Peningamál - 01.11.2009, Page 60
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
60
Hinn 10. júlí samþykkti Alþingi lög nr. 73/2009 um breytingar á lögum
um gjaldeyrismál. Breytingarnar styrktu rannsóknarheimildir Fjármála-
eftirlitsins og kváðu á um refsingar fyrir milligöngu um gjaldeyrisvið-
skipti án tilskilinnar heimildar.
Hinn 10. júlí samþykkti Alþingi lög nr. 76/2009 um breytingar á lögum
um fjármálafyrirtæki. Með lögunum voru gerðar breytingar á lagaum-
hverfi sparisjóða. Var m.a. kveðið skýrar á en áður um félagsform
þeirra, heimildir til hlutafélagavæðingar voru afnumdar, reglur um
arðgreiðslur einfaldaðar og þrengdar og reglur settar um breytingar
á stofnfé.
Hinn 16. júlí samþykkti Alþingi að fela ríkisstjórninni að sækja um að-
ild að Evrópusambandinu. Sama dag sendi forsætisráðherra f.h. ríkis-
stjórnarinnar aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Hinn 20. júlí tilkynnti fjármálaráðuneytið að samkomulag hefði náðst
við skilanefndir bankanna þriggja; Glitnis, Kaupþings og Landsbanka
Íslands um fjármögnun og uppgjör eigna. Samkomulagið fól í sér að
skilanefndir Glitnis og Kaupþings ættu möguleika á að eignast meiri-
hluta hlutafjár í Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi en í tilviki Landsbank-
ans sneri samkomulagið að fyrirkomulagi áframhaldandi samningavið-
ræðna. Allir samningar voru gerðir með fyrirvara um lokaákvarðanir
skilanefndanna sem yrðu teknar að loknu samráði við kröfuhafa. Einnig
er fyrirvari um samþykki Fjármálaeftirlitsins sem skera þarf úr um hvort
það sem gert er samrýmist kröfum um fjármögnun, styrk bankanna og
stöðu eigenda á hverjum tíma.
Ágúst
Hinn 5. ágúst kynnti Seðlabankinn áætlun um afl éttingu gjaldeyris-
hafta í áföngum. Í fyrsta áfanga yrði losað um innstreymi lánsfjár og
fjárfestingar. Eignum sem þannig kæmu inn í landið yrði tryggð heimild
til brottfl utnings með skráningu hjá Seðlabankanum. Í seinni áföngum
yrði hömlum létt af útstreymi fjár, fyrst af langtímaskuldbindingum en
seinna af eignum til skemmri tíma.
Hinn 11. ágúst var á Alþingi kjörið nýtt bankaráð að viðhafðri hlut-
fallskosningu, skv. 26. gr. laga nr. 36 frá 22. maí 2001, um Seðla-
banka Íslands. Aðalmenn voru kosnir: Lára V. Júlíusdóttir, Ragnar Arn-
alds, Ágúst Einarsson, Hildur Traustadóttir, Ragnar Árnason, Magnús
Árni Skúlason og Katrín Olga Jóhannesdóttir. Varamenn voru kosnir:
Margrét Kristmannsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Björn Herbert
Guðbjörnsson, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Birgir Þór Runólfs-
son, Ingibjörg Ingadóttir og Friðrik Már Baldursson. Á fyrsta fundi
bankaráðsins var Lára Júlíusdóttir kjörinn formaður og Ragnar Arnalds
varaformaður. Daniel Gros var kosinn til að taka sæti Magnúsar Árna
Skúlasonar hinn 15. október 2009.
Hinn 11. ágúst samþykkti Alþingi lög nr. 88/2009 um bankasýslu ríkis-
ins, ríkisstofnun sem ætlað er að fara með hlut ríkisins í fjármálafyrir-
tækjum.