Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 39
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
39
er meðal fyrirtækja sem selja vörur og þjónustu til útlanda. Í sjávar-
útvegi vildu um 30% fyrirtækja bæta við sig starfsfólki í september en
7% í maí. Aðeins 10% þeirra vildu fækka starfsfólki en ríflega þriðj-
ungur í maí. Um fimmtungur útflutningsfyrirtækja telur nú vera skort
á starfsfólki en aðeins 10% í maí. Afstaða fyrirtækja sem selja á inn-
lendan markað hefur þó ekki breyst. Eina atvinnugreinin þar sem fleiri
fyrirtæki vilja fækka starfsmönnum í september en í maí er sérhæfð
þjónusta. Þar vildu rúmlega 70% fyrirtækja fækka starfsmönnum,
en um fjórðungur í maí. Líklega á fyrirhugaður niðurskurður hjá hinu
opinbera stóran þátt í þessari breytingu.
Niðurstöður könnunar Samtaka atvinnulífsins (SA) sem gerð
var meðal félagsmanna þeirra fyrri hluta október sýnir sömu nið-
urstöðu og könnun Capacent Gallup. Könnun SA sýnir að fjórðungur
fyrirtækja á almennum vinnumarkaði hyggst fækka starfsmönnum
á næstu sex mánuðum en 14% hyggjast fjölga þeim. SA áætlar að
þessar niðurstöður svari til þess að um 2 þúsund manns á almennum
vinnumarkaði gætu misst vinnuna á næstu sex mánuðum umfram nýr-
áðningar, en það hefði í för með sér að atvinnuleysi ykist um rúmlega
eina prósentu. Niðurstöður viðhorfskönnunar Capacent Gallup og nið-
urskurðaráform ríkis og sveitarfélaga benda til þess að starfsmönnum
hins opinbera muni einnig fækka nokkuð á næstu misserum.
Sveigjanleiki innlends vinnumarkaðar flýtir fyrir aðlögun
þjóðarbúskaparins
Á samdráttarskeiðum hefur sveigjanleiki innlends vinnumarkaðar auð-
veld að aðlögun þjóðarbúskaparins að jafnvægi. Atvinnuleysi hefur
því aukist minna en ella. Sveigjanleikinn kemur að mestu leyti fram í
breytingu á atvinnuþátttöku og vinnutíma. Það sama gerist í núver-
andi niðursveiflu.
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands fækkaði
heildarvinnustundum um rúmlega 14% á þriðja fjórðungi þessa árs
miðað við sama tíma árið áður. Fækkun vinnustunda stafaði bæði af
fækkun vikulegra vinnustunda um tæplega þrjár stundir og fækkun
fólks við vinnu í viðmiðunarvikunni um næstum 9%. Undanfarið ár
hefur heildarvinnustundum fækkað um 10%.
Fleiri yfirgefa vinnumarkaðinn
Eins og sjá má á mynd VI-5 kom minnkandi eftirspurn eftir vinnuafli
fyrst fram í fjölgun atvinnulausra en frá og með öðrum ársfjórðungi
fjölgar einnig þeim sem yfirgefa vinnumarkaðinn. Þetta eru dæmigerð
viðbrögð við alvarlegum kreppum og reynsla fyrri fjármálakreppa gefur
til kynna að hluti þessa fólks muni jafnvel ekki snúa aftur á vinnumark-
aðinn. Atvinnuþátttaka á þriðja fjórðungi ársins var um tveimur prósent-
um minni en hún hefur verið á sama ársfjórðungi síðastliðin þrjú ár. Að
teknu tilliti til árstíðar var atvinnuþátttaka rúmlega 80% eða um tveimur
prósentum minni en hún hefur verið að meðaltali frá árinu 1991.1
Hefði atvinnuþátttaka haldist í grennd við meðaltal tímabilsins frá 1991
má ætla að atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi hefði orðið ríflega hálfri
prósentu meira en samkvæmt Vinnumarkaðskönnuninni.
1. Þ.e. það tímabil sem Vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands nær yfir.
Mynd VI-4
Breytingar á vinnuafli
1. ársfj. 2004 - 3. ársfj. 2009
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs
-16
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
Heimild: Hagstofa Íslands.
Meðalvinnutími
(klst.)
Heildarvinnu-
stundir
(%)
Fjöldi starfandi
(%)
Atvinnuþátttaka
(prósentur)
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-5
Breytingar á vinnuafli
1. ársfj. 2004 - 3. ársfj. 2009
Vinnuafl
Atvinnulausir
Starfandi
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs, í þúsundum
-16
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
12
14
200920082007200620052004