Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 38
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
38
VI Vinnumarkaður og launaþróun
Efnahagssamdrátturinn hefur sett mark sitt á vinnumarkaðinn.
Atvinnuleysi að teknu tilliti til árstíðar eykst enn, þótt mælt atvinnuleysi
hafi lækkað, dregið hafi úr atvinnuþátttöku, vinnutími styst og brott-
flutningur aukist. Samkvæmt spá Seðlabankans hefur atvinnuleysi
ekki enn náð hámarki, enda bendir flest til þess að enn muni draga
úr eftirspurn eftir vinnuafli á næstu misserum. Sveigjanleiki íslensks
vinnumarkaðar er hins vegar töluverður. Atvinnuleysi eykst því minna
en ella. Umsamdar launahækkanir hafa og munu áfram vega salt við
launalækkanir sem gripið er til í fyrirtækjum til að lækka kostnað þar
til að nýir kjarasamningar verða gerðir. Launakostnaður á framleidda
einingu eykst nokkuð á þessu ári vegna minnkandi framleiðni og
hækkunar tryggingagjalds þó nafnlaun hækki minna en undanfarin ár.
Spáð er hægum vexti launakostnaðar á framleidda einingu á árunum
2010-2012, þar sem aukin framleiðni vegur á móti nafnlaunahækk-
unum í kjölfar nýrra kjarasamninga.
Atvinnuleysi minna en spáð var
Skráð atvinnuleysi mældist 7,2% í september og hefur lækkað stöð-
ugt frá því að það náði hámarki í apríl þegar það var 9,1%. Að teknu
tilliti til árstíðar hefur atvinnuleysi hins vegar aukist jafnt og þétt und-
angengið ár og var 9,4% í september.
Þróun atvinnuleysis frá því að Vinnumálastofnun jók eftirlit með
atvinnuleysisskráningu í apríl bendir til þess að atvinnuleysi hafi í raun
aldrei orðið jafn hátt og það var skráð í byrjun árs. Einnig má gera ráð
fyrir að atvinnuleysi sé um ½-1 prósentu meira í þessari niðursveiflu en
á fyrri samdráttarskeiðum, vegna möguleika starfsfólks og sjálfstætt
starfandi til að sækja um atvinnuleysisbætur á móti hlutastarfi. Spá
Seðlabankans frá því í ágúst var byggð á þeim tölum sem þá lágu fyrir
og var þar gert ráð fyrir töluvert meira atvinnuleysi á þriðja fjórðungi
ársins en varð raunin, eða 9% í stað 7,6%.
Fleiri fyrirtæki hyggjast fækka starfsfólki en fjölga …
Væntingar almennings um atvinnuástandið hafa heldur glæðst í lok
sumars samkvæmt væntingavísitölu Gallup þótt enn gæti mikillar
svartsýni. Samkvæmt viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði í
september meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins hafa væntingar þeirra
einnig glæðst, einkum þeirra sem selja vörur sínar og þjónustu til
útlanda. Færri fyrirtæki vilja fækka starfsmönnum nú en í sambærilegri
könnun í maí og fleiri hyggjast fjölga starfsmönnum.
Niðurstöður könnunarinnar benda þó til að vinnumarkaðurinn
eigi enn eftir að veikjast nokkuð, því fleiri fyrirtæki vilja fækka starfs-
fólki næstu sex mánuði en fjölga þeim. Tæpur fjórðungur fyrirtækjanna
hyggst fækka starfsfólki á næstu sex mánuðum en um fimmtungur vill
fjölga starfsmönnum.
… en þriðjungur sjávarútvegsfyrirtækja vill fjölga starfsmönnum
Í nánast öllum atvinnugreinum vilja fleiri fyrirtæki fjölga starfsmönn-
um nú en í maí og færri fyrirtæki fækka starfsmönnum. Í ljósi lágs
raungengis kemur ekki á óvart að mest breyting á ráðningaráformum
Heimildir: Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-1
Atvinnuleysi janúar 2008 - september 2009
Breyting á atvinnuleysi (h. ás)
Atvinnuleysi m.v. fullar bætur (v. ás)
Atvinnuleysi (v. ás)
Prósentur% af mannafla
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
20092008
Heimild: Capacent Gallup.
Mynd VI-2
Fyrirtæki sem hyggja á starfsmannabreytingar
á næstu 6 mánuðum
Fyrirtæki sem vilja fjölga starfsmönnum, september
Fyrirtæki sem vilja fjölga starfsmönnum, maí
Fyrirtæki sem vilja fækka starfsmönnum, maí
Fyrirtæki sem vilja fækka starfsmönnum, september
Hlutfall fyrirtækja
-80
-70
-60
-50
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
Ö
ll
fy
rir
tæ
ki
V
er
sl
un
Sj
áv
ar
út
ve
gu
r
Sa
m
g.
, fl
ut
ni
ng
ar
o
g
fe
rð
aþ
jó
nu
st
a
By
gg
in
ga
-
st
ar
fs
em
i o
g
ve
itu
r
Fj
ár
m
ál
a-
o
g
tr
yg
gi
ng
a-
st
ar
fs
em
i
Ý
m
is
s
ér
hæ
fð
þ
jó
nu
st
a
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
Se
lja
v
ör
ur
t
il
út
la
nd
a
Ið
na
ðu
r
og
fr
am
le
ið
sl
a
Se
lja
e
kk
i v
ör
ur
t
il
út
la
nd
a
Heimild: Capacent Gallup.
Mynd VI-3
Hlutfall fyrirtækja sem telja starfsfólk skorta
eða nægt framboð vera á starfsfólki
%
Nægt framboð starfsfólks
Skortur á starfsfólki
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
2009200820072006