum „reglum“ í lok ársins. Evrópusam-
bandið hefur hrundið af stað vinnu innan sinna raða
og gaf það út skýrslu þann 18. nóvember síðastliðinn
þar sem farið er yfir tillögur Basel-nefndarinnar. Þar
er einnig óskað eftir umsögnum til 31. mars á þessu
ári. Hægt er að nálgast skýrslu Basel-nefndarinnar á
vefsíðu BIS: http://www.bis.org. Skýrslu Evrópusam-
bandsins má nálgast á vefslóðinni:
http://europa.eu.int/comm/dg15/en/finances.
Helstu heimildir:
A New Capital Adequacy Framework, júní 1999, BIS.
A Review of Regulatory Capital Requirements for EU Credit
Institutions and Investment Firms, 18. nóvember 1999,
European Commission, Internal Market Directorate General.
Revised Capital Rules from the Perspective of Emerging
Markets, glærur úr fyrirlestri sem David Carse, aðstoðarfor-
stjóri fjármálaeftirlits Hong Kong hélt á ráðstefnu í Stokk-
hólmi 24. nóvember 1999.
Tafla 2 Dæmi um mat á Suður-Kóreu í
Asíukreppunni 1997
Lækkun frá Áhættuvog
S&P- upphaflegri skv. nýjum
Dagsetning flokkun flokkun* tillögum
21. júní 1997 ...................... AA- 0%
24. október 1997 ................ A+ -1 20%
25. nóvember 1997 ............ A- -3 20%
11. desember 1997 ............. BBB- -6 50%
22. desember 1997............. B+ -10 100%
* Uppsafnaður fjöldi þrepa sem einkunnir hafa lækkað um.