Peningamál - 01.02.2000, Síða 58
Febrúar 1999
Hinn 18. febrúar tóku gildi reglur um viðskipti bindi-
skyldra lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Þær
komu í stað reglna um útreikning og færslu vaxta
o.fl. við Seðlabanka Íslands í viðskiptum við bindi-
skyldar stofnanir.
Hinn 18. febrúar undirrituðu aðilar að Verðbréfaþingi
Íslands hf. samkomulag um bætur og uppgjör við-
skipta á Verðbréfaþingi Íslands hf.
Hinn 23. febrúar hækkaði Seðlabanka Íslands vexti
sína um 0,4 prósentustig.
Hinn 23. febrúar tilkynnti bankastjórn Seðlabankans
um setningu reglna um laust fé bindiskyldra lána-
stofnana. Reglurnar tóku gildi 21. mars 1999.
Mars 1999
Hinn 29. mars voru gerðar breytingar á reglum um
laust fé bindiskyldra lánastofnana. Breytingarnar fel-
ast í því að aðlögunartími að endanlegu lausafjárhlut-
falli er lengt í fjóra mánuði. Lágmarkslausafjárhlut-
fall á fyrsta eins mánaðar tímabili verður -12% en
skal hækka um 3 prósentustig mánaðarlega uns það
nær 1,5% 21. júlí 1999. Fyrsta útreikningstímabil
samkvæmt reglunum er frá 21. mars til 20 apríl 1999.
Apríl 1999
Hinn 21. apríl birti Seðlabanki Íslands verðbólguspá
sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði
2,4% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá
upphafi til loka árs 1999 yrði 2,8%. Spáð var að
verðlag á öðrum ársfjórðungi myndi hækka um 1,0%
eða 4,2% á ársgrundvelli.
Júní 1999
Hinn 21. júní hækkaði Seðlabanki Íslands vexti sína
um 0,5 prósentustig.
Hinn 25. júní var gengisskráningarvog breytt í ljósi
samsetningar utanríkisviðskipta á árinu 1998.
Hinn 29. júní veitti viðskiptaráðuneytið Verðbréfa-
þingi Íslands hf. starfsleyfi til kauphallarstarfsemi frá
og með 1. júlí 1999.
Bandaríska matsfyrirtækið Moody´s Investors Ser-
vice gaf Búnaðarbanka Íslands hf. einkunnina A3
fyrir langtímaskuldbindingar, Prime-2 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar og D fyrir fjárhagslegan styrk.
Júlí 1999
Hinn 22. júlí birti Seðlabanki Íslands verðbólguspá
sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði
3,0% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá upp-
hafi til loka árs 1999 yrði 4,0%. Spáð var að verðlag
á þriðja ársfjórðungi myndi hækka um 1,3% eða
5,2% á ársgrundvelli.
Ágúst 1999
Útgáfu Economic Statistics var hætt.
September 1999
Útgáfu Hagtalna mánaðarins var hætt. Í stað þeirra
og Economic Statistics sem síðast komu út í ágúst
ákvað Seðlabanki Íslands að gefa út ársfjórðungsrit á
íslensku og ensku, Peningamál og Quarterly Mone-
tary Bulletin, frá nóvember 1999.
Hinn 15. september tilkynnti Lánasýsla ríkisins um
fyrirhuguð uppkaup og fækkun markflokka ríkis-
verðbréfa.
Hinn 20. og 21. september hækkaði Seðlabanki
Íslands vexti sína um 0,6 prósentustig.
Kreditkort hf. fékk starfsleyfi sem lánastofnun á
grundvelli laga um lánastofnanir aðrar en viðskipta-
banka og sparisjóði (nr. 123/1993).
Október 1999
Hinn 25. október birti Seðlabanki Íslands verðbólgu-
spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags
yrði 3,3% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá
upphafi til loka árs 1999 yrði 4,6%. Spáð var að
verðlag á fjórða ársfjórðungi myndi hækka um 1,0%
eða 4,1% á ársgrundvelli.
PENINGAMÁL 2000/1 57
Annáll fjármálamarkaða
Febrúar 1999 - febrúar 2000