Peningamál - 01.02.2000, Page 59
Ríkissjóður seldi 51% hlut sinn í FBA. Söluverð-
mætið nam 9,7 ma.kr.
Hinn 25. október hóf Seðlabanki Íslands að birta á
heimasíðu sinni, www.sedlabanki.is tölfræðilegar
upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og varða þær
einkum þá þætti sem heyra beint undir verksvið
bankans. Upplýsingarnar eru uppfærðar vikulega.
Nóvember 1999
Hinn 24. nóvember kom út fyrsta tölublað Peninga-
mála. Peningamál eru gefin út ársfjórðungslega og
innihalda umfjöllun um efnahags- og peningamál og
þróun á fjármálamarkaði auk greina og talnalegra
upplýsinga.
Desember 1999
Í desember fór fram sala á 15% hlut ríkissjóðs í
Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.
Bréfin voru seld með áskriftar- og útboðsfyrirkomu-
lagi. Söluverðmætið nam tæpum 6 ma.kr.
Bandarísku matsfyrirtækin Moody's Investor Service
og Standard & Poor's staðfestu mat sitt á lánshæfi
íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnirnar eru Aa3 og
A+ á langtímskuldbindingum og P-1/A-1+ á skamm-
tímaskuldbindingum í erlendri mynt. Á skuldbind-
ingar í íslenskum krónum fékk ríkið hæstu einkunn,
Aaa frá Moody’s og einkunnina AA+ frá Standard &
Poor's.
Hinn 8. desember voru samþykkt á Alþingi lög nr.
90/1999 um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerf-
um. Ákvæði laganna tekur til þeirra greiðslukerfa
sem rekin eru hér á landi.
Hinn 21. desember voru samþykkt á Alþingi lög nr.
96/1999 um breytingu á lögum nr. 36/1986, um
Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Breytt
var 8 gr. laganna, sem fjallar um laust fé, á þann veg
að skilgreining á lausu fé lánastofnana var rýmkuð.
Hinn 31. desember tóku gildi nýjar reglur um laust fé
bindiskyldra stofnana. Nýju reglurnar byggja á
öðrum grunni en þær eldri og fela í sér að fram fer
heildarmat á lausafjáreignum og lausafjárskuldbind-
ingum lánastofnana (sjá lýsingu í ramma á bls. 16).
Janúar 2000
Hinn 1. janúar tóku gildi nýjar reglur um verðtrygg-
ingu sparifjár og lánsfjár o.fl. Breytingar voru gerðar
á ákvæði um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda
lánastofnana. Leyfileg mörk misvægis voru aukin úr
20% í 30% af eigin fé. Ekki voru gerðar breytingar á
heimildum til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár
eins og stefnt hafði verið að samkvæmt reglum bank-
ans frá júní 1995. Lágmarksbinditími verðtryggðra
innlána verður áfram 3 ár og lágmarksbinditími verð-
tryggðra lána 5 ár.
Hinn 1. janúar breyttust lög nr. 36/1986 um Seðla-
banka Íslands og fluttist yfirstjórn bankans frá við-
skiptaráðherra til forsætisráðherra.
Hinn 1. janúar fékk Greiðslumiðlun hf. Visa Ísland
starfsleyfi sem lánastofnun.
Hinn 12. janúar hækkaði Seðlabanki Íslands vexti
sína um 0,8 prósentustig.
Hinn 24. janúar birti Seðlabanki Íslands verðbólgu-
spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags
yrði 5% milli áranna 1999 og 2000 en hækkun frá
upphafi til loka árs 2000 yrði 3,8%. Spáð var að
verðlag á fyrsta ársfjórðungi myndi hækka um 0,9%
eða 3,7% á ársgrundvelli.
Febrúar 2000
Hinn 1. febrúar tóku gildi nýjar reglur á millibanka-
markaði með krónur. Helstu breytingar eru þær að
framvegis skuldbinda markaðsaðilar sig til þess að
gera tilboð í tilteknum fjárhæðum með lánstíma til 9
og 12 mánaða. Seðlabanki Íslands mun reikna út og
birta REIBOR og REIBID til 9 og 12 mánaða.
Hinn 1. febrúar tóku gildi nýjar reglur um viðskipti
Seðlabanka Íslands við bindiskyldar lánastofnanir.
Meginbreytingar voru að leiðréttingar á færslumis-
tökum voru felldar inn í reglurnar og að tilkynningar
um uppboð endurhverfra viðskipta verða tilkynnt
vikulega á mánudagsmorgni í stað föstudagskvölds.
Þá bættist við nýr skuldabréfaflokkur SLST023/2
sem er hæfur í viðskiptum við Seðlabankann.
Hinn 3. febrúar veitti alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
IBCA íslenska ríkinu lánshæfismatið AA- fyrir lang-
tímaskuldbindingar í erlendri mynt. Fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í erlendri mynt F1+ og fyrir
skuldbindingar í innlendri mynt fékk ríkið AAA sem
eru hæstu einkunnir sem fyrirtækið gefur.
Hinn 11. febrúar tilkynnti Seðlabanki Íslands hækk-
un vaxta sinna um 0,3 prósentustig og um víkkun
vikmarka gengisstefnunnar úr ±6% í ±9%.
58 PENINGAMÁL 2000/1